Bændablaðið - 10.09.2020, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 21
Þótt töluverður vöxtur hafi verið
í framleiðslu og sölu á rafbílum í
heiminum er samt langt í land að
rafbílar nái afgerandi hlutdeild
á bílamarkaði vegna kostnaðar
og of lítillar endingar rafhlaða.
Þetta gæti þó verið að breytast ef
marka má fréttir af endurbættum
ofurrafhlöðum kínverska fyrir
tækisins CATL. Þær eiga að
endast í allt að 20 ár og til að aka
tvær milljónir kílómetra. Talið
er að þær geti umbylt afstöðu
bílakaupenda til rafbíla.
Á vefsíðunni Quartsz kemur
fram að í lok árs hafi rafbílar af
einhverjum toga verið orðnir 2,2%
af heildar bílamarkaði heimsins. Ein
megin ástæða þess að rafbílavæðingin
gengur ekki hraðar eru vankantar á
þeim rafhlöðum sem nú er notast við.
Hreinir rafbílar í dag nota nær
eingöngu Lithium-ion rafhlöður til
að geyma orkuna. Rafhlaðan sem
slík hefur ekki þróast mikið hvað
orkurýmd og endingu áhrærir. Þá
er viðurkennt að bílarafhlöður sem
byggja á Lithium-ion tækni eru afar
dýrar og hráefnin í þau eru mjög
takmörkuð auðlind. Vegna þessa
hefur þumalputtareglan verið að
um þriðjungur kostnaðar við smíði
á hverjum rafbíl sé rafhlaðan sjálf.
Ábyrgð á endingu rafhlaðna frá
flestum framleiðendum hefur miðast
við frá 240.000 til 320.000 km, eða
í 8 ár. Það þykir alls ekki nógu gott
því meðalaldur bíla t.d. á Íslandi er
12 til 13 ár. Þá borgar sig hreinlega
ekki að skipta um rafhlöðu þegar bíll
er orðin 8–10 ár, auk þess sem förgun
gamalla rafhlaðna er mjög dýr.
Gjörbylting á endingu
bílarafhlöðunnar?
Í júní á þessu ári kynnti kínverska
fyrirtækið Contemporary Amperex
Technology Co. Ltd. (CATL) að
ný rafhlöðutækni fyrirtækisins
muni auka endingu bílarafhlaðna til
aksturs í allt að 2 milljónir kílómetra,
eða í 16 til 20 ár (CATL Million Mile
Battery). Ef þetta stenst getur það
gjörbreytt stöðunni á markaðnum og
hjálpað mjög til á endursölumarkaði
notaðra rafbíla. CATL reiknar með
að byrjað verði á að setja milljón
mílna rafhlöður í rafbíla þegar á
næsta ári.
CATL – öflugasti
bílarafhlöðuframleiðandi í heimi
CATL er stærsti framleiðandi bílaraf-
hlaðna í heiminum og framleiðir m.a.
fyrir Tesla, BMW, Toyota, Honda,
Volkswagen, PSA Gorup, Renault.
Mercedes-Benz, Bosh og Volvo.
COVID-19 faraldurinn hefur ekki
síður sett strik í reikninginn í fram-
leiðslunni hjá CATL en öðrum fyr-
irtækjum í heiminum sem tengjast
bílaframleiðslu. Zeng Yuqun, stofn-
andi og forstjóri CATL, gerir sér þó
vonir um að hagurinn fari að vænkast
á ný í sölu rafbíla þegar kemur fram
á árið 2021.
Vísindamenn kynna
ofurrafhlöður
CATL hefur ekki gefið út neinar
upplýsingar í smáatriðum um „of-
urendingargóðu” bílarafhlöðurnar,
en talið er að einhverjar af þeim upp-
lýsingum sé að finna í útreikningum
sem gerðir voru af rannsóknarteymi
Dalhousie háskóla í Nova Scotia í
Kanada á síðasta ári. Teymið var
undir forystu eðlisfræðingsins og
prófessorsins Jeff Dahn sem gekk
til liðs við Tesla við rannsóknir á raf-
hlöðum. Grein um bílarafhlöðu, sem
gæti dugað í meira en 1,6 milljónir
kílómetra og gæti enst í 20 ár, var
birt í Journal of the Electrochemical
Society í september 2019.
