Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 35
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Styrkir úr Markaðssjóði
sauðfjárafurða
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um
styrki til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun, kynningar- og
markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauðfjárrækt. Sjá nánar á
heimasíðu sjóðsins www.fl.is, undir Markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök,
rannsóknastofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau
verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir
það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á vefsvæðinu
www.fl.is/markadssjodur, eingöngu er tekið við umsóknum á
eyðublöðunum sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið fl@fl.is og með
hefðbundnum pósti til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri
311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; sigridur@fl.is.
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Gleraugu með
glampa- og rispuvörn
Verð 19.900 kr
Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0.
jardir.is
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 26. sept. kl. 16.00
Árhólarétt (Unadalsrétt) við Hofsós,
Skag.
föstudaginn 25. sept. um kl.
13.00
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 25. sept. um kl. 13.00
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. laugardaginn 3. okt.
Fossárrétt á Skaga, A.-Hún. laugardaginn 19. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnudaginn 20. sept.
Kjalarlandsrétt, A.-Hún. laugardaginn 19. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 26. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 3. okt. kl. 13
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. laugardaginn 5. sept.
Selnesrétt á Skaga, Skag. laugardaginn 19. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 19. sept. kl. 14.00
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 20. sept. kl. 11.00
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn 19. sept. kl. 16.00
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 3. okt. kl. 13
Unadalsrétt (Árhólarétt) við Hofsós,
Skag.
föstudaginn 25. sept. um kl.
13.00
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 19. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 3. okt.
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 3. okt. kl. 10
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 26. sept.
Stóðréttir haustið 2020
Fjár- og stóðréttir verða með öðrum
brag en fyrri ár vegna kórónu veiru-
faraldursins.
Vegna smitvarna og fjölda
takmarkana er mælst til þess að
gestir komi ekki til réttarstarfa í
ár. Því verður fylgt eftir að ekki
séu fleiri en 100 manns við störf í
einu og verður öllum sem taka þátt
í göngum og réttum gert að hlaða
niður smitrakningarappi almanna
varna. Í leiðbeiningum vegna
gangna og rétta, sem gefnar eru út
af almannavörnum og fleirum, er
jafnframt farið fram á að ekki sé
áfengi haft um hönd.
Sjá upplýsingar um fjárréttir á bls.
32–33. /TB
Landbúnaðarnefnd Rangárþings eystra:
Hefur áhyggjur af lélegum girðingum
með vegum og lausagöngu búfjár
– Getur samt ekki fallist á lausagöngubann að svo komnu máli
Landbúnaðarnefnd Rangárþings
eystra fékk nýlega erindi inn á sitt
borð varðandi lausagöngu búfjár
meðfram Þjóðvegi 1 í sveitarfé-
laginu þar sem bréfritari lýsti yfir
áhyggjum af stöðu mála. Nefndin
tók undir með bréfritara á síðasta
fundi sínum og lýsti yfir áhyggj-
um sínum á ástandi veg girð inga í
sveitarfélaginu og þar af leiðandi
búfénaði á vegsvæði.
Í bókun nefndarinnar kemur
fram að þeirri spurningu sé ósvarað;
hver er ábyrgð veghaldara á ástandi
girðinga með vegum? Og, stenst
það lög að veghaldari taki land
af landeigendum og varpi síðan
ábyrgð á þá um friðun vegsvæðis?
Vilja ekki lausagöngubann
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu
á fundi sínum að hún getur ekki
fallist á lausagöngubann að svo
komnu máli meðfram Þjóðvegi
1. Landbúnaðarnefnd hvetur hins
vegar búfjáreigendur að gera
það sem í þeirra valdi stendur að
halda búfé frá vegum og afsetja
þann fénað sem sækir út á veg. Þá
óskar nefndin eftir því við sveit
arstjórn að skýrð verði réttindi
og skyldur búfjár og landeigenda
annars vegar og veghaldara hins
vegar. Byggðaráð Rangárþings
eystra hefur samþykkt að haldinn
verði sameiginlegur fundur sveit
arstjórnar, landbúnaðarnefndar og
samgöngu og umferðarnefndar. Á
fundinn verði fengnir fulltrúar frá
Lögreglustjóranum á Suðurlandi og
Vegagerðinni. /MHH
Lausaganga búfjár er víða til vandræða við Þjóðveg 1, t.d. í Rangárþingi
eystra. Hér eru t.d. laus hross á veginum undir Eyjafjöllum og þar má stundum
líka sjá kindur með lömb meðfram veginum. Mynd / MHH
GÖNGUR&RÉTTIR 2020