Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 31
SHAQ KLUKKAÐUR!
Hinn 136 kg körfuboltarisi, SHAQUILLE
O'NEIL, hefur margsinnis verið „klukkaður"
á ferlinum, ef svo má að orði komast. Þrisv-
ar hefur hann brotið körfuhringinn, tvívegis
mölvað spjaldið og tvisvar rifið allt „settið"
niður (eins og sjá má á myndinni). Þrátt fyrir
þessi ósköp er Shaq skelfilega góður körfu-
boltamaður og var kjörinn besti nýliðinn í
NBA boltanum í vetur. Hann skoraði að jafn-
aði 23,4 stig í leik, tók 13,9 fráköst að meðal-
tali og varði 3,5 skot. EN — hann var bara
ekki í nógu góðu liði til þess að komast í
úrslitakeppnina.
Shaq klukkaður!
CRUYFF ORÐINN AFI
Margir velta því fyrir sér hvort þjálfari
Barcelona, JOHAN CRUYFF, ætli að dvelja á
Spáni það sem eftir er ævinnar. Forseti
Barcelona hefur samið við Cruyff til næstu
tveggja ára og fær hann um 300 milljónir
króna fyrir samninginn. Skömmu áður en
samningurinn var undirritaður eignaðist
dóttir Cruyff og markvörður Barcelona, JES-
US ANGONY, lítinn strák sem var skírður
Jesjua. „Hann er með stóra fætur og hend-
ur,“ sagði stoltur afinn og brosti. „Hann mun
spila fótbolta með fótunum og grípa launin
sín með höndunum!"
Cruyff verður á Spáni.
AHEIMAVELLI
MISSIONIMPOSSIBLE!!!
Bandaríska landsliðið í knattspyrnu æfir
nú af kappi fyrir heimsmeistaramótið sem
verður haldið í Bandaríkjunum á næsta ári.
Tuttugu og tveir leikmenn hafa verið valdir
og komið fyrir í æfingabúðum — fram að
mótinu. Gerður hefur verið samningur við
þá alla og þeir, sem eiga fjölskyldu, búa með'
henni í sérstöku hverfi í æfingabúðunum
sem eru í Suður-Kaliforníu. Þar er gott veður
52 vikur á ári og því ákjósanlegt til æfinga
fyrir erfitt mót. Æft er tvisvar á dag og ekkert
annað kemst að fram að mótinu en knatt-
spyrna. Leikmenn fá á bilinu 1,5-3,6 milljónir
íslenskra króna meðan á æfingabúðunum
stendur.
Bandaríkjamaðurinn John Harkes
leikur með Sheffield Wednesday.
Um þessar mundir æfa tvær milljónir
leikmanna 19 ára og yngri með skólaliðum
víðs vegar um Bandaríkin og ætlar knatt-
spyrnusambandið að byggja upp frábært
landslið á skipulagðan hátt.
Dvölin í æfingabúðunum hefur þegar skil-
að sér því bandaríska landsliðið sigraði Eng-
lendinga 2-0 á dögunum og ef fram heldur
sem horfir gætu Bandaríkin orðið stórveldi í
knattspyrnuheiminum innan nokkurra ára.
Níu leikmenn landsliðsins leika í Evrópu og
þeirra á meðal er ERIC WYNALDA, leikmað-
ur Saarbrucken í Þýskalandi. Berti Vogs,
landsliðsþjálfari Þjóðverja, segir hann einn
skæðasta leikmann Bundesligunnar.
Phil Mickelson.
SÆTUR
MILUÓNAMÆRINGUR!
- Phil Mickelson er talinn
efnilegasti kylfingur
Bandaríkjanna
Hinn 23 ára gamli bandaríski kylfingur,
PHIL MICKELSON, er nýjasta goifstjarna
Bandaríkjanna en hann hefur samt aðeins
unnið eitt stórmót sem atvinnumaður.
Þegar hann lék sem áhugamaður tókst hon-
um, einum fjögurra kylfinga í hálfa öld, að
bera sigur úr býtum á móti fyrir atvinnu-
menn. Mickelson er ávallt með uppbrettan
kraga þegar hann leikur golf og með stíf-
greitt hárið.
Hann byrjaði að slá bolta aðeins eins og
hálfs árs gamall en þá hermdi hann eftir
pabba sínum. Fimm ára gamall tók hann
þátt í sínu fyrsta móti og var svo ákafur að
hann hljóp ávallt á milli þess sem hann sló.
Þótt hann sé rétthentur er hann vinstrihand-
ar spilari. Ástæða þess er sú að hann stóð
alltaf gegnt pabba sínum og lærði þannig að
spila. Hann varð sem sagt „spegilmynd" föð-
ur sfns þótt karlinn reyndi að fá hann til þess
að leika ,jeðlilega“. Þegar Mickelson var
yngri æfði hann sig á marbreytilegan hátt.
Hann las allt sem hann komst yfir um golf,
stóð á öðrum fæti þegar hann sló, sló úr alls
konar stellingum og aðstöðum til þess að
vera sem best undirbúinn fyrir stórmótin.
Hann þykír búa yfir ótrúlegri fjölhæfni og
skottækni og slær stundum bolta sem fæstir
ráða við.
Mickelson leikur með Yonex kylfum og
fær árlega 30 milljónir íslenskra króna fyrir
vikið og bónusa sem nema sömu upphæð.
Hann leikur með Etonic hanska og í Etonic
skóm og með Titleist boltum. Talið er að
hann fái um 300 milljónir á næstum 5 árum
fyrir framangreinda samninga. Mickelson er
bjartsýnn á góðan árangur í framtíðinni og
nú er bara að leggja nafn hans á minnið —
bíða og sjá!!!
31