Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 46
Hrefna Rósa Sætran, sjónvarps-
kokkur, rithöfundur og eigandi
Fiskmarkaðarins, Grillmarkað-
arins og Skúla Craft bar. Hún er
þekkt fyrir að nýta hráefni beint
frá býli og er matargerð hennar
stundum lýst sem hefðbundinni
íslenskri matargerð með ófyrir-
séðu og nýstárlegu ívafi.
Sjöfn Þórðardóttir
Hrefna segir að þessa dagana fari
dagarnir í það að sjá um veitinga-
staðina og að allt gangi vel fyrir
sig. „Að skapa upplifanir og finna
nýjungar með það markmið að
gestirnir okkar fari ánægðir heim
eftir heimsókn til okkar.“
Hrefna bakar fremur mikið og
finnst fátt skemmtilegra en að
þróa nýjar uppskriftir í eldhúsinu.
„Mér finnst gaman að baka og ég
geri alveg ágætlega mikið af því
en ég er ekki mikið að baka svona
svakalegar margra hæða kökur
með fullt af skrauti þó ég geri
það alveg inn á milli. Mér finnst
gaman að baka deserta, pönnu-
kökur og einfaldari kökur. Mér
finnst þær persónulega betri á
bragðið þótt hinar séu mikið fyrir
augað.“
Fullkomin stund að föndra
Jólakakan sem Hrefna deilir með
lesendum Fréttablaðsins er alveg
splúnkuný og er með jólalegu ívafi.
„Kakan er ný en ástæðan fyrir jóla-
kakóuppskriftinni er sú að ég elska
að setjast niður með krökkunum
mínum og spila, teikna eða lesa.
Oftar en ekki fáum við okkur heitt
kakó þegar við setjumst saman og
ég hef verið að leika mér að gera
svona kakóskeiðar. Krökkunum
finnst líka gaman að föndra þetta
með mér. Mér finnst þetta full-
komin stund og langar að gefa
þessa uppskrift svo fleiri geti
notið.“
Maðurinn minn er mesta jóla-
barn sem ég veit um
Hrefna segir að fjölskyldan hafi
ávallt eitthvað fyrir aðventunni
og jólunum og njóti þessa tíma
með sínum nánustu fjölskyldu-
meðlimum og vinum. „Maðurinn
minn er mesta jólabarn sem ég
veit um og þetta er mjög heilagur
tími. Annað hvert ár eldum við
og förum með matinn til tengdó
og hitt árið elda þau. Það er ekki
mikið af fjölskylduboðum hjá
okkur svo á jóladag erum við bara
heima í náttfötum. Svo annan í
jólum erum við með kalkúnasam-
lokuboð fyrir vini okkar. Ég myndi
segja að það væri passlega mikið
haft fyrir þessu.“
En hvað finnst Hrefnu skemmti-
legast við jólin?
„Mér finnst gaman að hitta vini
á aðventunni og maður má ekki
gleyma að njóta hennar og heyra
í fólkinu sínu. Jólin eru meira en
bara aðfangadagur.“
Hrefna segir jafnframt að hún
hafi á tímabili ekki verið mikið
jólabarn en það hafi breyst aftur.
„Það má segja að ég hafi aftur
orðið jólabarn þegar ég eignaðist
börn. Áður var ég ekki mikið að
spá í jólin.“
Áttu uppáhaldsjólasvein?
„Stúf. Ég tengi við hann.“
Opnum pakkana á náttfötunum
Oft er mikið um fastar hefðir og
siði hjá fjölskyldum sem hafa mót-
ast í áratugi. Einnig er það svo að
þegar unga fólkið flytur að heiman
og stofnar fjölskyldu að nýir siðir
og hefðir mótist. Allur gangur er á
því. „Ég segi alltaf að það séu engar
hefðir en við erum með fullt af
þeim. Opnum pakka í náttfötum,
kalkúnasamlokan annan í jólum,
hanga og slæpast á jóladag. En svo
er ég líka alltaf að gera eitthvað
nýtt og þá sérstaklega í matargerð
og skreytingum.“
Óvenjuleg piparkökuostakaka
með saltkaramellusósu
Hrefna Sætran matreiðslumeistari segist hafa orðið jólabarn aftur þegar
börnin hennar fæddust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bökuð piparkökuostakaka með saltkaramellusósu og hindberjum. Spenn-
andi nýjung frá Hrefnu. Kakan er ný uppfinning hjá Hrefnu og er girnileg.