Rafhlaðan sem birt var í grein Jeff
Dahn og félaga notar litíum-, nikkel-,
mangan-, kóbalt-oxíð (NMC) fyrir
bakskautið (jákvæða hleðslu)
og gervi „grafít“ fyrir rafskautið
(neikvæða hleðslu). Bakskaut
rafhlaðna sem nú eru notaðar byggja
á örsmáum NMC kristöllum, en nýja
rafhlaðan notar stærri kristalla, sem
sagt er stuðla að lengri heildarlíftíma.
Ýmislegt er þó á huldu varðandi aðra
þætti í þessari tækni, enda miklir
peningahagsmunir í húfi þar sem
menn halda þétt að sér spilunum.
Eigi að síður virðist þetta geta glætt
trú manna á að væntingar Elon Musk
um rafhlöður sem endist meira en
milljón mílur kunni brátt að rætast.
Nýjar risaverksmiðjur
í Kína og Þýskalandi
CATL mun framleiða rafhlöður
í nýja Tesla 3 bifreið í risaverk-
smiðju sinni nærri Sjanghæ sem á
að hefja framleiðslu á rafhlöðum
á næsta ári. Þá er CATL að byggja
aðra risaverksmiðju í Erfurt í
Þýskalandi sem áætlað er að hefji
framleiðslu 2022. Er sú verksmiðja
byggð á grunni samnings sem
BMW hefur gert við CATL um
kaup á rafhlöðum fyrir einn millj-
arð evra. Volkswagen er líka með
samning við CATL, en einnig við
þrjá aðra rafhlöðuframleiðendur,
þ.e. LG Chem, Samsung SDI og
SK Innavation.
Ef ný og endingarbetri rafhlaða
CATL verðu að veruleika, þá kann
með henni líka að rætast spá fjár-
málamiðilsins Bloomberg um að
slík rafhlaða myndi lækka verulega
verð á bílarafhlöðum og gera fram-
leiðslu rafbíla ódýrari en bensínbíla
strax á árinu 2022. Samt sem áður
eru nýju rafhlöður CATL sagðar
vera 10% dýrari í framleiðslu en
hefðbundnar rafhlöður, en ef kostn-
aði er deilt niður á endingartíma
er ávinningurinn talinn verulegur.
Unnið að þróun
rafhlöðu án kóbalts
Fleiri breytingar kunna að vera á
döfinni í rafhlöðuframleiðslunni.
Þannig segir í frétt á vefsíðu gad-
getbyte að Zeng Yuqun, stofnandi
og forstjóri CATL, hafi sagt að
unnið væri að því í samvinnu við
Tesla að þróa rafhlöðu sem ekki
byggði á notkun á kóbalti, sem fer
óðum þverrandi í heiminum. Þá á
þessi rafhlaða heldur ekki að ini-
halda nikkel. Er slíkum rafhlöðum
ætlað að verða ódýrari en þær sem
nú eru framleiddar og innihalda
nikkel og kóbalt. Var þetta staðfest
af Meng Xianfeng, aðstoðarfor-
stjóra CATL, á ráðstefnu samtaka
bílaframleiðenda í Sjanghæ nú í
ágúst. Þá hefur Elon Musk að sögn
Reuters hvatt námufyrirtæki til að
auka framleiðslu á nikkel um leið
og hann varaði við því að núver-
andi kostnaður á bílarafhlöðum
væri að halda aftur af vexti fyr-
irtækisins.
