Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 20208
Samkvæmt tölum, sem teknar
hafa verð saman um fjárfjölda í
Grímsnes- og Grafningshreppi má
sjá hvað fé hefur fækkað mikið í
sveitarfélaginu frá 2013 til dagsins
í dag.
Þetta er í takt við það sem
er að gerast um allt land, sauðfé
fækkar og fækkar. Árið 2013 voru
samanlagt 3.696 fjár í Grímsnesi og
Grafningi, þar af 2.486 í Grímsnesi
og 1.210 fjár í Grafningi. Hefur fénu
fækkað jafnt og þétt og nú 2020 er
féð komið niður í 1.284 í Grímsnesi
og 754 í Grafningi. /MHH
Breytingar á fyrirkomulagi fjöl-
dreifingar hjá Póstinum í vor hafa
leitt til þess að lögbýli í nokkrum
póstnúmerum í námunda við þétt-
býli fá ekki lengur Bændablaðið
sent til sín. Bændur á viðkomandi
lögbýlum eru hvattir til að hafa
samband við blaðið.
Pósturinn er hættur að bjóða
fjölpóstdreifingu á höfuð
borgarsvæðinu, Akranesi, Suður
nesjum og Selfossi. Þetta hefur þau
áhrif að dreifing á Bændablaðinu
breytist á þann veg að lögbýli í
póstnúmerum 101–300 og 800 fá
ekki blaðið sent til sín nema það
sé nafnamerkt. Fjöldi lögbýla í
þessum póstnúmerum er ríflega
100 talsins, flest í Kjósinni (pnr.
276) og Mosfellsbæ (271).
Eru íbúar lögbýla á þessum
svæðum, sem ekki hafa fengið
blaðið sent að undanförnu, hvatt
ir til að senda upplýsingar með
nafni, heimilisfangi og kennitölu
í netfangið bbl@bondi.is.
Þeir sem eru aðilar að Bænda
samtökum Íslands og greiða
þangað félagsgjöld munu fá
blaðið sent til sín sérmerkt með
póstinum endurgjaldslaust.
Þeir sem ekki eru aðilar að
Bænda samtökum Íslands en
vilja fá blaðið sent, þurfa að
greiða póstdreifingarkostnað eins
og aðrir áskrifendur. Ársáskrift
kostar 11.200 krónur en eldri
borgarar og öryrkjar greiða 7.200
krónur.
Bændablaðið er prentað í 32
þúsund eintökum og dreift ókeyp
is á yfir 400 stöðum á landinu,
m.a. í matvöruverslunum, sund
laugum og fleiri almenningsstöð
um. Blaðinu er dreift til 5.400
lögbýla.
FRÉTTIR
– Bændablaðið –
Breytingar á dreifingu
í kringum þéttbýli
Þessa skemmtilegu mynd af hrútunum Bubba og Megasi tók Lilja Sigurlína
Pálmadóttir nýlega en hún býr á Hofstorfunni á Hofi á Höfðaströnd. Hrútarnir
eru þó ekki í eigu Lilju heldur á Jónas Þór Einarsson á Brekkunni á Hofsósi
þessa myndarlegu hrúta.
Hrútarnir Bubbi og Megas
Ár Grímsnes Grafningur Fjárfjöldi alls
2013 2.486 1.210 3.696
2014 2.403 1.322 3.725
2015 2.376 1.385 3.761
2016 2.173 973 3.146
2017 1.935 953 2.888
2018 1.813 927 2.740
2019 1.441 921 2.362
2020 1.284 754 2.038
Grímsnes- og Grafningshreppur:
Mikil fækkun sauðfjár
Gott ferðasumar í Grímsey
Grímseyingar eru ánægðir með
nýliðið sumar, einkum hversu
margir Íslendingar lögðu leið
sína út í eyju og nutu þess sem
hún hefur upp á að bjóða. Margir
dvöldu eina nótt eða tvær og
voru duglegir að nýta þjónustu
sem í boði var, versla og kaupa
veitingar, og völdu gjarnan vörur
úr heimabyggð fram yfir aðrar.
Að jafnaði var vel bókað með
ferjunni Sæfara í hvert sinn sem
siglt var, 30 til 50 manns í ferð.
