Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 54

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 54
Ragna heldur úti vinsælli blogg- síðu, ragna.is, er menntaður hjúkr- unarfræðingur og verkefnastjóri, bakar og eldar dýrindis kökur og mat, syngur eins og engill, er mikill tísku- og förðunarspekúlant og þar fram eftir götunum. „Ég starfa sem verkefnastjóri yfir stórri evr- ópskri rannsókn á vegum Keresis í Evrópu. Rannsóknin snýst um árangur fiskroðs til að græða krón- ísk sykursýkisfótasár. Einnig tek ég aukavaktir á Bráðamóttökunni á Landspítalanum og sinni svo söng- verkefnum á kvöldin og um helgar. Nýverið hef ég verið að gera tölu- vert út á streymistónleika þar sem ég býð upp á heima-happy hour fyrir fyrirtæki,“ segir Ragna. Þegar hún er ekki í vinnunni má yfirleitt finna Rögnu uppi á hálendi í sleðaferðum eða raulandi yfir súrdeigsbrauðgerð, sem hún segir að sé nýfundin ástríða. „Ég hef ekki keypt brauð inn á heimilið í eitt og hálft ár og baka allt brauð sem fjölskyldan borðar.“ En er eitthvað sem þessi orku- bolti og hæfileikabúnt getur ekki gert? „Það er sumt sem ég er ekki afskaplega góð í. Ég er til dæmis arfaslök í að vakna hress og kát á morgnana. Nýjasta tilraun heim- ilisins er að færa mér kaffi í rúmið á morgnana og skilar það töluverð- um árangri. Annars er þolinmæði líka oft af skornum skammti þótt ég sé markvisst að læra að minnka strax-veikina mína. Oft hef ég þó talið óþolinmæðina vera kost þó svo að það komi upp inni á milli að hennar sé kannski ekki þörf í öllum mínum verkefnum,“ segir Ragna og glottir. Eitthvað lítið í hverri viku Ragna viðurkennir það fúslega að hún sé mikið jólabarn, heimilis- fólki stundum til mæðu. „Ég byrja að hugsa um jólaskraut og jóla- seríur í október og færi skreyting- ardagana sífellt framar í nóvember á hverju ári (fjölskyldumeðlimum algerlega óafvitandi). Jólalögin gleðja hjartað mitt og hefur það alltaf verið undirbúningur fyrir Dýrindis fyllt kalkúnabringa fyrir hátíðarnar Ragna deilir með lesendum spennandi uppskrift að kalkúnabringu sem er tilvalin í gómsæta og fallega jólasteik. Til þess að sjá myndrænar leiðbein- ingar er hægt að skoða bloggsíðu Rögnu, ragna.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ekki sleppa því að leyfa kalkúnabring- unni að standa. Ef hún er skorin strax eftir að hún kemur úr ofninum er hætta á að safinn leki út og hún þorni upp. Ef hún fær að standa verður hún safarík og ljúffeng. Hvort sem það er frá náttúr- unnar hendi eða af ótæmandi metnaðargirni þá gerir lífsstíls- bloggarinn, hjúkrunarfræðing- urinn og jólabarnið Ragna Björg Ársælsdóttir flestallt töluvert betur en við hin og virðist fara létt með það. jólatónleika sem setja mikið mark á vikurnar fyrir jól og sá tími er alltaf yndislegur.“ Jólaundirbúningurinn er ekki fyrirferðarmikill á heimili Rögnu og hún segist ekki þekkja jóla- stress. „Ég reyni að dreifa úr öllu álagi í aðdraganda jólanna með því að plana tímanlega það sem þarf að gera. Þó svo ég geri ekki beint lista og held utan um verkefnin, nota ég skipulag verkefnastjórans í huganum svo við komumst öll í gegnum þetta án stress og álags. Mitt helsta ráð er að gera eitthvað lítið í hverri viku með börnunum vikurnar fyrir jól, jafnvel þó að það sé bara korters-verkefni á þriðju- dagskvöldi þar sem börnin skrifa jólagjafalista og skreyta hann. Það þarf ekkert alltaf að vera eitthvað stórt og langt til að skapa góðar minningar með þessum börnum.