Íþróttablaðið - 01.06.1993, Blaðsíða 32
Sigurður jónsson í leik með Sheffield Wednesday gegn Manchester United.
Bryan Robson, fyrrum landsliðsfyrirliði Englands, sækir að honum.
Texti: Lúðvík Örn Steinarsson.
Myndir: Kristján Einarsson, Hreinn
Hreinsson o.fl.
Það vissu fáir hvað framtíðin bæri
í skauti sér fyrir 10 ára, Ijóshærðan
hnokka frá Akranesi þegar hann
hampaði sínum fyrsta Islandsmeist-
aratitli í knattspyrnu fyrir sextán ár-
um. Hann hefur vart vitað það sjálf-
ur að í kjölfarið ætti eftir að fylgja
fjöldi landsleikja og atvinnu-
mennska — sem einkenndist af erf-
iðum meiðslum, gráti þurra tára og
andstreymi.
En nú er hnokkinn orðinn að
manni sem eflst hefur við hverja
raun og er staðráðnari nú en nokkru
sinni fyrr að standa sig á knatt-
spyrnuvellinum og sýna hvers hann
er megnugur.
Sigurður jónsson vann til fjölda
titla sem strákur á Akranesi. Hann
hlaut reyndar skjótan frama í fót-
boltanum og þegar hann var einung-
is fimmtán ára gamall, 1982, hóf
hann að leika með meistaraflokki
s <L
R
Sigurður Jónsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, gerir upp knattspyrnuferilinn
hingað til og segir frá grýttri leið sem hann
hefur þurft að fara til að klífa toppinn.
liðsins. Það ár urðu Skagamenn bik-
armeistarar og á eftir fylgdu tvö
gullaldarár hjá Skagamönnum þar
sem liðið vann tvöfalt — sigraði í
deild og bikar. í júlímánuði 1983
vann Sigurður einstakt afrek með ís-
lenskum landsliðum — afrek sem
seint verður leikið eftir. I þessum
eina og sama mánuði lék hann með
fjórum landsliðum, U-16 ára, U-18
ára, U-21 árs og A-landsliðinu og
32