Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 44

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 44
Berglindi er margt til lista lagt, ekki bara þegar bakstur og matar- gerð er annars vegar heldur öllu því sem henni dettur í hug að taka sér fyrir hendur. „Ég hef brasað í eldhúsinu síðan ég man eftir mér og byrjaði með www.gotteri.is sem lítið áhugablogg um kökur og kökuskreytingar í hjáverkum þar sem ég er forfallinn áhugabakari. Með tíð og tíma þróaðist bloggið yfir í almennt matarblogg og nú er það matar- og ævintýrablogg þar sem allt snýst um mat, kökur, matarupplifun, veislur, ferðalög og ýmiss konar ævintýri. Það má því í rauninni segja að ég hafi sam- einað ástríðuna og áhugamálin á einum stað þar sem ég leyfi fólki að fylgjast með og fá hugmyndir,“ segir hún. Berglind er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá HR og hefur unnið við mannauðsmál og verkefnastýringu í um 20 ár og ávallt verið með bloggið á hliðar- línunni. Fyrir rúmu ári ákvað hún hins vegar að gefa því hug sinn allan og prófa að vinna aðeins fyrir sjálfa sig. Þrjár bækur „Úr varð að ég var að klára að skrifa mína þriðju matreiðslubók, Saumaklúbbinn, og á því ferðalagi lærði ég allt til þess að geta séð sjálf um bókina frá A-Ö, uppskriftagerð, ljósmyndir, hönnun & umbrot ásamt útgáfu. Þetta verkefni er því búið að fara með mig í allar áttir og kenna mér ansi margt nýtt og svo skulum við ekki gleyma markaðs- setningunni sem nú stendur yfir. Ég hef sjálf þurft að sjá um slíkt og verður að segjast að það sé líka búinn að vera góður skóli, sett var upp netverslun á heimasíðunni minni og ýmis tæki og tól nýtt til þess að geta kynnt bókina fyrir sem flestum.“ Saumaklúbburinn er alhliða uppskriftabók með fjölbreyttum uppskriftum. Hún er yfir 240 blað- síður og uppskriftirnar eru yfir 140 talsins! Efnið hefði klárlega verið nægilegt fyrir 2–3 bækur svo lesendur ættu að hafa úr nægu að velja. Það eru uppskriftir að alls kyns salötum, ostagóðgæti, brauðréttum, snittum, aðalréttum, smáréttum, kökum og eftir- réttum ásamt því sem tíu fullbúin heimboð eru sett saman frá A-Ö en vinkonur Berglindar tóku þátt í þeim kafla bókarinnar. Guðdómleg súkkulaðikaka Á jólakakan sem þú bakaðir fyrir lesendur Fréttablaðsins einhverja sögu? „Ég reyni alltaf að gera eina nýja köku fyrir hver jól/áramót þar sem það er svo gaman að koma með nýjungar. Súkkulaðikökur eru alltaf vinsælar og gaman að koma með nýstárlegar útfærslur af slíkum. Ég hugsa að ég gæti bakað endalaust af súkkulaðikökum með mismunandi kremi eða fyllingum. Þessi hér er dásamleg, botnarnir með sterku súkkulaðibragði sem kaffið nær fram í þeim, blautir í sér og mokkakremið hreint út sagt guðdómlegt og mikilvægt að hafa nóg af því á milli botnanna og á toppnum, því lítið fer fyrir því á hliðunum þegar maður vill ná fram þessu útliti. Sykraðar rós- maríngreinar eru síðan alveg til að toppa annars náttúrulegt útlit kökunnar og gera hana svo hátíð- lega og fallega.“ Ilmurinn af greninu og jólaljósin Aðspurð svarar Berglind að það sé mismikið haft fyrir jólunum á hennar heimili. „Það er bara mis- jafnt og fer svolítið eftir þeim tíma sem við höfum til undirbúnings hverju sinni. Jólin koma alveg, hvort sem allt er hreint, búið að skreyta hverja einustu hillu eða ekki. Ef ég hef tíma nostra ég meira við bakstur og skreytingar, en ef ég hef hann ekki er ég ekki að stressa mig óþarflega heldur bara kaupi tilbúið deig, skelli á plötu til að fá góða lykt í húsið og dimmi aðeins ljósin og fer bara í hreingerningar þegar sólin fer að skína.“ Berglind er á því að jólin séu einn besti tími ársins og það sé margt skemmtilegt við þau. „Jólaljósin, grenilyktin, kertaljósin, kósí fjölskyldustund- irnar, spil, púsl, góður matur, og já, var ég búin að segja góður matur.“ Elskar jólin og glassúrinn úti þegar hann fer út um allt „Ég elska jólin og allt dúllerí í kring- um þau. Jólin eru líka svolítið tími barnanna, finnst mér, svo gaman að sjá spenninginn hjá stelpunum mínum þegar jólasveinninn hefur komið við í glugganum með eitt- hvað í skóinn, þegar allt fer út um allt í glassúr við piparkökusk- reytingar, allir á náttfötunum fram eftir degi, jafnvel allan daginn, og ég gæti eflaust talið endalaust upp. Ég verð samt að segja að jólabarnið í mér er ánægðast ef það snjóar í kringum hátíðirnar, það verður bara allt svo hvítt, bjart og fallegt og síðan er auðvitað dásamlegt að komast út í snjóinn að leika sér inni á milli þess sem maður liggur á meltunni eða dúllast inni. Ég elska að gera risa snjókarla, snjóhús og allt þar á milli og get hamast úti með stelpunum mínum tímunum saman í slíku og mér finnst mikil- vægt að varðveita barnið í sér á slíkum stundum.