Íþróttablaðið - 01.06.1993, Side 26
„Að flestu leyti en samt hef ég á
tilfinningunni að beðið sé eftir því að
ég geri mistök. Ég er síður en svo
aigóð hvað varðarsamskipti okkaren
ég sætti migekki viðþað að látasegja
mér fyrir verkum. Ég hef margoft sagt
að ég stunda sund af því ég er ekki
hópmanneskja, er í sundi fyrir sjálfa
mig. Ég stend ekki undir því að vera
einhver fyrirmynd og sætti mig ekki
við það. Ég vil fara mínar leiðir sem
ég veit að skila mér bestum árangri.
Það hvarflar stundum að manni að
maður missi ákveðin mannréttindi
við það að vera í landsliðinu í sundi.
Ákvarðanir formanns Sundsam-
bandsins hafa stundum orkað tví-
mælis eins og það þegar hann ákvað
upp á sitt einsæmdi að enginn sund-
maður keppti í 50 metra skriðsundi á
Evrópumeistaramótinu fyrir tveimur
árum. Rétt fyrir mótið var Helga Sig-
urðardóttir sfðan send út sem kepp-
andi í greininni en ég sat eftir með
sártenniðogbúin aðbreyta æfingum
til þess að ná lágmarkinu í 100 metra
skriðsundi."
,rVIÐ ERUM EKKI
NEINIR
MEÐALJÓNAR"
— Hvað finnst þér til bóta hvað
þetta varðar?
„Þeir, sem stjórna hreyfingu eins
og Sundsambandinu, verða að átta
sig á því að þeir eru ekki með neinar
venjulegar manneskjur í höndunum.
Það er ekki hægt að segja sumum
fyrir verkum eins og smákrökkum.
Við erum ólík og höfum ólíkar þarfir.
Það passa ekki allir í sama básinn.
Afreksmenn eru afreksmenn af því að
þeireru skapstórir, að mínu mati. Við
erum ekki neinir meðaljónar. Það
þarf mannþekkjara til þess að vinna
með slfku fólki. En ég er alls ekki
alsaklaus hvað samskiptaörðugleik-
ana varðar."
— Er skýringa á frábærum árangri
þínum um þessar mundir jafnvel að
leita í öðru en breyttum áherslum í
sundi — t.d. jafnvægi í einkalífi,
ástarmálunum og svo framvegis?
„Ég er svakalega hamingjusöm og
það hefur margt breyst hjá mér að
undanförnu í einkalífinu. Kærastinn
„Það er mun auðveldara að verða góður í bringusundi en skriðsundi á
alþjóðamælikvarða." Bryndís lyftir lóðum í Gym 80.
minn heitir Gunnar Júlíusson og styð-
ur mig f gegnum súrt og sætt."
— Þú hefur æft í Þorlákshöfn, með
Sundfélagi Suðurnesja og núna
með Ægi — hvað kemur til?
„Ég er alltaf að leita eftir því sem
hentar mér best. Mig skortir vissan
bakgrunn af því ég byrjaði ekki f
sundi fyrr en 12 ára. Ég fór með
Magnúsi bróður til Keflavíkur og þar
byrjaði égað æfa, að sumu leyti, eins
og mér hentar. Þjálfari Ægis, Petteri
Laine, féllst síðan á mínar hugmyndir
og núna er ég að gera nákvæmlega
það sem ég vil. Sumum finnst hann
gefa mérof mikinn gaum en slíkt held
ég að sé eðlilegt af því ég er best."
— Þú ert mjög meðvituð um sjálfa
þig, veist hvað þú vilt, veist hvað
þú getur og þar fram eftir
götunum.
„Já, ég er það. Uppáhaldsmenn-
irnir mínir eru Jón Páll heitinn Sig-
marsson og Kristján Jóhannsson því
þeir hafa og höfðu hugrekki til þess
að segja að þeir væru bestir. Það
verður alltaf fjaðrafok í kringum mig
þvíéger hreinskilin og lætekki bjóða
mérallt. ísjónvarpsviðtali umdaginn
sagðist ég vera besti sundmaður
landsins og ég stend við það en auð-
vitað getur það breyst í einni svipan."
— Finnst þér þú hafa staðið í
skugga Ragnheiðar Runólfsdóttur?
„Ég var í svo mikilli lægð þegar
Ragga var upp á sitt besta að það var
ekki hægt að tala um neinn saman-
burð, hvað þá um að ég hefði staðið f
skugga hennar. Það var ekki hægt að
líkjaokkursaman. Ragga varaðvissu
leyti gerð að stjörnu í blöðunum og
okkur fannst hún ekki eiga allt skilið
26