Íþróttablaðið - 01.06.1993, Page 10
Texti: Styrmir Guðlaugsson
Myndir: Hreinn Hreinsson
„501-502-503..." Heimir Karlsson íþróttafréttamaður undir öruggri hand-
leiðslu Kjartans Guðbrandssonar. Maður styrkir ekki keppin...magann
áreynslulaust!!
ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR Á SKÖMMUM TÍMA
Kjartan Guðbrandsson, íslands-
meistari í vaxtarrækt, byrjaði nýlega
á því að taka fólk, sem vill koma sér í
gott form, í einkaþjálfun í Gym '80.
Viðbrögðin voru svo góð að strax
myndaðist biðlisti. Átta karlar fá
einkaþjálfun hjá Kjartani en konur
eru að sjálfsögðu jafn velkomnar.
Kjartan tekur á móti þeim fyrsta
klukkan sjö á morgnana og síðan
mæta þeir hver af öðrum fram eftir
öllum degi.
VÍSINDALEGUR
UNDIRBÚNINGUR
„Þetta byggist á persónulegri þjálf-
un sem er miðuð við hvern og einn,"
segir Kjartan. „Ég teká móti mönnum
þegar þeir mæta og fylgi þeim alveg
eftir í gegnum æfingarnar. í upphafi
ræðum við saman og förum yfir hvert
markmiðið er og áður en sjálfar æf-
ingarnar hefjast fara þeir í lungna-
próf, blóðþrýstingurinn er mældur og
sömuleiðis púlsinn og þeir eru vigt-
aðir og fitumældir. Að þessu búnu
get ég betur metið líkamsástand
þeirra og með tilliti til þess reyni ég
að sjá út hvaða leið er best að fara að
markinu."
Kjartan segir að áttmenningarnir
séu flestir mjög uppteknir menn sem
hafi vanrækt líkamann í einhvern
tíma.„Sumir þeirra voru í hörkuformi
áður fyrr og stunduðu íþróttir af kappi
og ætla að byggja sig upp aftur."
FJÖLBREYTTAR
ÆFINGAR
„Ég reyni auðvitað að hafa æfing-
arnir þannigað þeirfái sem mest út úr
þeim miðað við það markmið sem
við höfum sett," segir Kjartan. „Flestir
þurfa að létta sig og þá legg ég mesta
áherslu á þeir brenni sem mestu við
æfingarnar og hef þær fjölbreyttar. Ég
læt þá margendurtaka æfingarnar og
þeir fá litla sem enga hvíld á milli.
Megináherslan er sem sagt á að ná
sem mestum bruna með fjölbreyttum
æfingum en þess á milli eru þær sér-
tækar. Lyftingar eru sennilega ekki
nema þriðjungur á móti skokki, hjól-
reiðum, pallapúli, boxi, fjallgöngum,
sippi og öðru því sem mér dettur í
hug að láta þá gera. Einn dag tek ég
kannski magann fyrir og geng frá
honum!
Ég vil fá þá, sem eru að berjast við
aukakílóin, oftar til mín en styttra í
einu. Vfirleitt mæta þeir fimm sinn-
um í viku í klukkutíma eða einn og
hálfan tíma í senn. Þá er árangurinn
tryggður.
Þeirsleppa heldurekki öðruvísi
rassblautir út og kunna því vel, enda
er mikill hugur í þeim að ná sem
bestum árangri. Ég passa samt vel að
þeirofreyni sigekki ogfara yfirmark-
ið. Maður verður að vita hversu langt
má ganga."
MATARÆÐIÐ SKIPTIR
JAFN MIKLU MÁLI OG
ÆFINGARNAR
Mataræðið segist Kjartan leggja
alveg að jöfnu á móti æfingunum.
„Þaðskiptir rosalega miklu málí hvað
maður lætur ofan í sig. Þeir borða
samt talsvert mikið og oft og eiga því
ekki að vera svangir. Þetta á því ekki
að vera nein pína fyrir þá. Mestu
skiptir að þeir breyti um mataræði og
matarvenjur. Máltíðirnareru fjórartil
sex á dag en hver máltíð er ekki stór.
Ég legg áherslu á að þeir borði góðan
morgunmat en lítið á kvöldin. Þeir
mega borða nánast allt nema titu og
unnin kolvetni. Ég læt þá hafa upp-
skriftir og þeir prófa sig síðan áfram
með þær. Uppteknum mönnum
hættir svo oft til að gleypa eitthvað í
sig á hlaupum í vinnunni en nú eiga
þeir að taka með sér hollt nesti í vinn-
una."
Kjartan lætur sér ekki nægja að
10