Bændablaðið - 10.09.2020, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 29
hýsin í byrjun eingöngu sem
leigumöguleika, það er, við ætluðum
aldrei að fara að framleiða hjólhýsi
og selja til almennings heldur
einungis til að leigja. Við hugsuðum
að þannig gætum við í raun elt
ferðamannastrauminn hvert sem er
í heiminum. Við vildum auðvelda
fólki að fara í útilegu og lögðumst
því í mikla vinnu við að nútímavæða
gömlu hugmyndina um dropann en
við vildum halda í gömlu nostalgíuna
við að fara í útilegu. Þannig að við
hugsuðum til baka hvað það var
sem gerði útilegur skemmtilegar.
Jú, það þurfti að sækja vatn í lækinn
og þess vegna erum við ekki með
vatnstanka í Minknum sem dæmi.
Hugsunin er einfaldleikinn, vagninn
samanstendur af björtu innra rými
með þægilegri 140x200 svefndýnu og
stórum loftglugga en að utanverðu er
eldunaraðstaða með kæliboxi. Svo er
hægt að bæta við Webasto-hitakerfi,
sólarsellu og Bose-hátalarakerfi. Ég
vil þó taka fram að við erum ekki í
samkeppni við hjólhýsi og húsbíla
heldur viljum við mun frekar tengja
okkur við tjaldútileguna og áherslan
er á útivist og þetta á að vera meira
tjaldfílingurinn,“ útskýrir Ólafur og
segir jafnframt:
„Fyrstu fjögur árin vorum við
eingöngu í útleigu og komumst að því
að um 15% prósent af viðskiptavinum
okkar höfðu aldrei farið í útilegu
áður. Eitt frum skilyrðanna hjá okkur
við hönn un og
smíði hýsanna
var að þau
yrðu að þola
nánast hvað
sem er og geta
verið í stans-
lausri notkun.
Vagninn mátti ekki hristast í sundur á
íslenskum malarvegum og hann yrði
að þola vind og rok. Þó að Minkurinn
Camper sé mjög léttur, nettur og lítill,
þá þolir hann vel íslenska rokið, á
meðan flestir aðrir aftanívagnar þola
í raun ekki meira en um 15 metra
á sekúndu. Minkurinn er hugsaður
fyrir náttúruunnendur, fólk sem
vill komast á afskekkta staði með
vagninn í eftirdragi og geta upplifað
náttúruna og til dæmis stundað sína
útivist og útiveru hvar og hvenær
sem er.“
Samsuða hönnuða
úr ólíkum áttum
Fyrstu sporthjólhýsin komu á
markað árið 2015 og hingað til hefur
fyrirtækið framleitt 26 vagna sem
selst hafa hérlendis og erlendis.
„Við höfum gert mismunandi
útgáfur af frumgerðinni og erum núna
komin niður á endanlega útgáfu. Nú
felst þróunarvinnan í að vinna með
hönnun ýmissa aukahluta eins og
fortjöld og fleira. Við munum jafnvel
hanna minni útgáfu af Mink Camper.
Í ferlinu höfum við
sankað að okkur
rúmlega 10 hönnuðum
sem hafa komið að
þróunarvinnunni
á mismunandi
stigum. Þetta er því
samstarfsverkefni margra ólíkra
aðila. Við vildum gera hjólhýsi með
skandínavísku og nútímalegu útliti
sem myndi höfða fagurfræðilega til
fólks. Hann á að líta svalur út aftan í
hvaða bíl sem er þegar þú ert að draga
hann. Við prófuðum mismunandi
liti í rammann en enduðum á gula
litnum því frá náttúrunnar hendi er
guli liturinn fyrsti liturinn sem fólk
tekur eftir, einn grunnlitanna þriggja,
og hann kallar fram hlýju. Litur
sólarinnar og gleðinnar. Það er líka
engin tilviljun að umferðarskilti og
vinnuvélar eru yfirleitt gul á litinn
þar sem hann vekur athygli,“
Birgjar fyrirtækisins eru í
Evrópu en undirvagninn kemur
frá Þýskalandi, plastið er steypt
í Bretlandi og glerið kemur frá
Hollandi. Framleiðslan fer fram í
Hafnarfirði, þar sem hvert og eitt
hýsi er sett saman.
„Eftirspurnin eftir kaupum
hefur verið ofboðsleg þannig
að við ákváðum að hvíla aðeins
leiguþáttinn. Við höfum þurft að
fara í endurhönnun og gera hýsið
framleiðsluvænna en til stendur að
hefja fjöldaframleiðslu fljótlega
í Lettlandi. Við höfum þurft að
setja þau áform í biðstöðu vegna
heimsfaraldursins en reiknum með
að geta hafið framleiðslu þar í
október. Þá færumst við nær því að
geta annað eftirspurn og afkastagetan
verður mun meiri.“
Samstarf við bændur
Megnið af fyrirspurnum sem
fyrirtækið fær kemur utan úr heimi
en frá byrjun hafa hátt í 10 þúsund
aðilar haft samband vegna áhuga á
Minknum.
„Við erum með 20 hýsi í smíðum
núna en þau eru öll
uppseld og fara til
Noregs, Hollands
og Frakk lands.
Einnig er önnur 20
hýsa pöntun uppseld
og eitthvað af því fer
hér á inn an lands-
markað. Þeir sem
eru áhugasamir fyrir
því að fá sér Mink,
eins og fyrir næsta
sumar, þurfa að vera
snarir í snúningum
að panta þar sem við
framleiðum aðeins upp í pantanir
eins og er,“ segir Ólafur, og
aðspurður um nafnið á sporthýsinu
útskýrir hann:
„Minkurinn er útsjónarsamur
einfari, hann ferðast ekki í hópum
og fer sínar eigin leiðir. Við viljum
dreifa ferðamönnum sem mest um
allar sveitir og hluti hugmyndarinnar
að nafninu er líka vísun í minkagreni.
Við myndum gjarnan vilja koma
á meiru samstarfi við bændur
sem hafa upp á afþreyingu og
þjónustu að bjóða. Við kæmum
ferðamanninum á staðinn með
gistinguna en hann kaupir upplifun,
afþreyingu, skemmtun og þjónustu
af heimafólkinu. Eftir þessu eru
flestir ferðamenn að sækjast,
hinni svokölluðu svæðisbundnu
upplifun án mannmergðar en einnig
þægilegum ferðamáta.“
Haust í Líflandi
REYKJAVÍK
LYNGHÁLSI 3
SÍMI: 540 1125
LÍFLAND SÖLUDEILD
BRÚARVOGI 1-3
SÍMI: 540 1100
lifland@lifland.is
AKUREYRI
ÓSEYRI 1
SÍMI: 540 1150
BORGARNESI
BORGARBRAUT 55
SÍMI: 540 1154
BLÖNDUÓSI
EFSTUBRAUT 1
SÍMI: 540 1155
HVOLSVELLI
ORMSVELLI 5
SÍMI: 487 8888
„Hugsunin er einfaldleikinn, vagninn samanstendur af
björtu innra rými með þægilegri 140x200 svefndýnu
og stórum loftglugga en að utanverðu er eldunarað-
staða með kæliboxi,“ segir stofnandi og eigandi Mink
Campers, Ólafur Gunnar Sverrisson.