“ Heim með risastóran einhyrningakút Að sögn Berglindar eru ekki margar fastar jólahefðir sem fjöl- skyldan heldur í fyrir utan það að maturinn á aðfangadag er borinn á borð þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan sex. „Við bökum og skreytum ávallt piparkökur, gerum aðventukrans en annars erum við bara nokkuð sveigjanleg með annað.“ Það hefur oft heillað að vera erlendis yfir jólin. „Við höfum verið erlendis yfir jól og áramót nokkrum sinnum og þá fjúka allar hefðir. Fyrir tveimur árum vorum við til dæmis með vinum okkar í Taílandi yfir jólin og enginn íslenskur matur né pakkar teknir með. Við fengum taílenskan kokk til þess að elda hátíðlega taí- lenska veislu á meðan við fórum öll á markaðinn með 300 baht, sem er um 1.000 krónur íslenskar, á mann þar sem við fundum jólagjöf fyrir leynivininn okkar. Við vorum 15 talsins og höfðum sett öll nöfnin í pott og dregið eitt nafn sem við ein vissum hver var og þurftum að finna gjöf fyrir. Almáttugur minn hvað það var mikið pískrað og hlegið í þessari markaðsferð, krakkarnir voru þvílíkt spennt að velja gjafir og tölum nú ekki um þá aðila sem þurftu að koma sér heim með risastóran uppblásinn einhyrningakút eða annað slíkt og síðan var ansi skrautleg innpökkun á þessum gjöfum þar sem lítið var um jólapappírinn,“ segir Berglind og hlær dátt. „Eftir matinn áttum við síðan kósístund og fundum út hver leynivinurinn okkar var og krakkarnir þurftu sko sannarlega ekkert meira og elskuðu þessi jól.“ Jólasúkkulaðiterta með mokkakremi Kökubotnar 225 g hveiti 330 g sykur 80 g Cadbury bökunarkakó 2 tsk. matarsódi 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 2 egg 2 tsk. vanilludropar 80 ml matarolía 220 ml súrmjólk 200 ml sterkt, heitt, uppáhellt Java Mokka kaffi frá Te & kaffi Hitið ofninn í 170 °C. Smyrjið 3x15 kökuform vel með smjöri og sigtið bökunarkakó yfir, klippið einnig bökunarpappír í botninn. Setjið öll þurrefnin í hrærivélarskálina (sigtið bökunarkakóið saman við). Setjið næst egg, vanilludropa, matarolíu og súrmjólk saman í skál og pískið saman. Hellið heitu kaffinu saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið vel í á meðan. Hellið að lokum allri eggjablöndunni í hrærivélarskál- ina, blandið saman við þurrefnin og skafið niður þar til þunnt og slétt deig hefur myndast. Skiptið jafnt á milli formanna og bakið í 30–35 mínútur, eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi. Mokkakrem 190 g smjör við stofuhita 500 g flórsykur 2 tsk. vanilludropar 5 msk. sterkt uppáhellt Java Mokka kaffi frá Te & kaffi (kælt) Hrærið öllu saman við meðalháan hraða í nokkrar mínútur þar til létt, ljósbrúnt krem hefur mynd- ast, skafið niður á milli. Jólatré 2–3 pokar af rósmaríngreinum 120 ml vatn 100 g sykur (+ um 200 til að velta upp úr) Sjóðið saman sykur og vatn við meðalháan hita þar til sykurinn er uppleystur. Veltið rósmarín- greinum upp úr sykurleginum, hristið eins mikið af vökvanum af og þið getið og leggið á bökunar- pappír í um klukkustund. Hellið þá um 200 g af sykri í skál og veltið sykurlegnum greinunum upp úr sykrinum og hristið af eins og þið getið, leggið á nýjan bök- unarpappír og leyfið að þorna í að minnsta kosti klukkustund áður en þið skreytið kökuna með þeim. Samsetning Setjið kökubotn á disk og smyrjið um 1 cm þykku lagi af kremi ofan á hann. Leggið næsta botn ofan á og endurtakið leikinn. Að lokum fer þriðji botninn ofan á og kakan er hjúpuð þunnt á hliðunum og með um 1 cm þykku lagi á toppnum.Sléttið næst toppinn og skafið síðan vel af hliðunum með rökum spaða til að fá „naked cake“ útlit á kökuna. Það fer smá krem aftur upp fyrir kantinn en það gefur kökunni smá „rustic“ útlit svo endilega leyfið því bara að vera þannig í stað þess að slétta alveg.Kælið kökuna svo kremið stífni vel og skreytið síðan með rósmarín jólatrjám og bindið brúnan bandspotta um kökuna miðja. Nýstárleg súkkulaðikaka með jólaívafi Berglind er mikið jólabarn og hefur gaman af því að baka og skreyta. Hún hefur líka stundum breytt til og verið erlendis um jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/DIDDI Glæsileg súkkulaðikaka sem Berglind bakaði. Berglind Hreiðarsdóttir, einn af vinsælustu matar- og sælkera- bloggurum landsins, býður upp á nýstárlega súkkulaðiköku með jólaívafi. Hún er að gefa út þriðju uppskriftabókina. Sjöfn Þórðardóttir blóðgjafirnar á árinu 24. nóvember 2020 JÓL 2020 22 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.