Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 44
Berglindi er margt til lista lagt,
ekki bara þegar bakstur og matar-
gerð er annars vegar heldur öllu
því sem henni dettur í hug að taka
sér fyrir hendur. „Ég hef brasað í
eldhúsinu síðan ég man eftir mér
og byrjaði með www.gotteri.is
sem lítið áhugablogg um kökur og
kökuskreytingar í hjáverkum þar
sem ég er forfallinn áhugabakari.
Með tíð og tíma þróaðist bloggið
yfir í almennt matarblogg og nú
er það matar- og ævintýrablogg
þar sem allt snýst um mat, kökur,
matarupplifun, veislur, ferðalög og
ýmiss konar ævintýri. Það má því
í rauninni segja að ég hafi sam-
einað ástríðuna og áhugamálin á
einum stað þar sem ég leyfi fólki
að fylgjast með og fá hugmyndir,“
segir hún.
Berglind er með meistaragráðu
í verkefnastjórnun frá HR og
hefur unnið við mannauðsmál
og verkefnastýringu í um 20 ár og
ávallt verið með bloggið á hliðar-
línunni. Fyrir rúmu ári ákvað hún
hins vegar að gefa því hug sinn
allan og prófa að vinna aðeins fyrir
sjálfa sig.
Þrjár bækur
„Úr varð að ég var að klára að
skrifa mína þriðju matreiðslubók,
Saumaklúbbinn, og á því ferðalagi
lærði ég allt til þess að geta séð sjálf
um bókina frá A-Ö, uppskriftagerð,
ljósmyndir, hönnun & umbrot
ásamt útgáfu. Þetta verkefni er því
búið að fara með mig í allar áttir og
kenna mér ansi margt nýtt og svo
skulum við ekki gleyma markaðs-
setningunni sem nú stendur yfir.
Ég hef sjálf þurft að sjá um slíkt
og verður að segjast að það sé líka
búinn að vera góður skóli, sett var
upp netverslun á heimasíðunni
minni og ýmis tæki og tól nýtt til
þess að geta kynnt bókina fyrir
sem flestum.“
Saumaklúbburinn er alhliða
uppskriftabók með fjölbreyttum
uppskriftum. Hún er yfir 240 blað-
síður og uppskriftirnar eru yfir
140 talsins! Efnið hefði klárlega
verið nægilegt fyrir 2–3 bækur
svo lesendur ættu að hafa úr nægu
að velja. Það eru uppskriftir að
alls kyns salötum, ostagóðgæti,
brauðréttum, snittum, aðalréttum,
smáréttum, kökum og eftir-
réttum ásamt því sem tíu fullbúin
heimboð eru sett saman frá A-Ö
en vinkonur Berglindar tóku þátt í
þeim kafla bókarinnar.
Guðdómleg súkkulaðikaka
Á jólakakan sem þú bakaðir fyrir
lesendur Fréttablaðsins einhverja
sögu?
„Ég reyni alltaf að gera eina nýja
köku fyrir hver jól/áramót þar
sem það er svo gaman að koma
með nýjungar. Súkkulaðikökur
eru alltaf vinsælar og gaman að
koma með nýstárlegar útfærslur af
slíkum. Ég hugsa að ég gæti bakað
endalaust af súkkulaðikökum með
mismunandi kremi eða fyllingum.
