Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202026
LÍF&STARF
Margrét Jónsdóttir Njarðvík tók við keflinu í sumar sem rektor Háskólans á Bifröst:
„Bifröst hefur skyldum að gegna gagnvart
nærumhverfi sínu og landsbyggðinni allri“
Skólahald í Norðurárdal í Borgar
firði má rekja allt aftur til ársins
1955 þegar Samvinnuskólinn flutti
að Hreðavatni. Nú er boðið upp
á nám á háskólastigi á staðnum.
Háskólinn á Bifröst er fjölbreytt
menntastofnun sem býður nem
endum sínum upp á fræðslu, þekk
ingu og þjálfun í viðskiptafræði
með ýmsum áherslum, auk við
skiptalögfræði og úrval félagsvís
indagreina. Hlutverk skólans er
að búa nemendur undir ábyrgð
ar, forystu og stjórnunarstörf í
innlendu og alþjóðlegu samkeppn
isumhverfi.
Samvinnuskólinn, Samvinnu
háskólinn, Viðskiptaháskólinn á
Bifröst og Háskólinn á Bifröst eru
ein og sama stofnunin. Framan af
var skólinn deild innan Sambands
íslenskra samvinnufélaga og í eigu
þess, en frá 1990 hefur hann verið
sjálfseignarstofnun. Skólinn hefur
breyst mikið frá stofnun og hafa þær
breytingar átt sér stað í takt við breytt
ar aðstæður og auknar menntunar
kröfur samfélagsins. Í upphafi var
um að ræða fárra mánaða nám, en í
dag útskrifast nemendur skólans með
BS eða BAgráðu eftir þriggja ára
háskólanám eða meistaragráðu eftir
fimm ára nám en skólinn hóf kennslu
á meistarastigi sumarið 2003.
Byggðamálin eigi að vera á
dagskrá skólans
Í sumar tók nýr rektor við keflinu á
Bifröst, Margrét Jónsdóttir Njarðvík,
en hún er ættuð frá Fljótstungu í
Hvítársíðu. Aðspurð segist hún
hlakka mjög til að takast á við krefj
andi störf við Háskólann á Bifröst.
Hún taki við góðu búi en vissu
lega fylgi þó ætíð nýir siðir nýjum
herrum.
„Ég vil efla tengsl Bifrastar og
nærumhverfisins. Og byggðamálin
eiga að vera á dagskrá skólans, þau
eiga að fá sinn sess í kennslunni,“
segir hún.
Nýsköpun snýst ekki eingöngu um
tölvur og tækni
„Bifröst hefur skyldum að gegna
gagnvart nærumhverfi sínu og lands
byggðinni allri.“ Nú þurfi að stuðla
að nýsköpun í dreifbýli sem Margrét
segir að snúist ekki eingöngu um
tölvur og tækni. Til að mynda þurfi
að hjálpa öllum þeim er sinna fram
leiðslu og nýsköpun í dreifbýli að
koma vörum sínum á markað.
„Þarna geti Háskólinn á Bifröst
komið sterkur inn með sín góðu
tengsl og þekkingu á viðskiptalíf
inu.“
Margrét nefndi einnig að henni
þætti vænt um að fá tækifæri til að
setjast í sama stól og séra Guðmundur
Sveinsson, sem var fyrsti skólastjóri
Samvinnuskólans eftir að skólinn
flutti að Hreðavatni. Hún hafi
kynnst Guðmundi sem nemandi við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti en
þann skóla stofnaði hann og mótaði
eftir að hann lauk störfum á Bifröst.
Alkunna er að Guðmundur var mikill
skólamaður sem innleiddi nýjungar í
menntun, m.a. eflingu starfs og verk
náms. Í anda þeirra hugsjóna sem
Guðmundur stóð fyrir telur Margrét
mikilvægt að efla Háskólagáttina en
hún býr nemendur sem ekki hafa
stúdentspróf undir nám á háskóla
stigi.
„Úti um allt land eru hópar fólks
sem ekki hafa lokið stúdentsprófi,
Gáttin opnar þessu fólki nýja leið og
með kröftugu fjarnámi er skólinn vel
í stakk búinn til að stuðla að aukinni
menntun úti í hinum dreifðu byggð
um.“
Vill efla byggðina á Bifröst
Margrét vill efla byggðina á Bifröst.
Hún leggur ríka áherslu á að starfs
fólkið búi á staðnum eða í nær
liggjandi sveitum.
