Íþróttablaðið - 01.06.1993, Page 4
Efnisvfirlit
SIGURÐUR JÓNSSON hefur verið
einn litríkasti knattspyrnumaður
landsins frá unga aldri. f viðtalið við
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ segir Sigurður frá
dvöl sinni hjá Sheffield og Arsenal og
því sem lýtur að atvinnumennsku.
Landsliðsmálin ber á góma, vel-
gengni ÍAog einkalífið. Sigurður seg-
ist vera rétt að byrja í boltanum og
stefnir að því að komast aftur í at-
vinnumennsku fái hann fullan bata
þeirra meiðsla sem hafa hrjáð hann
undanfarin ár.
BRYNDÍS ÓLAFSDÓTTIR er engin
venjuleg sundkona. Hún var best á
íslandi í sex ár, hvarf næstum því af
sjónarsviðinu næstu fjögur árin en er
núna, „á gamals aldri", að stinga öll-
um ref fyrir rass. Hún hefur ákveðnar
skýringar á því hvers vegna hún er
svona góð um þessar mundir. Bryn-
dís talar hispurslaust um sundsam-
bandið, þjálfun á íslandi og síðast en
ekki síst — um sjálfa sig.
Landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu,
VANDA SIGURGEIRSDÓTTIR,
mundar pennann af sömu kostgæfni
og boltann ogskrifar greinina: Á EFT-
IR BOLTA KEMUR BARN! Vanda
ræðir við þrjár landsliðskonur sem
hafa allar átt börn en haldið áfram að
leika eins og ekkert hafi í skorist. Er
virkilega áhættulaust að leika með
barn í maganum? Minnkar áhuginn á
íþróttum ekki í kjölfar barnsburðar?
Vanda leitar svara við fjölbreyttum
spurningum.
22-27
BRYNDIS
4