Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 21 Þótt töluverður vöxtur hafi verið í framleiðslu og sölu á rafbílum í heiminum er samt langt í land að rafbílar nái afgerandi hlutdeild á bílamarkaði vegna kostnaðar og of lítillar endingar rafhlaða. Þetta gæti þó verið að breytast ef marka má fréttir af endurbættum ofurrafhlöðum kínverska fyrir­ tækisins CATL. Þær eiga að endast í allt að 20 ár og til að aka tvær milljónir kílómetra. Talið er að þær geti umbylt afstöðu bílakaupenda til rafbíla. Á vefsíðunni Quartsz kemur fram að í lok árs hafi rafbílar af einhverjum toga verið orðnir 2,2% af heildar bílamarkaði heimsins. Ein megin ástæða þess að rafbílavæðingin gengur ekki hraðar eru vankantar á þeim rafhlöðum sem nú er notast við. Hreinir rafbílar í dag nota nær eingöngu Lithium-ion rafhlöður til að geyma orkuna. Rafhlaðan sem slík hefur ekki þróast mikið hvað orkurýmd og endingu áhrærir. Þá er viðurkennt að bílarafhlöður sem byggja á Lithium-ion tækni eru afar dýrar og hráefnin í þau eru mjög takmörkuð auðlind. Vegna þessa hefur þumalputtareglan verið að um þriðjungur kostnaðar við smíði á hverjum rafbíl sé rafhlaðan sjálf. Ábyrgð á endingu rafhlaðna frá flestum framleiðendum hefur miðast við frá 240.000 til 320.000 km, eða í 8 ár. Það þykir alls ekki nógu gott því meðalaldur bíla t.d. á Íslandi er 12 til 13 ár. Þá borgar sig hreinlega ekki að skipta um rafhlöðu þegar bíll er orðin 8–10 ár, auk þess sem förgun gamalla rafhlaðna er mjög dýr. Gjörbylting á endingu bílarafhlöðunnar? Í júní á þessu ári kynnti kínverska fyrirtækið Contemporary Amperex Technology Co. Ltd. (CATL) að ný rafhlöðutækni fyrirtækisins muni auka endingu bílarafhlaðna til aksturs í allt að 2 milljónir kílómetra, eða í 16 til 20 ár (CATL Million Mile Battery). Ef þetta stenst getur það gjörbreytt stöðunni á markaðnum og hjálpað mjög til á endursölumarkaði notaðra rafbíla. CATL reiknar með að byrjað verði á að setja milljón mílna rafhlöður í rafbíla þegar á næsta ári. CATL – öflugasti bílarafhlöðuframleiðandi í heimi CATL er stærsti framleiðandi bílaraf- hlaðna í heiminum og framleiðir m.a. fyrir Tesla, BMW, Toyota, Honda, Volkswagen, PSA Gorup, Renault. Mercedes-Benz, Bosh og Volvo. COVID-19 faraldurinn hefur ekki síður sett strik í reikninginn í fram- leiðslunni hjá CATL en öðrum fyr- irtækjum í heiminum sem tengjast bílaframleiðslu. Zeng Yuqun, stofn- andi og forstjóri CATL, gerir sér þó vonir um að hagurinn fari að vænkast á ný í sölu rafbíla þegar kemur fram á árið 2021. Vísindamenn kynna ofurrafhlöður CATL hefur ekki gefið út neinar upplýsingar í smáatriðum um „of- urendingargóðu” bílarafhlöðurnar, en talið er að einhverjar af þeim upp- lýsingum sé að finna í útreikningum sem gerðir voru af rannsóknarteymi Dalhousie háskóla í Nova Scotia í Kanada á síðasta ári. Teymið var undir forystu eðlisfræðingsins og prófessorsins Jeff Dahn sem gekk til liðs við Tesla við rannsóknir á raf- hlöðum. Grein um bílarafhlöðu, sem gæti dugað í meira en 1,6 milljónir kílómetra og gæti enst í 20 ár, var birt í Journal of the Electrochemical Society í september 2019. Rafhlaðan sem birt var í grein Jeff Dahn og félaga notar litíum-, nikkel-, mangan-, kóbalt-oxíð (NMC) fyrir bakskautið (jákvæða hleðslu) og gervi „grafít“ fyrir rafskautið (neikvæða hleðslu). Bakskaut rafhlaðna sem nú eru notaðar byggja á örsmáum NMC kristöllum, en nýja rafhlaðan notar stærri kristalla, sem sagt er stuðla að lengri heildarlíftíma. Ýmislegt er þó á huldu varðandi aðra þætti í þessari tækni, enda miklir peningahagsmunir í húfi þar sem menn halda þétt að sér spilunum. Eigi að síður virðist þetta geta glætt trú manna á að væntingar Elon Musk um rafhlöður sem endist meira en milljón mílur kunni brátt að rætast. Nýjar risaverksmiðjur í Kína og Þýskalandi CATL mun framleiða rafhlöður í nýja Tesla 3 bifreið í risaverk- smiðju sinni nærri Sjanghæ sem á að hefja framleiðslu á rafhlöðum á næsta ári. Þá er CATL að byggja aðra risaverksmiðju í Erfurt í Þýskalandi sem áætlað er að hefji framleiðslu 2022. Er sú verksmiðja byggð á grunni samnings sem BMW hefur gert við CATL um kaup á rafhlöðum fyrir einn millj- arð evra. Volkswagen er líka með samning við CATL, en einnig við þrjá aðra rafhlöðuframleiðendur, þ.e. LG Chem, Samsung SDI og SK Innavation. Ef ný og endingarbetri rafhlaða CATL