Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 29 hýsin í byrjun eingöngu sem leigumöguleika, það er, við ætluðum aldrei að fara að framleiða hjólhýsi og selja til almennings heldur einungis til að leigja. Við hugsuðum að þannig gætum við í raun elt ferðamannastrauminn hvert sem er í heiminum. Við vildum auðvelda fólki að fara í útilegu og lögðumst því í mikla vinnu við að nútímavæða gömlu hugmyndina um dropann en við vildum halda í gömlu nostalgíuna við að fara í útilegu. Þannig að við hugsuðum til baka hvað það var sem gerði útilegur skemmtilegar. Jú, það þurfti að sækja vatn í lækinn og þess vegna erum við ekki með vatnstanka í Minknum sem dæmi. Hugsunin er einfaldleikinn, vagninn samanstendur af björtu innra rými með þægilegri 140x200 svefndýnu og stórum loftglugga en að utanverðu er eldunaraðstaða með kæliboxi. Svo er hægt að bæta við Webasto-hitakerfi, sólarsellu og Bose-hátalarakerfi. Ég vil þó taka fram að við erum ekki í samkeppni við hjólhýsi og húsbíla heldur viljum við mun frekar tengja okkur við tjaldútileguna og áherslan er á útivist og þetta á að vera meira tjaldfílingurinn,“ útskýrir Ólafur og segir jafnframt: „Fyrstu fjögur árin vorum við eingöngu í útleigu og komumst að því að um 15% prósent af viðskiptavinum okkar höfðu aldrei farið í útilegu áður. Eitt frum skilyrðanna hjá okkur við hönn un og smíði hýsanna var að þau yrðu að þola nánast hvað sem er og geta verið í stans- lausri notkun. Vagninn mátti ekki hristast í sundur á íslenskum malarvegum og hann yrði að þola vind og rok. Þó að Minkurinn Camper sé mjög léttur, nettur og lítill, þá þolir hann vel íslenska rokið, á meðan flestir aðrir aftanívagnar þola í raun ekki meira en um 15 metra á sekúndu. Minkurinn er hugsaður fyrir náttúruunnendur, fólk sem vill komast á afskekkta staði með vagninn í eftirdragi og geta upplifað náttúruna og til dæmis stundað sína útivist og útiveru hvar og hvenær sem er.“ Samsuða hönnuða úr ólíkum áttum Fyrstu sporthjólhýsin komu á markað árið 2015 og hingað til hefur fyrirtækið framleitt 26 vagna sem selst hafa hérlendis og erlendis. „Við höfum gert mismunandi útgáfur af frumgerðinni og erum núna komin niður á endanlega útgáfu. Nú felst þróunarvinnan í að vinna með hönnun ýmissa aukahluta eins og fortjöld og fleira. Við munum jafnvel hanna minni útgáfu af Mink Camper. Í ferlinu höfum við sankað að okkur rúmlega 10 hönnuðum sem hafa komið að þróunarvinnunni á mismunandi stigum. Þetta er því samstarfsverkefni margra ólíkra aðila. Við vildum gera hjólhýsi með skandínavísku og nútímalegu útliti sem myndi höfða fagurfræðilega til fólks. Hann á að líta svalur út aftan í hvaða bíl sem er þegar þú ert að draga hann. Við prófuðum mismunandi liti í rammann en enduðum á gula litnum því frá náttúrunnar hendi er guli liturinn fyrsti liturinn sem fólk tekur eftir, einn grunnlitanna þriggja, og hann kallar fram hlýju. Litur sólarinnar og gleðinnar. Það er líka engin tilviljun að umferðarskilti og vinnuvélar eru yfirleitt gul á litinn þar sem hann vekur athygli,“ Birgjar fyrirtækisins eru í Evrópu en undirvagninn kemur frá Þýskalandi, plastið er steypt í Bretlandi og glerið kemur frá Hollandi. Framleiðslan fer fram í Hafnarfirði, þar sem hvert og eitt hýsi er sett saman. „Eftirspurnin eftir kaupum hefur verið ofboðsleg þannig að við ákváðum að hvíla aðeins leiguþáttinn. Við höfum þurft að fara í endurhönnun og gera hýsið framleiðsluvænna en til stendur að hefja fjöldaframleiðslu fljótlega í Lettlandi. Við höfum þurft að setja þau áform í biðstöðu vegna heimsfaraldursins en reiknum með að geta hafið framleiðslu þar í október. Þá færumst við nær því að geta annað eftirspurn og afkastagetan verður mun meiri.“ Samstarf við bændur Megnið af fyrirspurnum sem fyrirtækið fær kemur utan úr heimi en frá byrjun hafa hátt í 10 þúsund aðilar haft samband vegna áhuga á Minknum. „Við erum með 20 hýsi í smíðum núna en þau eru öll uppseld og fara til Noregs, Hollands og Frakk lands. Einnig er önnur 20 hýsa pöntun uppseld og eitthvað af því fer hér á inn an lands- markað. Þeir sem eru áhugasamir fyrir því að fá sér Mink, eins og fyrir næsta sumar, þurfa að vera snarir í snúningum að panta þar sem við framleiðum aðeins upp í pantanir eins og er,“ segir Ólafur, og aðspurður um nafnið á sporthýsinu útskýrir hann: „Minkurinn er útsjónarsamur einfari, hann ferðast ekki í hópum og fer sínar eigin leiðir. Við viljum dreifa ferðamönnum sem mest um allar sveitir og hluti hugmyndarinnar að nafninu er líka vísun í minkagreni. Við myndum gjarnan vilja koma á meiru samstarfi við bændur sem hafa upp á afþreyingu og þjónustu að bjóða. Við kæmum ferðamanninum á staðinn með gistinguna en hann kaupir upplifun, afþreyingu, skemmtun og þjónustu af heimafólkinu. Eftir þessu eru flestir ferðamenn að sækjast, hinni svokölluðu svæðisbundnu upplifun án mannmergðar en einnig þægilegum ferðamáta.“ Haust í Líflandi REYKJAVÍK LYNGHÁLSI 3 SÍMI: 540 1125 LÍFLAND SÖLUDEILD BRÚARVOGI 1-3 SÍMI: 540 1100 lifland@lifland.is AKUREYRI ÓSEYRI 1 SÍMI: 540 1150 BORGARNESI BORGARBRAUT 55 SÍMI: 540 1154 BLÖNDUÓSI EFSTUBRAUT 1 SÍMI: 540 1155 HVOLSVELLI ORMSVELLI 5 SÍMI: 487 8888 „Hugsunin er einfaldleikinn, vagninn samanstendur af björtu innra rými með þægilegri 140x200 svefndýnu og stórum loftglugga en að utanverðu er eldunarað- staða með kæliboxi,“ segir stofnandi og eigandi Mink Campers, Ólafur Gunnar Sverrisson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.