Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202028
Það hefur verið ævintýralegur
vöxtur á framleiðslu íslenska
sport hýsisins Mink Camper frá
stofnun fyrirtækisins fyrir fimm
árum. Svo virðist sem hið létta og
lipra minkahýsi, sem kemst um
nánast öll fjöll og firnindi og til
allra áfangastaða, falli vel í kramið
hjá ferðamönnum. Nú er svo komið
að til að anna eftirspurn hyggst
fyrirtækið flytja framleiðsluna til
Lettlands síðar á árinu, enda selst
hvert hýsið upp á fætur öðru.
Ólafur Gunnar Sverrisson
er stofnandi og einn eigandi
fyrirtækisins. Hann er trébátasmiður
að mennt en lærði jafnframt iðn- og
keramikhönnun. Hann hefur alla tíð
verið viðloðinn hönnun og listir sem
jafnframt voru mikilvægir þættir
við þróun og smíði Mink Campers-
sporthýsanna. Ólafur er jafnframt
einn stofnenda Íshúss Hafnarfjarðar,
sem er einkaframtak þar sem boðið
er upp á vinnuaðstöðu fyrir hönnuði
og listamenn. Mink Campers er
einmitt staðsett í sama húsnæði
og Íshúsið, gömlu frystihúsi við
smábátahöfnina í Hafnarfirði.
„Hugmyndin er í raun upprunalega
sprottin frá Óskari vini mínum, sem er
húsasmiður, en hann sendi mér mynd
af amerísku hjólhýsi sem kallast Tear
Drops og kom á markað fljótlega eftir
seinni heimsstyrjöldina. Það var
heimasmíðað bílskúrsverkefni og er
töluvert til af þessum dropum, eða
Tear Drops, í Bandaríkjunum enn í
dag. Hugmyndin var síðan að veltast
um í hausnum á mér í töluverðan
tíma og ég ræddi þetta í nokkur ár
við frænda minn, Kolbein Björnsson,
sem var þá búsettur í San Francisco,“
segir Ólafur.
Byggt á gamalli hugmynd
„Þetta var í kringum 2011 sem
hugmyndin var að fæðast en
ég og frændi minn hugsuðum
LÍF&STARF
Íslenska sporthýsið Mink Camper hefur fengið góðar viðtökur frá því að það kom fyrst á markað fyrir fimm árum og nær fyrirtækið vart að anna eftirspurn. Myndir / Mink Camper
Haldið í nostalgíu útileguferða
Ólafur Gunnar Sverrisson er stofnandi og einn eigenda fyrirtækisins Mink Campers, sem framleiða íslenskt sporthýsi
sem kemst á nánast hvaða áfangastað sem er.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is