Þessi hér er dásamleg, botnarnir
með sterku súkkulaðibragði sem
kaffið nær fram í þeim, blautir
í sér og mokkakremið hreint út
sagt guðdómlegt og mikilvægt að
hafa nóg af því á milli botnanna
og á toppnum, því lítið fer fyrir
því á hliðunum þegar maður vill
ná fram þessu útliti. Sykraðar rós-
maríngreinar eru síðan alveg til
að toppa annars náttúrulegt útlit
kökunnar og gera hana svo hátíð-
lega og fallega.“
Ilmurinn af greninu og jólaljósin
Aðspurð svarar Berglind að það
sé mismikið haft fyrir jólunum á
hennar heimili. „Það er bara mis-
jafnt og fer svolítið eftir þeim tíma
sem við höfum til undirbúnings
hverju sinni. Jólin koma alveg,
hvort sem allt er hreint, búið að
skreyta hverja einustu hillu eða
ekki. Ef ég hef tíma nostra ég meira
við bakstur og skreytingar, en ef ég
hef hann ekki er ég ekki að stressa
mig óþarflega heldur bara kaupi
tilbúið deig, skelli á plötu til að fá
góða lykt í húsið og dimmi aðeins
ljósin og fer bara í hreingerningar
þegar sólin fer að skína.“ Berglind
er á því að jólin séu einn besti tími
ársins og það sé margt skemmtilegt
við þau. „Jólaljósin, grenilyktin,
kertaljósin, kósí fjölskyldustund-
irnar, spil, púsl, góður matur, og já,
var ég búin að segja góður matur.“
Elskar jólin og glassúrinn úti
þegar hann fer út um allt
„Ég elska jólin og allt dúllerí í kring-
um þau. Jólin eru líka svolítið tími
barnanna, finnst mér, svo gaman
að sjá spenninginn hjá stelpunum
mínum þegar jólasveinninn hefur
komið við í glugganum með eitt-
hvað í skóinn, þegar allt fer út um
allt í glassúr við piparkökusk-
reytingar, allir á náttfötunum fram
eftir degi, jafnvel allan daginn, og
ég gæti eflaust talið endalaust upp.
Ég verð samt að segja að jólabarnið
í mér er ánægðast ef það snjóar í
kringum hátíðirnar, það verður
bara allt svo hvítt, bjart og fallegt
og síðan er auðvitað dásamlegt
að komast út í snjóinn að leika sér
inni á milli þess sem maður liggur á
meltunni eða dúllast inni. Ég elska
að gera risa snjókarla, snjóhús og
allt þar á milli og get hamast úti
með stelpunum mínum tímunum
saman í slíku og mér finnst mikil-
vægt að varðveita barnið í sér á
slíkum stundum.“
Heim með risastóran
einhyrningakút
Að sögn Berglindar eru ekki
margar fastar jólahefðir sem fjöl-
skyldan heldur í fyrir utan það að
maturinn á aðfangadag er borinn
á borð þegar kirkjuklukkurnar
hringja inn jólin klukkan sex.
„Við bökum og skreytum ávallt
piparkökur, gerum aðventukrans
en annars erum við bara nokkuð
sveigjanleg með annað.“ Það hefur
oft heillað að vera erlendis yfir
jólin. „Við höfum verið erlendis yfir
jól og áramót nokkrum sinnum og
þá fjúka allar hefðir. Fyrir tveimur
árum vorum við til dæmis með
vinum okkar í Taílandi yfir jólin og
enginn íslenskur matur né pakkar
teknir með. Við fengum taílenskan
kokk til þess að elda hátíðlega taí-
lenska veislu á meðan við fórum öll
á markaðinn með 300 baht, sem er
um 1.000 krónur íslenskar, á mann
þar sem við fundum jólagjöf fyrir
leynivininn okkar. Við vorum 15
talsins og höfðum sett öll nöfnin
í pott og dregið eitt nafn sem við
ein vissum hver var og þurftum
að finna gjöf fyrir. Almáttugur
minn hvað það var mikið pískrað
og hlegið í þessari markaðsferð,
krakkarnir voru þvílíkt spennt að
velja gjafir og tölum nú ekki um
þá aðila sem þurftu að koma sér
