Íþróttablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 44
síðan misst Elísabetu Sveinsdóttur
yfir í Stjörnuna ogÁsthildi Helgadótt-
ur í KR.
Á pappírnum ætti Breiðablik að
hafa sterkasta liðið. Styrkur Breiða-
bliksliðsins felst fyrst og fremst í leik-
reynslu og hæfilegri blöndu ungra og
gamalla leikmanna. Hópurinn hjá
þeim er mjög breiður, í honum eru
ungar stelpur sem sumar hverjar
leika enn með 2. flokki ogeinnig telst
sú ríka hefð, sem ríkir hjá Blikunum
fyrir að vinna titla, til styrkleika liðs-
ins.
Veikleikar Breiðabliksliðsins eru
fyrst og fremst varnarleikurinn. Þær
hafa ekki náð að finna rétta leikmenn
í vörnina og hafa verið að breyta tölu-
vert um leikmenn í þeim stöðum.
Breiðablik kemur eflaust til með
að berjast um Islandsmeistaratitilinn
en stelpurnar þurfa að hafa fyrir því
ætli þær sér að verða íslandsmeistar-
ar fjórða árið í röð."
Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrirliði landsliðsins, í leik gegn Svíum.
IA
„Skagastelpunum var ekki spáð
miklum frama fyrir íslandsmótið. Það
er þó Ijóst að liðið hefur mörgum
góðum leikmönnum á að skipa, eins
ogjónínu VíglundsdótturogMargréti
Cuðlaugsdóttur, og eins hefur endur-
koma Halldóru Gylfadótturog Ragn-
heiðar Jónasdóttur haft mikið að
segja fyrir liðið.
Styrkleiki þeirra felst kannski fyrst
og fremst í því að þær eru vanmetnar
og enginn býst við stórafrekum frá
þeim. Þær gætu því átt eftir að láta
spádóma lönd og leið og komið á
óvart í sumar. Liðið er jafnt og bar-
áttuglatt og gefur ekki eftir sinn hlut
fyrr en í fulla hnefana.
Veikleikar liðsins eru kannski fyrst
og fremst reynsluleysi ungu stelpn-
anna í liðinu. Skagastelpurnar koma
vafalítið til með að blanda sér í
toppbaráttuna og hafa áhrif á gang
mála í deildinni."
Valur
„Valsstúlkur urðu fyrir mikilli
blóðtöku þegar Hjördís og Helga
fóru yfir í Breiðablik. Á móti kemur
að Ragnheiður Víkingsdóttir er farin
að leika að nýju eftir barnsburð. Ef
hún kemst í sitt fyrra form á hún eftir
að styrkja liðið mjög mikið.
44
Það hefur viljað loða nokkuð við
Valsliðið að stelpurnar taki ekki
meira á í hverjum leik en þær þurfa.
Þær geta því unnið hvaða lið sem er
og einnig lent í vandræðum með
hvaða lið sem er. Þær eru mikið á
sama plani og andstæðingar þeirra
hverju sinni og það tel ég vera helsta
veikleika Valsstúlkna. Þær urðu
einnig fyrir mikilli blóðtöku þegar
helsti markaskorari þeirra síðustu ár,
Bryndís Valsdóttir, fótbrotnaði og
það munar um minna.
Styrkur þeirra felst fyrst og fremst í
seiglunni og reynslunni. Valsstelp-
urnar hafa sýnt það í sumar að þegar
þær koma vel stemmdar til leiks geta
þær virkilega bitið frá sér og er liðið
til alls líklegt í sumar."
Stjarnan
„Það er Ijóst að Stjarnan er með
mjög sterkt lið. Liðið varð fyrir því að
koma á óvart í fyrra, ef svo má að orði
komast, og á í erfiðleikum með að
fylgja því eftir núna. Stjörnustelpurn-
Helena Ólafsdóttir er ein styrkasta
stoð KR og margt bendir til að vest-
urbærjarliðið geti bampað titli á
haustmánuðum.