Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Þær Brynhildur Guðmunds-dóttir, hótelstjóri á Icelandair hótel Reykjavík Natura
og Reykjavík Konsúlat Hótel,
og Guðrún Björk Geirsdóttir,
veitingastjóri á VOX Brasserie,
sem er staðsett á Hilton Reykja-
vik Nordica, eru sammála um að
aðventan í ár einkennist af smærri
veislum í huggulegum rýmum
veitingahúsanna. Eins er aukið
framboð af hátíðarveislumat til að
taka heim sem og eftirspurn eftir
gjafabréfum frá fyrirtækjum til
starfsmanna.
„Við höfum reynt að bregðast
hratt og örugglega við breyttum
aðstæðum og boðið upp á brunch-
inn okkar í take-away og nú síðast
elda saman með gestum okkar þar
sem þau klára matseldina heima.
En við höfum verið að elda dýrind-
is Wellington og okkar víðfrægu
skelfisksúpu með gestum okkar.
Matreiðslumeistarar VOX undir-
búa herlegheitin svo einungis
er eftir einföld eldamennska og
gestgjafar þurfa ekki að eyða dýr-
mætum samverustundum á haus
í eldhúsinu. Wellington-veisla er
einnig tilvalin fyrir aðfangadag
og gamlársdag þar sem við fáum
tækifæri til að setja upp svuntuna
og hræra aðeins í pottum en getum
gert f leira með fjölskyldunni yfir
daginn,“ segir Guðrún.
Eftirspurn eftir
minni veislum
„Í ár er eftirspurn eftir aðeins
minni boðum bæði fyrir fjöl-
skyldur, vinahópa og vinnustaði.
En fjölbreytt rými sem við höfum
upp á að bjóða henta einmitt
slíkum veislum mjög vel. VOX
Home er til að mynda einstaklega
skemmtilegt sem eins og nafnið
ber með sér minnir á borðstofu í
heimahúsi. Fólk vil njóta samvista
við hvert annað í stað þess að gest-
gjafar standi á haus í undirbúningi
og uppvaski.“ segir Guðrún.
„Það er líka gleðiefni að vera
með Kampavínsupplifun á
aðventunni en síðustu kampa-
vínsdagar á VOX í samstarfi við
Kampavínsfjélagið voru einstak-
lega vel heppnaðir, enda allt betra
með kampavíni. Leikurinn verður
endurtekinn núna í desember
með aðeins breyttu sniði þar sem í
boði verða fleiri dagsetningar. Þar
gefst tækifæri á að snæða glæsi-
legan fjögurra rétta matseðil sem
sérstaklega hefur verið paraður
við kampavínið frá Drappier,
sem hefur á undanförnum árum
notið aukinna vinsælda meðal
Íslendinga.“
Brynhildur Guðmundsdóttir,
hótelstjóri á Icelandair hótel
Reykjavík Natura sem hýsir
veitingastaðinn Satt, tekur í sama
streng og segist finna fyrir því í
samtölum við gesti að þau njóti
góðs af því trausti sem byggt
hefur verið upp í gegnum árin
með áreiðanleika, mikilli þjálfun
starfsfólks og samræmi í þeirri
fyrsta flokks vöru og þjónustu sem
boðið er upp á.
Veitingastaðir Icelandair hótela
framfylgja ströngum hreinlætis-
stöðlum í hvívetna og í samræmi
við tilmæli sóttvarnayfirvalda. En
Brynhildur segir að á óvissutímum
hafi það reynst mikil áskorun fyrir
veitingastaði að skipuleggja sig
fram í tímann þegar ekkert er eins
og venjulega. Margir hafa valið þá
leið að gefa gjafabréf í veislu sem
á að njóta síðar þegar lífið færist
í eðlilegra horf, en aðrir horfa til
minni veisluhalda bæði á staðnum
og heima.
„Við erum virkilega spennt fyrir
að bjóða upp á þá nýjung að fólk
geti sótt til okkar jólaboðið sitt og
slegið upp ljúffengri veislu með
lítilli fyrirhöfn,“ segir hún og bætir
við að þau séu engir nýgræðingar
í veisluþjónustu og að matreiðslu-
menn Satt hafi nú sem áður lagt
mikla vinnu í jólamatseðlana, þar
sem góður matur og notaleg sam-
vera sé miðpunktur tilverunnar
þessi jólin.
Hátíðlegur kvöldverður
eða jólabröns heima
„Þetta árið verður bæði hægt
að sækja jólalegan kvöldverð
og bröns að hætti Satt. Þetta er
ótrúlega einfalt. Þú verður bara
að muna að panta fyrir klukkan
þrjú daginn áður og svo færðu alla
rétti fulleldaða en þarft mögulega
aðeins að skerpa á súpu og sósu,“
segir Brynhildur.
„Bæði verður hægt að kaupa
staka jólarétti eins og purusteik og
hnetusteik eða villigæsasúpu sem
og fjögurra rétta hátíðarkvöld-
verð. Jólabrönsinn virkar þannig
að við erum með ákveðinn grunn
og hver og einn velur síðan þá rétti
sem passa viðkomandi. Hvort sem
er heldur klassíska bröns-rétti
eða jólalega rétti. En það er mikil
ánægja með þetta einstaklings-
bundna val hjá gestum okkar.“
Brynhildur nefnir einnig að
það sé gaman að taka á móti fólki
af landsbyggðinni sem komi í
borgarferð til Reykjavíkur að
kíkja á jólin þar og leyfa sér aðeins
í mat og drykk. „Kollegar mínir á
Icelandair hótel Héraði og Akur-
eyri finna einnig fyrir aukinni
eftirspurn eftir svokölluðum
aðventuferðum.“
Aðspurð af hverju hún telji fólk
vera svona ferðaglatt svarar hún:
„Fólk vil hafa eitthvað að hlakka
til, sjá fyrir sér skemmtilega tíma-
fram undan. Meðal annars þess
vegna eru haustferðir Íslendinga
svona vinsælar. Við viljum hafa
eitthvað sem brýtur upp skamm-
degið.“
Þær stöllur eru sammála um að
þrátt fyrir erfiða stöðu meirihluta
árs sé full ástæða til bjartsýni á
nýju ári. „Við óskum öllum gleði-
legra jóla og hvetjum Íslendinga
til að gleðjast yfir góðum mat og
drykk á aðventunni hvort heldur
sem er á veitingastöðum okkar
eða hjá kollegum okkar í veitinga-
húsabransanum. Þannig komumst
við saman í gegnum þetta og
tryggjum áfram úrval gæða veit-
ingastaða á landinu okkar góða.“
Kampavínsseðillinn á VOX er einstök upplifun. Kampavínsdagar á VOX í samstarfi við Kampavínsfjelagið verða endurteknir núna í desember.
Matreiðslumeistarar VOX elda Wellington með þér alla aðventuna.
Hátíðlegur kvöldverður eða jólabröns að hætti Satt heima í stofu.
VOX Home minnir á borðstofu og er fullkomið fyrir minni veislur.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R