Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 30

Íþróttablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 30
AHEMAVEIU Gail Devers hefur ekki sagt sitt síð- asta orð á hlaupabrautinni. SKONDIN STIGAGJÖF Mat íþróttafréttamanna á frammistöðu knattspyrnumanna í formi EMMA og STIGA hefur stundum vakið kátínu og undrun. Vissulega er enginn hægðarleikur að dæma frammistöðu rúmlega tuttugu leikmanna í 90 mínútna leik en samt mætti íþróttafrétta- mönnunum oft takast betur upp. Sumir leik- menn mega vart stíga inn á völl án þess að fá toppeinkunn á meðan aðrir ósérhlífnir leik- menn, sem vinna stöðugt fyrir liðsheildina og eru lausir við alla sýndarmennsku, njóta aldrei sannmælis. Eftir síst of stóran 4-1 sigur Vals á Fram í 1. deild á dögunum voru leikmenn liðanna metnir í DV með stigagjöf. Það sem vakti hvað mesta athygli var að varnarmenn Vals, sem áttu allir toppleik, hlutu samtals sömu stigatölu og varnarmenn Fram sem voru gjörsamlega úti á þekju. Þeir voru ósam- stilltir, „dekkuðu" illa og létu stela af sér boltanum hvað eftir annað. Framlínumenn Fram fengu hins vegar lítinn frið til að at- hafna sig því þeir voru fastir í klóm Valsara. Stiga- og einkunnagjöf eftir leiki er hins vegar ómissandi þótt menn verði seint sam- mála og þó að leikmenn hafi lýst frati á hana í skoðanakönnun bíða þeir yfirleitt spenntir eftir að lesa um það „hvernig þeir stóðu sig“. TEPOKINN OG ARSENAL Þótt ARSENAL sé bæði deildarbikar- meistari og bikarmeistari í Englandi eftir strangt keppnistímabil er til gamall brandari um afleitt gengi Arsenal í bikarkeppninni (cup) undanfarna áratugi. Hann hljóðar svona — á ensku: „What’s the difference between Arsenal and a tea bag? A tea bag stays in the cup longer!" Gail Devers fellur í 100 m grindahlaupi á síðustu Ólympíuleikum. - Gail Devers spretthlaupari STEFNDII ORKUML EN VARÐ ÓLYMPÍUMEISTARI Þegar GAIL DEVERS, gullverðlaunahafi í 100 metra hlaupi á síðustu Ólympíuleikum, var 17 ára og efnilegasti spretthlaupi Banda- ríkjanna hitti hún nýráðinn þjálfara kvenna- landsliðsins í frjálsíþróttum. Hún hrökklað- ist næstum því í burtu þegar hún horfði á hann öskra og láta öllum illum látum þar sem hann var að þjálfa. Þetta reyndist vera hinni eini sanni BOB KERSEE, sem gerði stjörnur úr Jackie Joyner og Florence Grif- fith. Kersee var ekkert að tvínóna við hlutina og tjáði sig um Devers árið 1984, skömmu eftir að hann sá hana æfa: „Hæfileikar Devers eru slíkir að á nokkrum árum breyt- ist hún úr háskólameistara í Ólympíumeist- ara. Hún mun slá bandaríska metið í 100 metra grindahlaupi, keppa á Ólympíuleik- unum 1988 en vinna gull á Ólympíuleikun- um fjórum árum síðar.“ Devers leit furðu lostin á Kersee þegar hann sagði þetta og var fullviss um að hann væri bilaður. En kappinn reyndist sannspár. Devers setti bandarískt met í 100 metra grindahlaupi árið 1988 (12,61 sek) og komst í Ólympíuliðið sama ár. Henni gekk illa á Ól- ympíuleikunum, fékk þunglyndiskast að þeim loknum og veiktist svo hastarlega. Næstu tvö árin var Devers svo illa haldin að foreldrar hann þurftu að bera hana milli herbergja. Hún missti næstum alla sjón, þyngdist og grenntist á víxl, skalf gríðarlega og fékk miklar blæðingar. Eftir ítarlegar rannsóknir fannst æxli í hluta skjaldkirtils- ins. Því var eytt með geislameðferð en um leið skaddaðist kirtillinn verulega. Lækn- arnir voru ráðþrota um hríð og var Devers vart hugað líf um sinn. Þegar læknismeð- ferðinni var breytt fékk hún hægan bata sem reyndist síðan stuðla að mesta „come back“ í sögu frjálsíþrótta. Aðeins ári síðar (1991) varð Devers í 2. sæti í 100 metra grindahlaupi á heimsmeist- aramótinu í Tókýó og 1992 varð hún Ólymp- íumeistari í 100 metra hlaupi. í 100 metra grindahlaupi hafði hún forystu fram að síð- ustu grind en táin fór ekki nógu vel yfir sem hafði þær afleiðingar að hún datt á marklínu — og varð í 5. sæti. A heimsmeistaramótinu innanhúss, í mars síðastliðnum, sigraði Devers í 60 metra hlaupi en heimsmetahaf- inn, Irina Privalova, varð önnur. Devers seg- ir þjálfunaraðferðir Kersee stórkostlegar. Fyrir 60 metra hlaupið í mars bjóst Devers við að Kersee myndi öskra hana í stuð en þess í stað skrifaði hann henni bréf og dró sig í hlé. I bréfinu skoraði hann á hana að hafa það mikið vald yfir tilfinningum sínum að það nægði henni til þess að komast í „Ólympíuhugarástand". Gail Devers, sem er 26 ára, dreymir um að kenna börnum í framtíðinni en hún hefur ekki sagt sitt síðasta orð á frjálsíþróttavellin- um. 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.