Kínverjar í lykilstöðu
hvað sem síðar verður
Það er engin tilviljun að Kínverjar
og fyrirtæki eins og CATL séu í
lykilaðstöðu í framleiðslu á bílaraf-
hlöðum. Kínverjar hafa markvisst
unnið að því um langan tíma að
tryggja sér aðgengi að námum um
allan heim og hráefni sem notað
er í slíkar rafhlöður eins og kóbalt
og liþíum.
Fréttir af nýju rafhlöðunni virðast
samt ekki hafa dugað til að halda
uppi markaðsvirði hlutabréfa í
CATL enn sem komið er. /HKr.
BÆNDUR ATHUGIÐ!
Starfsemi er hafin í nýju húsnæði okkar að Lækjarflóa 10a, Akranesi.
Ný verðskrá tók gildi 1. september. Athugið öll verð eru án vsk.
VERÐ Á HEYGREININGARPÖKKUM HAUSTIÐ 2020
HEY 1 Hráprótein, meltanleiki NDF og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar (Fóðureiningar). Verð kr 4.478.-
HEY 2 Hráprótein, meltanleiki og NDF, iNDF og sykur mælt með NIR-tækni + orkuútreikningar. Ca, Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn og Zn. Verð kr: 7.879.-
HEY 3 Sama og HEY 2 nema selen og sCP bætist við. Verð kr. 9.013.-
HEY 4
Hráprótein, meltanleiki, NDF, iNDF, sykur og sCP mælt með NIR-tækni + orkuútreikningur. Ca,
Mg, K, Na, P, S, Fe, Cu, Mn, Zn, Se, Co og Mo. Aska, klóríð og sykur. Sýrustig ef þörf er á. Þessi
greining hentar vel ef um þurrt rúlluhey (lítið verkað) eða hirðingarsýni er að ræða. Þessi greining
er fyrir þá sem eru í NorFor. Verð kr. 10.486.-
HEY 5 Sama og HEY 4 Ammonium bætist við. Þessi greining er fyrir þá sem eru í NorFor og um verkað hey/fóður er að ræða. Verð kr. 11.620.-
HEY 6 Eins og HEY 5 nema við bætist Ediksýra og mjólkursýra. NorFor. Verð kr 15.022.-
HEY 7 Þessi greining er með útreikninga fyrir hesthey t.d heygjöf á hest á dag miðað við létta brúkun. Getur verið Heyefnagreining 1, 2 eða 3.
HEY 8 Sama og HEY 4 nema ekki selen, kóbolt og mólybden. NorFor. Verð kr. 9.240.-
Athugið: Í öllum greiningum nema HEY 1 er mælt sýrustig ef um vothey er að ræða.
Hefðbundin jarðvegsefnagreining kr. 8.273.-
■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes
■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629
Nánari upplýsingar á
efnagreining.is
Kínverski bílarafhlöðurisinn CATL er talinn geta gjörbreytt stöðunni í rafbílaheiminum:
Með ofurrafhlöður sem endast í 20 ár
og sagðar duga í 2 milljónir kílómetra
– Fyrstu „milljón mílna“ rafhlöðurnar eiga að fara í Tesla-bíla á næsta ári – Líka unnið að þróun kóbalt- og nikkellausra rafhlaðna
Tesla Model 3. Ofurrafhlöðurnar í þessa bíla munu væntanlega verða frá CATL og eiga að geta skilað 650 km akstri
á hleðslunni. Þá eiga þær að endast í allt að 20 ár og til aksturs hátt í tvær milljónir kílómetra. Þess má geta að
Mercedes-Benz gerði samning við CATL 5. ágúst síðastliðinn um að CATL útvegaði ofurrafhlöður í lúxusbílinn
Mercedes-Benz EQS sem kemur á markað á næsta ári. Á nýi Bensinn að komast yfir 700 km á einni hleðslu.
Mynd / kasyous.com
Ný verksmiðja Tesla Gigafactory 3 í Sjanghæ mun framleiða rafbíla sem verða búnir rafhlöðum frá kínverska
rafhlöðurisanum CATL og LG Chem.