Íþróttablaðið - 01.06.1993, Síða 45
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hefur verið iðin við markaskorun fyrir KR.
ar eru þóekki einar um að hafa átt við
þetta vandamál að stríða — þetta er
alltaf að gerast bæði hér heima og
erlendis.
Þetta er hlutur sem þær verða að
yfirvinna og það er kannski helsti
höfuðverkur þeirra. Finni þær sig vel
eru Stjörnustelpurnartil alls Iíklegar á
íslandsmótinu. Stjarnan hefur mörg-
um sterkum leikmönnum á að skipa.
Þar má nefna Auði Skúladóttur, einn
af sterkustu varnarmönnum landsins,
Ásgerði Ingibergsdóttur og Laufeyju
Sigurðardóttur á miðjunni og Guð-
nýju Guðnadóttur íframlínunni. I lið-
inu eru einnig efnilegar stelpur eins
og Gréta Guðnadóttir og Heiða Sig-
urbergsdóttir.
Styrkur þeirra felst í því að þær eru
með jafnt lið. Nánast í hverri stöðu í
liðinu eru leikmenn sem geta tekið af
skarið. Einnig geta þær náð upp mik-
illi stemmningu innan liðsins sem
getur fleytt þeim langt."
KR
„KR-ingar hafa alla burði til að ná
langt í sumar og eru með virkilega
gott lið. Ég hef ekki trú á öðru en að
þær verði í toppbaráttunni og ef þær
ná að fylgja góðri byrjun á íslands-
mótinu eru þærtil alls líklegar. Ef égá
að segja eins og er held ég að KR-
ingar þurfi að bíða lengur eftir því að
karlarnir verði íslandsmeistarar en
stelpurnar. Hvort það verða sömu
hátíðarhöld, sem slegið verður upp
fyrir stelpurnar og strákana, skal ég
þó ekki segja til um.
Ásthildur Helgadóttir og Kristrún
Heimisdóttir hafa leikið vel í byrjun
móts. Einnig styrktist liðið við komu
Sigurlínar Jónsdóttur, Ásdísar Þor-
geirsdóttur og endurkomu Guðlaug-
ar og Helenu frá Akranesi. Varnar-
leikurinn gæti aftur á móti orðið
vandamál hjá KR-ingum ef þær lenda
á móti fljótum framherjum. Með
skynsömum leik eiga þær þó að geta
yfirstigið það vandamál og hafa
reyndar sýnt það í fyrstu umferðum
íslandsmótsins.
KR-inga hefur líka vantað leik-
mann sem tekur af skarið þegar á
ríður — þ.e. leikmann sem breytir
jöfnum leik í sigur. Þá er ég að tala
um leikmann sem er að skora mörk í
eitt-núll leikjum en ekki sex mörk í
tíu marka sigri. Finni þær þennan
leikmann gæti þetta ár orðið KR-ár."
Þróttur Neskaupsstað
„Þaðer Ijóst að Þrótturbýr að mjög
sterku vopni sem er heimavöllur liðs-
ins. Þettaerliðsem gefstekki uppfyrr
en í fulla hnefana og það er án nokk-
urs vafa helsti styrkur liðsins.
Stelpurnar í Þrótti hafa líka sýnt
það í upphafi mótsins að þær eru til
alls líklegará útivöllum og það kæmi
mér ekki á óvart þótt liðið myndi
enda einhvers staðar um miðja deild.
Þrótturum bættist liðsstyrkur í Sirrý
Haraldsdóttur sem fór austur úr Val
en liðið missti annan af tveimur er-
lendu leikmönnunum sem léku með
liðinu í fyrra.
Ég geri mérekki fyllilega grein fyrir
þvíhvar veikleikarnir liggja hjá Þrótt-
urum — ég hef ekki séð nægilega
mikið til liðsins til þess að vera dóm-
bær á það. Aftur á móti er viljinn til
að standa sig greinilega til staðar og
þær eiga vafalítið eftir að gera góða
hluti í framtíðinni."
ÍBA
„í íþróttabandalagi Akureyrar er
slegið saman tveimur kvennaliðum
— KA og Þór. Þau lið hafa verið að
rokka á milli deilda hin síðari ár. Ég
geri ekki ráð fyrir því að jafn stórt
bæjarfélag og Akureyri eigi í vand-
ræðum með að tefla fram einu fram-
bærilegu knattspyrnuliði.
Vandamál þeirra verða þó að telj-
ast þau að verið er að slá þarna sam-
an stórum hóp í eitt lið. Stelpurnar
eiga eftir að læra betur hver inn á
aðra, enda sýna úrslitin í upphafi
mótsins það að þetta lið er óútreikn-
anlegt.
Ég held þó að þegar á sumarið líð-
ur og I iðið nær að slípa sig saman eigi
það eftir að gera ágæta hluti. Styrkur
liðsins hlýtur fyrst ogfremstað liggja f
því að í liðinu hlýtur að vera þokka-
leg breidd þar sem um samsteypu
tveggja liða er að ræða. Einnig hjálp-
ar það til hjá þeim að væntingarnar
eru kannski ekki miklarfyrirsumarið,
þannig að þær hafa allt að vinna.
Þessar stelpur verða að bíta í sama
súra epli og önnur norðlensk lið að
æfingaaðstaðan er ekki komin í gott
lag fyrr en seint á vorin þannig að
erfitt er að fínpússa liðið fyrr en út í
íslandsmót er komið."
45