Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 27
sem hún fékk. Vissulega var hún
mjög góð en Magnús bróðir var jafn
Röggu að stigum, sem sundmaður,
þegar hún var valinn Iþróttamaður
ársins. Þaðeruekki allirsemáttasigá
því að það er mun auðveldara að
vera góður í bringusundi en skriðs-
undi á alþjóðamælikvarða. Ef við
berum saman fyrstu 50 sundmennina
í bringusundi og skriðsundi þarf ég
að vera 2 sekúndum betri til þess að
„ÞAÐ AÐ KLÆÐAST
KORSELETTI OG
ÞÝSKUM
HERMANNAJAKKA
SÝNIR KANNSKI
ANDSTÆÐURNAR
SEM BÚA í MÉR"
ná sama sæti og hún. Ástæða þessa er
sú að þaðeru miklu færri sem keppa í
bringusundi en skriðsundi. Það er
erfiðast að nágóðum sætum í 50,100
og 200 m skriðsundi. Af þessum sök-
um er mjög eðlilegt að ég skuli ekki
komast á lista yfir 100 bestu afreks-
mennina í heiminum í skriðsundi.
Blaðamenn hafa enga hugmynd um
þetta. Þeir eru bara mataðir og trúa
öllu sem sagt er. Ásgeir Sigurvinsson
var kjörinn íþróttamaður ársins á
kostnað Bjarna Friðrikssonar árið
1984 af því að það eru miklu fleiri
sem stunda fótbolta en júdó. Það er
jafn ósanngjarnt að bera saman
skriðsund og bringusund og tvær
fyrrnefndar greinar."
— Finnst þér þú eiga mikið inni
sem íþróttamaður?
„Já, en ég hef ekki sett mér nein
markmið. Næsta stórmót er Evrópu-
meistaramótið og þar geri ég mitt
besta."
— Flvernig verðu tímanum utan
laugarinnar?
„Ég er mikið með 19 ára gamalli,
þroskaheftri stelpu — er svokallaður
stuðningsvinur en ég hef ekki fasta
vinnu sem stendur. Ég lyfti lóðum
samhliða sundinu og finnst það hafa
góð áhrif á mig."
— Ertu einfari?
„Nei, ég er það ekki en ég á auð-
velt með að æfa ein. Mér finnst
hvorutveggja gott — að hafa þjálfara
yfir mér og æfa ein þess á milli."
— Finnurðu aldrei fyrir baráttunni
milli kvenmannsins annars vegar og
keppnismanneskjunnar hins vegar?
„Jú, vissulega geri ég það. Það þarf
gríðarlegan sjálfsaga, hörku og ák-
veðni til þess að komast í fremstu röð
í íþróttum og þá skiptir ekki máli
hvort um karlmann eða kvenmann er
að ræða. Á hinn bóginn er ég kven-
maður með öllum eiginleikum sem
því fylgir. Það að klæðast í korseletti
og þýskum hermannajakka sýnir
kannski andstæðurnar sem búa í
manni."
„Það hvarflar stundum að manni að
maður missi ákveðin mannréttindi
við það að vera í landsliðinu."
Námsmannaþjónusta
Sp a risjóös in s
Kraftmikil og
kyngimögnuð
fjármálaþjónusta
fyrir alla
SPARISJOÐURINN
SPARJSJÓÐUR HAFNARFJARÐAR
27