Best er að gera kökuna að minnsta
kosti degi áður en á að borða hana.
200 g Lu Bastogne kex
4 msk. bráðið smjör
450 g rjómaostur við stofuhita
150 g púðursykur
1 tsk. vanilla
2 tsk. rifinn sítrónubörkur
2 tsk. mulinn engifer
½ tsk. negull
1 tsk. kanill
2 egg + 1 eggjarauða
60 g sýrður rjómi
Byrjið á því að hita ofninn í 160 °C.
Takið smelluform og smyrjið það
að innan. Ég notaði 16 cm smellu-
form en hvaða stærð sem er ætti að
duga. Einnig er hægt að baka í formi
sem þetta yrði borið fram í. Brjótið
kexið niður í skál, hellið brædda
smjörinu yfir og blandið vel saman.
Þekjið botninn á forminu með
kexblöndunni og þrýstið henni vel
niður og upp meðfram köntunum.
Setjið formið inn í ísskáp á meðan
þið gerið fyllinguna.
Þeytið rjómaostinn í hrærivél
þar til hann er orðinn mjúkur.
Bætið púðursykrinum, vanillunni,
sítrónuberkinum og kryddunum út
í og þeytið áfram. Bætið svo sýrða
rjómanum og eggjunum út í einu í
einu og þeytið á meðan. Blandan á
að vera kekkjalaus. Hellið blönd-
unni í formið og bakið í miðjum
ofninum í 60–70 mínútur. Slökkvið
svo á ofninum og leyfið kökunni að
standa inni í ofninum í 30 mínútur.
Setjið í kæli yfir nótt.
Saltkaramellusósa
200 g sykur
90 g smjör
120 ml rjómi
1 tsk. salt
Bræðið sykurinn á pönnu á miðl-
ungs hita. Hrærið í með trésleif.
Þegar sykurinn er bráðinn og
byrjaður að karamellast bætið
þá smjörinu og rjómanum út á
pönnuna. Passið ykkur vel þegar
þið gerið þetta því sykurinn verður
rosalega heitur og rjóminn og
smjörið munu skvettast en hrærið
varlega með trésleif í blöndunni og
setjið svo salt út í. Leyfið að kólna
og setjið í krukku.
Jólakakóskeiðar
200 g suðusúkkulaði
30 ml rjómi
Nammi að eigin vali sem er gott út í
kakó t.d. sykurpúðar, Dumley kara-
mellur, Daim.
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og
bætið rjómanum út í. Hellið súkku-
laðinu í muffins form og setjið
teskeiðar ofan í. Skreytið svo með
nammi. Setjið inn í ísskáp þar til
súkkulaðið harðnar aftur. Hellið
svo heitu vatni í bolla og hrærið
súkkulaðinu út í.
Bökuð piparkökuostakaka með saltkaramellusósu og
hindberjum
fyrir 8–10 manns.
Sígrænu jólatrén eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám.
Við bjóðum nú upp á 5 mismunandi gerðir af
jólatrjám í mörgum stærðum, með og án LED
ljósa. Einföld samsetning og aldrei meira úrval.
Skoðaðu kostina
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Fáanlegt með ljósaseríu
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• Stálfótur fylgir
Fallegjólatré
Verið velkomin í jólaskóg
skátanna í Hraunbæ 123 eða
verslaðu beint á sigraena.is
- sem endast ár eftir ár!
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | www.sigraena.is
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Helgar kl. 12-18
24. nóvember 2020 JÓL 2020 24 FRÉTTABLAÐIÐ