Fréttablaðið - 24.11.2020, Síða 54
Ragna heldur úti vinsælli blogg-
síðu, ragna.is, er menntaður hjúkr-
unarfræðingur og verkefnastjóri,
bakar og eldar dýrindis kökur og
mat, syngur eins og engill, er mikill
tísku- og förðunarspekúlant og
þar fram eftir götunum. „Ég starfa
sem verkefnastjóri yfir stórri evr-
ópskri rannsókn á vegum Keresis
í Evrópu. Rannsóknin snýst um
árangur fiskroðs til að græða krón-
ísk sykursýkisfótasár. Einnig tek ég
aukavaktir á Bráðamóttökunni á
Landspítalanum og sinni svo söng-
verkefnum á kvöldin og um helgar.
Nýverið hef ég verið að gera tölu-
vert út á streymistónleika þar sem
ég býð upp á heima-happy hour
fyrir fyrirtæki,“ segir Ragna.
Þegar hún er ekki í vinnunni
má yfirleitt finna Rögnu uppi á
hálendi í sleðaferðum eða raulandi
yfir súrdeigsbrauðgerð, sem hún
segir að sé nýfundin ástríða. „Ég
hef ekki keypt brauð inn á heimilið
í eitt og hálft ár og baka allt brauð
sem fjölskyldan borðar.“
En er eitthvað sem þessi orku-
bolti og hæfileikabúnt getur ekki
gert? „Það er sumt sem ég er ekki
afskaplega góð í. Ég er til dæmis
arfaslök í að vakna hress og kát á
morgnana. Nýjasta tilraun heim-
ilisins er að færa mér kaffi í rúmið
á morgnana og skilar það töluverð-
um árangri. Annars er þolinmæði
líka oft af skornum skammti þótt
ég sé markvisst að læra að minnka
strax-veikina mína. Oft hef ég þó
talið óþolinmæðina vera kost þó
svo að það komi upp inni á milli
að hennar sé kannski ekki þörf í
öllum mínum verkefnum,“ segir
Ragna og glottir.
Eitthvað lítið í hverri viku
Ragna viðurkennir það fúslega að
hún sé mikið jólabarn, heimilis-
fólki stundum til mæðu. „Ég byrja
að hugsa um jólaskraut og jóla-
seríur í október og færi skreyting-
ardagana sífellt framar í nóvember
á hverju ári (fjölskyldumeðlimum
algerlega óafvitandi). Jólalögin
gleðja hjartað mitt og hefur það
alltaf verið undirbúningur fyrir
Dýrindis fyllt
kalkúnabringa
fyrir hátíðarnar
Ragna deilir með lesendum spennandi uppskrift að kalkúnabringu sem er
tilvalin í gómsæta og fallega jólasteik. Til þess að sjá myndrænar leiðbein-
ingar er hægt að skoða bloggsíðu Rögnu, ragna.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ekki sleppa
því að leyfa
kalkúnabring-
unni að standa.
Ef hún er skorin
strax eftir að
hún kemur
úr ofninum
er hætta á að
safinn leki út og
hún þorni upp.
Ef hún fær að
standa verður
hún safarík og
ljúffeng.
Hvort sem það er frá náttúr-
unnar hendi eða af ótæmandi
metnaðargirni þá gerir lífsstíls-
bloggarinn, hjúkrunarfræðing-
urinn og jólabarnið Ragna Björg
Ársælsdóttir flestallt töluvert
betur en við hin og virðist fara
létt með það.
jólatónleika sem setja mikið mark
á vikurnar fyrir jól og sá tími er
alltaf yndislegur.“
Jólaundirbúningurinn er ekki
fyrirferðarmikill á heimili Rögnu
og hún segist ekki þekkja jóla-
stress. „Ég reyni að dreifa úr öllu
álagi í aðdraganda jólanna með því
að plana tímanlega það sem þarf
að gera. Þó svo ég geri ekki beint
lista og held utan um verkefnin,
nota ég skipulag verkefnastjórans
í huganum svo við komumst öll í
gegnum þetta án stress og álags.
Mitt helsta ráð er að gera eitthvað
lítið í hverri viku með börnunum
vikurnar fyrir jól, jafnvel þó að það
sé bara korters-verkefni á þriðju-
dagskvöldi þar sem börnin skrifa
jólagjafalista og skreyta hann. Það
þarf ekkert alltaf að vera eitthvað
stórt og langt til að skapa góðar
minningar með þessum börnum.“
Langaði að skoða
jólaljósin í Evrópu
Sem betur fer hefur faraldurinn
ekki sett mikið strik í reikninginn
í aðdraganda jólanna hjá Rögnu.