“ Langaði að skoða jólaljósin í Evrópu Sem betur fer hefur faraldurinn ekki sett mikið strik í reikninginn í aðdraganda jólanna hjá Rögnu. „Ekki enn þá að minnsta kosti. Ég passa mig á að setja engar væntingar á það hvenær allir geti farið að hittast aftur og tek hverri viku eins og hún er lögð upp af teyminu. Eina sem hefur breyst hjá mér er að vinnunnar vegna hefði ég þurft að vera mikið í Evrópu í hverjum mánuði og var farin að hlakka svolítið til að kynnast jólaljósunum í Frakklandi, Ítalíu, Svíþjóð og Þýskalandi, þaðan sem rannsóknin er unnin. Ég get kannski skoðað þau jólaljós næstu jól í staðinn. Á meðan dáist ég að ljósunum sem fóru að lýsa upp heimili höfuðborgarinnar strax í byrjun nóvember.“ Ragna ætlar að deila með lesendum spennandi uppskrift að kalkúnabringu sem er tilvalin í gómsæta og fallega jólasteik. Sjálf segist hún fara hefðbundnari leiðir í jólamálsverðinum. „Ég verð með hamborgarhrygg um jólin. Sjálf er ég mikið fyrir að útbúa flókinn og öðruvísi mat reglulega, svo að það er gott að leita í eitthvað ein- falt, vinsælt og hefðbundið, eins og hamborgarhrygginn, þegar fjögur börn eru á heimilinu og allir óþreyjufullir að fá að opna pakkana.“ Kalkúnabringa með fyllingu Þessi kalkúnabringa er fyllt með sætri, saltri, mjúkri fyllingu. Kalkúnninn verður safaríkur og mjúkur með mikið af olíu. Fylling 2 dl saxaðar döðlur 1 dl þurrkuð trönuber 1 hvítlauksgeiri (saxaður smátt) 1 skarlottulaukur (saxaður smátt) 1 msk. ferskt timian 1 krukka fetaostur og öll olían 3 brauðsneiðar Steikið upp úr olíunni af fetaost- inum lauk og hvítlauk þar til hann mýkist. Bætið timian, döðlum og trönu- berjum út í, lækkið hitann og steikið í 2–3 mínútur. Bætið fetaosti út í og lækkið hitann enn meira, hann á aðeins að bráðna saman við en ekki alveg að leysast upp. Rífið niður 3 brauðsneiðar í litla teninga (sleppa skorpu) og hrærið saman. Kalkúnabringa fyrir 4 fullorðna 1,2 kg kalkúnabringa Skerið bringuna næstum því í tvennt þannig að hún verði útflött. Kryddið með góðu kryddi báðum megin. Mæli með kalkúna- eða kjúklingakryddi. Setjið fyllinguna í og rúllið bringunni þétt saman upp í rúllu, rúllið upp frá styttri hlið bring- unnar. Ef ykkur finnst þurfa, stingið tannstönglum í hana svo hún haldist vel saman. Eldið við 190 °C í ofni (reiknið með ca klst. inni í ofni). Notið kjöthitamæli (algerlega nauðsynlegt). Ég mæli með að elda hana upp í 68 °C í kjarnhita, taka hana þá út, setja álpappír yfir og handklæði og láta hana standa í 20–30 mín. á borði. Hún mun ná 71 °C hita að lokum, jafna sig og verða meira safarík en ef hún væri skorin stuttu eftir að hún kæmi út úr ofni. Sósa 2 skarlottulaukar, saxaðir smátt 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt 3–4 greinar af timian 2 msk. matarolía 1 l vatn 200 ml hvítvín 2 msk. kjúklingakraftur (fljótandi) frá Oscars Maizenamjöl í vatni 2 msk. smjör salt og pipar eftir smekk Steikið skarlottulaukinn, hvítlauk og timian í matarolíu þar til það verður lint. Hækkið hitann og hellið hvítvíni út í. Látið sjóða nær alveg niður. Bætið vatni og krafti út í og látið sjóða í 30 mín. við vægan hita. Þykkið með maizenamjöli. Saltið og piprið að vild. Setjið 2 msk. af smjöri út í sósuna rétt áður en hún er borin fram. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria @frettabladid.is 24. nóvember 2020 JÓL 2020 32 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.