heim með risastóran uppblásinn
einhyrningakút eða annað slíkt og
síðan var ansi skrautleg innpökkun
á þessum gjöfum þar sem lítið var
um jólapappírinn,“ segir Berglind
og hlær dátt. „Eftir matinn áttum
við síðan kósístund og fundum út
hver leynivinurinn okkar var og
krakkarnir þurftu sko sannarlega
ekkert meira og elskuðu þessi jól.“
Jólasúkkulaðiterta með
mokkakremi
Kökubotnar
225 g hveiti
330 g sykur
80 g Cadbury bökunarkakó
2 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 egg
2 tsk. vanilludropar
80 ml matarolía
220 ml súrmjólk
200 ml sterkt, heitt, uppáhellt Java
Mokka kaffi frá Te & kaffi
Hitið ofninn í 170 °C. Smyrjið 3x15
kökuform vel með smjöri og sigtið
bökunarkakó yfir, klippið einnig
bökunarpappír í botninn. Setjið
öll þurrefnin í hrærivélarskálina
(sigtið bökunarkakóið saman
við). Setjið næst egg, vanilludropa,
matarolíu og súrmjólk saman í
skál og pískið saman. Hellið heitu
kaffinu saman við eggjablönduna
í mjórri bunu og hrærið vel í á
meðan. Hellið að lokum allri
eggjablöndunni í hrærivélarskál-
ina, blandið saman við þurrefnin
og skafið niður þar til þunnt og
slétt deig hefur myndast. Skiptið
jafnt á milli formanna og bakið í
30–35 mínútur, eða þar til prjónn
kemur út með smá kökumylsnu á
endanum en ekki blautu deigi.
Mokkakrem
190 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
2 tsk. vanilludropar
5 msk. sterkt uppáhellt Java
Mokka kaffi frá Te & kaffi (kælt)
Hrærið öllu saman við meðalháan
hraða í nokkrar mínútur þar til
létt, ljósbrúnt krem hefur mynd-
ast, skafið niður á milli.
Jólatré
2–3 pokar af rósmaríngreinum
120 ml vatn
100 g sykur (+ um 200 til að velta
upp úr)
Sjóðið saman sykur og vatn við
meðalháan hita þar til sykurinn
er uppleystur. Veltið rósmarín-
greinum upp úr sykurleginum,
hristið eins mikið af vökvanum af
og þið getið og leggið á bökunar-
pappír í um klukkustund. Hellið
þá um 200 g af sykri í skál og veltið
sykurlegnum greinunum upp úr
sykrinum og hristið af eins og
þið getið, leggið á nýjan bök-
unarpappír og leyfið að þorna í að
minnsta kosti klukkustund áður
en þið skreytið kökuna með þeim.
Samsetning
Setjið kökubotn á disk og smyrjið
um 1 cm þykku lagi af kremi ofan
á hann. Leggið næsta botn ofan á
og endurtakið leikinn. Að lokum
fer þriðji botninn ofan á og kakan
er hjúpuð þunnt á hliðunum
og með um 1 cm þykku lagi á
toppnum.Sléttið næst toppinn
og skafið síðan vel af hliðunum
með rökum spaða til að fá „naked
cake“ útlit á kökuna. Það fer smá
krem aftur upp fyrir kantinn en
það gefur kökunni smá „rustic“
útlit svo endilega leyfið því bara
að vera þannig í stað þess að slétta
alveg.Kælið kökuna svo kremið
stífni vel og skreytið síðan með
rósmarín jólatrjám og bindið
brúnan bandspotta um kökuna
miðja.
Nýstárleg súkkulaðikaka með jólaívafi
Berglind er mikið jólabarn og hefur gaman af því að baka og skreyta. Hún
hefur líka stundum breytt til og verið erlendis um jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/DIDDI
Glæsileg súkkulaðikaka sem Berglind bakaði.
Berglind Hreiðarsdóttir, einn af
vinsælustu matar- og sælkera-
bloggurum landsins, býður upp
á nýstárlega súkkulaðiköku með
jólaívafi. Hún er að gefa út þriðju
uppskriftabókina.
Sjöfn Þórðardóttir
blóðgjafirnar á árinu
24. nóvember 2020 JÓL 2020 22 FRÉTTABLAÐIÐ