„Ekki enn þá að minnsta kosti.
Ég passa mig á að setja engar
væntingar á það hvenær allir geti
farið að hittast aftur og tek hverri
viku eins og hún er lögð upp af
teyminu. Eina sem hefur breyst hjá
mér er að vinnunnar vegna hefði
ég þurft að vera mikið í Evrópu
í hverjum mánuði og var farin
að hlakka svolítið til að kynnast
jólaljósunum í Frakklandi, Ítalíu,
Svíþjóð og Þýskalandi, þaðan
sem rannsóknin er unnin. Ég get
kannski skoðað þau jólaljós næstu
jól í staðinn. Á meðan dáist ég að
ljósunum sem fóru að lýsa upp
heimili höfuðborgarinnar strax í
byrjun nóvember.“
Ragna ætlar að deila með
lesendum spennandi uppskrift
að kalkúnabringu sem er tilvalin í
gómsæta og fallega jólasteik. Sjálf
segist hún fara hefðbundnari leiðir
í jólamálsverðinum. „Ég verð með
hamborgarhrygg um jólin. Sjálf
er ég mikið fyrir að útbúa flókinn
og öðruvísi mat reglulega, svo að
það er gott að leita í eitthvað ein-
falt, vinsælt og hefðbundið, eins
og hamborgarhrygginn, þegar
fjögur börn eru á heimilinu og
allir óþreyjufullir að fá að opna
pakkana.“
Kalkúnabringa með
fyllingu
Þessi kalkúnabringa er fyllt með
sætri, saltri, mjúkri fyllingu.
Kalkúnninn verður safaríkur og
mjúkur með mikið af olíu.
Fylling
2 dl saxaðar döðlur
1 dl þurrkuð trönuber
1 hvítlauksgeiri (saxaður smátt)
1 skarlottulaukur (saxaður smátt)
1 msk. ferskt timian
1 krukka fetaostur og öll olían
3 brauðsneiðar
Steikið upp úr olíunni af fetaost-
inum lauk og hvítlauk þar til hann
mýkist.
Bætið timian, döðlum og trönu-
berjum út í, lækkið hitann og
steikið í 2–3 mínútur.
Bætið fetaosti út í og lækkið
hitann enn meira, hann á aðeins
að bráðna saman við en ekki alveg
að leysast upp.
Rífið niður 3 brauðsneiðar í litla
teninga (sleppa skorpu) og hrærið
saman.
Kalkúnabringa
fyrir 4 fullorðna
1,2 kg kalkúnabringa
Skerið bringuna næstum því í
tvennt þannig að hún verði útflött.
Kryddið með góðu kryddi
báðum megin. Mæli með kalkúna-
eða kjúklingakryddi.
Setjið fyllinguna í og rúllið
bringunni þétt saman upp í rúllu,
rúllið upp frá styttri hlið bring-
unnar.
Ef ykkur finnst þurfa, stingið
tannstönglum í hana svo hún
haldist vel saman.
Eldið við 190 °C í ofni (reiknið
með ca klst. inni í ofni).
Notið kjöthitamæli (algerlega
nauðsynlegt). Ég mæli með að elda
hana upp í 68 °C í kjarnhita, taka
hana þá út, setja álpappír yfir og
handklæði og láta hana standa í
20–30 mín. á borði. Hún mun ná 71
°C hita að lokum, jafna sig og verða
meira safarík en ef hún væri skorin
stuttu eftir að hún kæmi út úr ofni.
Sósa
2 skarlottulaukar, saxaðir smátt
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
3–4 greinar af timian
2 msk. matarolía
1 l vatn
200 ml hvítvín
2 msk. kjúklingakraftur (fljótandi)
frá Oscars
Maizenamjöl í vatni
2 msk. smjör
salt og pipar eftir smekk
Steikið skarlottulaukinn, hvítlauk
og timian í matarolíu þar til það
verður lint.
Hækkið hitann og hellið hvítvíni
út í. Látið sjóða nær alveg niður.
Bætið vatni og krafti út í og látið
sjóða í 30 mín. við vægan hita.
Þykkið með maizenamjöli. Saltið
og piprið að vild. Setjið 2 msk. af
smjöri út í sósuna rétt áður en hún
er borin fram.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
24. nóvember 2020 JÓL 2020 32 FRÉTTABLAÐIÐ