Íslendingar voru áberandi í byrjun
sumars en þegar leið á fóru erlendir
gestir einnig að sjást, en þeir kjósa
nær alltaf dagsferðir. Um fimm
klukkustunda dvöl er í eynni meðan
ferjan liggur við bryggju í Grímsey.
Komur skemmtiferðaskipa féllu
nánast alveg niður í sumar fyrir utan
þrjár og því var töluvert minna selt
af minjagripum og lopapeysum en
fyrri ár.
Nú hefur vetraráætlun tekið
gildi hjá ferjunni Sæfara sem sigl
ir fjóra daga vikunnar frá Dalvík
og í Grímsey: mánudaga, mið
vikudaga, fimmtudaga og föstu
daga. Auk þess býður flugfélagið
Norlandair upp á áætlunarflug frá
Akureyri þrisvar sinnum í viku út
árið. Þetta kemur fram á vefsíðu
Akureyrarbæjar. /MÞÞ
Innflutningur landbúnaðarafurða:
Ósamræmi milli útflutningstalna ESB
og innflutningstalna Hagstofunnar
Komið hefur í ljós að mikið ósam-
ræmi er í magntölum sem sýna
innflutningstölur Hagstofunnar
til Íslands og útflutningstölur frá
löndum Evrópusambandsins á
ýmsum landbúnaðarvörum.
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að hann
hafi nýverið fundað með bæði fjár
málaráðherra og utanríkisráðherra
um málið.
„Fjármálaráðherra samþykkti á
fundinum að skipa starfshóp til að
skoða þetta ósamræmi á grundvelli
innflutningstalna Hagstofu Íslands og
útflutningstalna Evrópusambandsins
til Íslands.
Bændasamtökin áttu síðar fund
með utanríkisráðherra um sama mál
og vorum við einnig að velta fyrir
okkur stöðunni gagnvart samning
um við Breta og útgöngu þeirra úr
Evrópusambandinu. Ef gerður yrði
tollasamningur við Breta yrði hann
að byggja á einhverjum magntölum
en við vitum ekki hvert það yrði þá á
grundvelli magntalna Hagstofunnar
eða tölum frá Evrópusambandinu.
Það liggur því ljóst fyrir að það
verður að komast að því hvaða tölur
eru réttar ef það á að fara að gera
einhverja samninga um millilanda
viðskipti.“
Gunnar segist ekki vita hver stað
an er hjá starfshópi fjármálaráðu
neytisins en vonast til að hann sé
farinn að skoða málið því munurinn
í magntölum sumra vöruflokka sé
gríðarlega mikill. /VH
Norðlenska fær heimild til að dreifa
gor á svæði til uppgræðslu
Sveitarstjórn Norðurþings hefur
samþykkt að veita Norðlenska (sem
nú er hluti af Búsæld ehf.) heimild
til að losa gor á landi innan afgirts
svæðis á Ærvíkurhöfða, en það
hefur verið leigt út til uppgræðslu
skógar á vegum Kolviðs. Tekið er
sér staklega fram að með gor sé átt
við skilgreiningu hugtaksins á þá
vegu að um „innihald meltingar-
vegar“ sé að ræða.
Norðlenska átti í viðræðum við
sveitarfélagið um að leitað yrði
leiða til að nýta gor og blóð sem
til fellur í sláturtíð til uppgræðslu í
landi sveitarfélagsins. Sveitarfélagið
leitaði álits Heilbrigðiseftirlits og
Matvælastofnunar á mögulegri
dreifingu efnanna á Ærvíkurhöfða,
innan girðingar sem girðir nú af
land sem leigt hefur verið Kolviði til
uppgræðslu skógar.
Taka þarf tillit til smithættu
Um dreifingu gors, sem er innihald
meltingarvegar, eru settar sömu kröfur
og fyrir húsdýraáburð og má sem
slíkt nota innihald meltingarvegar á
landi án vinnslu. Öðru máli gegnir
um blóðið þar sem taka þarf tillit til
smitáhættu af því og dreifingu þess þar
sem slátrað er í umræddu sláturhúsi frá
riðusvæðum og þar sem Ærvíkurhöfði
er í nálægð við sauðfjárbúskap, byggð
og árvegi er umrætt hólf á höfðanum
því ekki talið heppilegt til dreifingar
á blóði. Í framhaldi af því óskaði
Norðlenska eftir því að fá heimild
til að bera innihald meltingarvega
sauðfjár (gor) til uppgræðslu innan
girðingarinnar í samráði við Kolvið,
en að blóðvatn fari í fráveitukerfi
Norðurþings á Húsavík.