verðu að veruleika, þá kann með henni líka að rætast spá fjár- málamiðilsins Bloomberg um að slík rafhlaða myndi lækka verulega verð á bílarafhlöðum og gera fram- leiðslu rafbíla ódýrari en bensínbíla strax á árinu 2022. Samt sem áður eru nýju rafhlöður CATL sagðar vera 10% dýrari í framleiðslu en hefðbundnar rafhlöður, en ef kostn- aði er deilt niður á endingartíma er ávinningurinn talinn verulegur. Unnið að þróun rafhlöðu án kóbalts Fleiri breytingar kunna að vera á döfinni í rafhlöðuframleiðslunni. Þannig segir í frétt á vefsíðu gad- getbyte að Zeng Yuqun, stofnandi og forstjóri CATL, hafi sagt að unnið væri að því í samvinnu við Tesla að þróa rafhlöðu sem ekki byggði á notkun á kóbalti, sem fer óðum þverrandi í heiminum. Þá á þessi rafhlaða heldur ekki að ini- halda nikkel. Er slíkum rafhlöðum ætlað að verða ódýrari en þær sem nú eru framleiddar og innihalda nikkel og kóbalt. Var þetta staðfest af Meng Xianfeng, aðstoðarfor- stjóra CATL, á ráðstefnu samtaka bílaframleiðenda í Sjanghæ nú í ágúst. Þá hefur Elon Musk að sögn Reuters hvatt námufyrirtæki til að auka framleiðslu á nikkel um leið og hann varaði við því að núver- andi kostnaður á bílarafhlöðum væri að halda aftur af vexti fyr- irtækisins. Kínverjar í lykilstöðu hvað sem síðar verður Það er engin tilviljun að Kínverjar og fyrirtæki eins og CATL séu í lykilaðstöðu í framleiðslu á bílaraf- hlöðum. Kínverjar hafa markvisst unnið að því um langan tíma að tryggja sér aðgengi að námum um allan heim og hráefni sem notað er í slíkar rafhlöður eins og kóbalt og liþíum. Fréttir af nýju rafhlöðunni virðast samt ekki hafa dugað til að halda uppi markaðsvirði hlutabréfa í CATL enn sem komið er. /HKr. BÆNDUR ATHUGIÐ! Starfsemi er hafin í nýju húsnæði okkar að Lækjarflóa 10a, Akranesi. Ný verðskrá tók gildi 1. september. Athugið öll verð eru án vsk. VERÐ Á HEYGREININGARPÖKKUM HAUSTIÐ 2020 HEY 1 Hráprótein, meltanleiki NDF og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar (Fóðureiningar). Verð kr 4.478.- HEY 2 Hráprótein, meltanleiki og NDF, iNDF og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar. Ca, Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn og Zn. Verð kr: 7.879.- HEY 3 Sama og HEY 2 nema selen og sCP bætist við. Verð kr. 9.013.- HEY 4 Hráprótein, meltanleiki, NDF, iNDF, sykur og sCP mælt með NIR-tækni + orkuútreikningur. Ca, Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn, Zn, Se, Co og Mo. Aska, klóríð og sykur. Sýrustig ef þörf er á. Þessi greining hentar vel ef um þurrt rúlluhey (lítið verkað) eða hirðingarsýni er að ræða. Þessi greining er fyrir þá sem eru í NorFor. Verð kr. 10.486.- HEY 5 Sama og HEY 4 Ammonium bætist við. Þessi greining er fyrir þá sem eru í NorFor og um verkað hey/fóður er að ræða. Verð kr. 11.620.- HEY 6 Eins og HEY 5 nema við bætist Ediksýra og mjólkursýra. NorFor. Verð kr 15.022.- HEY 7 Þessi greining er með útreikninga fyrir hesthey t.d heygjöf á hest á dag miðað við létta brúkun. Getur verið Heyefnagreining 1, 2 eða 3. HEY 8 Sama og HEY 4 nema ekki selen, kóbolt og mólybden. NorFor. Verð kr. 9.240.- Athugið: Í öllum greiningum nema HEY 1 er mælt sýrustig ef um vothey er að ræða. Hefðbundin jarðvegsefnagreining kr. 8.273.- ■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes ■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629 Nánari upplýsingar á efnagreining.is Kínverski bílarafhlöðurisinn CATL er talinn geta gjörbreytt stöðunni í rafbílaheiminum: Með ofurrafhlöður sem endast í 20 ár og sagðar duga í 2 milljónir kílómetra – Fyrstu „milljón mílna“ rafhlöðurnar eiga að fara í Tesla-bíla á næsta ári – Líka unnið að þróun kóbalt- og nikkellausra rafhlaðna Tesla Model 3. Ofurrafhlöðurnar í þessa bíla munu væntanlega verða frá CATL og eiga að geta skilað 650 km akstri á hleðslunni. Þá eiga þær að endast í allt að 20 ár og til aksturs hátt í tvær milljónir kílómetra. Þess má geta að Mercedes-Benz gerði samning við CATL 5. ágúst síðastliðinn um að CATL útvegaði ofurrafhlöður í lúxusbílinn Mercedes-Benz EQS sem kemur á markað á næsta ári. Á nýi Bensinn að komast yfir 700 km á einni hleðslu. Mynd / kasyous.com Ný verksmiðja Tesla Gigafactory 3 í Sjanghæ mun framleiða rafbíla sem verða búnir rafhlöðum frá kínverska rafhlöðurisanum CATL og LG Chem.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.