Á dögunum réð hún tvo nýja
stjórn endur að skólanum; tvær kraft
miklar konur sem báðar búa í Borgar
byggð og þekkja vel til skólans,
þær Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur
frá Brekkukoti í Reykholtsdal, sem
ráðin var kennslustjóri, og Þorbjörgu
Valdísi Kristjánsdóttur frá Laxholti í
Borgarfirði, sem ráðin var alþjóða
fulltrúi.
Nýr kennslustjóri með
sterkar rætur í Borgarfirði
Halldóra Lóa starfaði áður sem
náms og starfsráðgjafi við skól
ann. Halldóra situr einnig í sveitar
stjórn Borgarbyggðar, þar sem hún
er m.a. formaður byggðarráðs og
situr fyrir hönd sveitarfélagsins í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hún
á sterkar rætur og stóran frænd
garð í Borgarfirði; t.a.m. var Þórir
Steinþórsson frá Gautlöndum langafi
hennar en hann var lengi skólastjóri
Héraðsskólans í Reykholti og sinnti
því starfi samhliða búskap á staðnum.
Hún er full tilhlökkunar að takast á
við ný störf á nýjum vettvangi sem
hún þekkir þó býsna vel.
„Reynslan úr námsráðgjöfinni er
mér mjög dýrmætt veganesti þegar
kemur að því að móta kennsluna í
skólanum,“ segir hún. Mikilvægt
sé að hafa í huga þarfir ólíkra nem
enda enda hafi skólinn löngum verið
í fararbroddi í innleiðingu og þróun
nýrra kennsluhátta, t.d. sé skólaárinu
skipt upp í lotur og fjarnám skólans
sé öflugt. Allt stuðli þetta að því að
hjálpa nemendum að takast á við
krefjandi störf. Gott námsumhverfi
skiptir miklu en það opnar nýjar leið
ir fyrir fjölbreytta námshópa.
Fyrrverandi fóstra Keikó
orðin alþjóðafulltrúi á Bifröst
Þorbjörg Valdís, jafnan kölluð
Tobba, þekkir vel til alþjóðamálanna.
Hún vann áður hjá Rannís og sem
alþjóðafulltrúi á Hvanneyri. Áður
en alþjóðamálin tóku yfir starfaði
hún í fræðsludeild Fjölskyldu og
húsdýragarðsins.
„Þegar ég vann í Húsdýra
garðinum var ég að reyna að prófa
að búa annars staðar. En einn daginn
þegar ég vann þar var hringt í mig
og mér boðið að verða fóstra háhyrn
ingsins Keikó sem þá hélt til í kví
sinni í Vestmannaeyjum. Mitt hlut
verk var að gefa honum, sjá um að
hann fengi hreyfingu og félagslega
þjálfun og vera talsmaður hans við
fjölmiðla. Ég fylgdi honum eftir til
Noregs þar sem hann dó úr lungna
bólgu.“
Þrátt fyrir að Keikóævintýrið hafi
verið heillandi var borgfirska taugin
römm og Tobba flutti aftur heim í
Laxholt. Vinnan með Keikó opnaði
henni þó nýjar dyr og skapaði margs
konar alþjóðlegar tengingar sem hún
gat nýtt síðar í sínum störfum.
Tobba segir lífið á Bifröst líka
vera ákveðið ævintýri og undir það
taka þær Halldóra og Margrét, sem
áréttar jafnframt að mikilvægt sé fyrir
okkur öll að lifa í vexti. Þar komi
Bifröst sterk inn enda sé það mark
mið hennar og von að henni takist,
í samvinnu við sitt fólk, að skapa á
hverjum degi ný ævintýri og að nem
endur og starfsmenn nái að vaxa og
dafna í tilsniðnum blómapottum sem
henta hverjum og einum. /GRJ
Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, alþjóðafulltrúi á Bifröst. Hér er hún með háhyrningnum Keikó fyrir flutning hans til
Vestmannaeyja, þar sem hún var ráðin til að fóstra hann.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, er hér lengst til vinstri á myndinni ásamt Þorbjörgu Valdísi
Kristjánsdóttur, alþjóðafulltrúa skólans, og Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur kennslustjóra. Mynd / GRJ
Háskólinn á Bifröst er vel búinn og þar er veglegt íbúðarhúsnæði fyrir nemendur og kennara skólans og góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Mynd / James Einar Becker