Þrír fyrirvarar
Á fundi sveitarstjórnar lagði Kristján
Þór Magnússon sveitarstjóri fram
tillögu sem samþykkt var samhljóða.
Settir voru þrír fyrirvarar við
heimildina, sá fyrsti að framkvæmd
losunar fari ekki fram nema í
samráði við forsvarsmenn Kolviðs
og starfsmenn sveitarfélagsins. Þá
var heimildin tímabundin til eins árs
og í þriðja lagi að ef reynsla af því
að bera efnið á landsvæðið veldur
umtalsverðu ónæði vegna aukins
ágangs fugla á svæðinu þá verði
heimildin tekin til endurskoðunar í
skipulags og framkvæmdaráði eins
skjótt og verða má.
Sveitarstjórn fól sveitarstjóra að
tryggja að óháður aðili hafi eftirlit með
framkvæmdinni og áhrifum hennar
á nánasta umhverfi. Niðurstöður
verði lagðar fram á fundi skipulags
og framkvæmdaráðs eftir því sem
framkvæmd tilraunarinnar vindur
fram. /MÞÞ
Gor úr vömbum sauðfjár getur hentað vel til uppgræðslu lands. Mynd / HKr.
Samruni Norðlenska og Kjarnafæðis:
Búsæld hefur samþykkt sameiningar
Samþykkt var á aðalfundi
Búsældar ehf. að fela stjórn
félagsins fullt og óskorað umboð
til að samþykkja sameiningu
Norðlenska Matsborðsins ehf.,
Kjarnafæðis hf. og SAH afurða
ehf. í samræmi við kynningu á
fundinum og til að standa að
ákvörðunum og aðgerðum sem
nauðsynlegar eru til að ljúka vinnu
við samruna félaganna. Þetta var
samþykkt með 86,25% greiddra
atkvæða.
Norðlenska og Kjarnafæði
komust í byrjun júlí að samkomu
lagi um helstu skilmála samruna
félaganna. Viðræður um samruna
þeirra hafa staðið yfir frá því á haust
mánuðum 2018 og voru á tímabili
settar á ís. Félögin náðu saman um
þau atriði sem út af stóðu.
Brugðist við breytingum í
rekstrarumhverfi matvælaiðnaðar
Með samruna félaganna eru
eigendur að bregðast við breytingum
í rekstrarumhverfi matvælaiðnaðar
undanfarin misseri. Það er mat
eigenda félaganna að sameinað fé
lag sé betur í stakk búið til að veita
viðskipta vinum sínum og birgjum,
ekki síst bændum, góða þjónustu á
samkeppnishæfu verði. Kjarnafæði
er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins
Gunnlaugssona, en Norðlenska er í
eigu Búsældar, sem er í eigu um 500
bænda á Íslandi.
Samkomulag um samruna félag
anna var gert með fyrirvara um sam
þykki samkeppnisyfirvalda og sam
þykki hluthafafundar Búsældar. Það
samþykki er nú í höfn.
Stjórn Búsældar var kjörin til
eins árs í senn. Í stjórn eru Björgvin
Gunnarsson, Núpi Berufirði, Geir
Árdal, Dæli Fnjóskadal, Gróa
Jóhannsdóttir, Hlíðarenda Breiðdal,
Guðmundur Óskarsson, Hríshóli
Eyjafjarðarsveit og Þórarinn Ingi
Pétursson, Grund Grýtubakkahreppi.
/MÞÞ
Úr sláturhúsi SAH á Blönduósi.
Meira virðist vera flutt út af einstökum tegundum landbúnaðarafurða frá
Evrópusambandinu en fram kemur í opinberum innflutningstölum á Íslandi.
Í sumum flokkum munar mjög miklu í magntölum.