Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Side 29

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Side 29
Myndapakkar með þekktu íþróttafólki hafa notið mikilla vinsælda meðal ungmenna landsins. Nú nýverið kom á markaðinn ís- lensk framleiðsla af þessum meiði. Er þar um að ræða samvinnu samtaka 1. deildar félaga í knattspyrnu og Nóa-Síríus sem hlot- ið hefur nafnið „Rauða spjaldið". Rauða spjaldið hefur að geyma myndir af leikmönnum Getraunadeildarinnar í knatt- spyrnu, þjálfurum liðanna og dómurum. Ennfremur er í pökkum Rauða spjaldsins að finna liðsmyndir og myndir af landsliðs- mönnum fslands. Alls verða myndirnar hátt í 300 talsins en hver pakki hefur að geyma ellefu myndir. Sölustaðir Rauða spjaldsins eru flestir söluturnar, sportvöruverslanir og bókabúð- ir og hafa aðstandendur þess reynt að stilla verði þess í hóf. Hver pakki kostar u.þ.b. 100 krónur. Einnig kemur svokölluð söfnunar- bók til með að verða á boðstólum en hún er upplögð fyrir þá sem safna myndum Rauða spjaldsins. Verð söfnunarbókarinnar er um 390 krónur. Ýmsar uppákomur verða í kringum Rauða spjaldið í sumar, þá bæði í DV og á Rás 2. Framleiðsla Rauða spjaldsins er alfarið innlend og er rétt að hvetja landann til að styrkja íslenska framleiðslu og framtak með því að fá sér sem flest Rauð spjöld í sumar. Jón Kristjánsson handknattleiksmaður Er það rétt að þú leikir ekki handknattleik framar? (Sú saga hefur gengið að Jón Kristjánsson, leikmaður Vals, hafi fengið þann úrskurð að hann gæti ekki spilað handbolta aftur.) „Nei, það er ekki rétt. Ég er hins vegar nýkominn úr aðgerð vegna brjóskloss í baki. Það er Ijóst að ég æfi ekkert í sumar en fer kannski aðeins að svamla í laugunum upp úr miðjum júlí. Svo á ég von á því að geta farið að skokka í september eða október og geta byrjað að æfa af full- um krafti í nóvember. Ég ætla því að vona að ég geti spilað með Val áfullu í vetur." 29

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.