Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 26

Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202026 LÍF&STARF Margrét Jónsdóttir Njarðvík tók við keflinu í sumar sem rektor Háskólans á Bifröst: „Bifröst hefur skyldum að gegna gagnvart nærumhverfi sínu og landsbyggðinni allri“ Skólahald í Norðurárdal í Borgar­ firði má rekja allt aftur til ársins 1955 þegar Samvinnuskólinn flutti að Hreðavatni. Nú er boðið upp á nám á háskólastigi á staðnum. Háskólinn á Bifröst er fjölbreytt menntastofnun sem býður nem­ endum sínum upp á fræðslu, þekk­ ingu og þjálfun í viðskiptafræði með ýmsum áherslum, auk við­ skiptalögfræði og úrval félagsvís­ indagreina. Hlutverk skólans er að búa nemendur undir ábyrgð­ ar­, forystu­ og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppn­ isumhverfi. Samvinnuskólinn, Samvinnu­ háskólinn, Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn á Bifröst eru ein og sama stofnunin. Framan af var skólinn deild innan Sambands íslenskra samvinnufélaga og í eigu þess, en frá 1990 hefur hann verið sjálfseignarstofnun. Skólinn hefur breyst mikið frá stofnun og hafa þær breytingar átt sér stað í takt við breytt­ ar aðstæður og auknar menntunar­ kröfur samfélagsins. Í upphafi var um að ræða fárra mánaða nám, en í dag útskrifast nemendur skólans með BS­ eða BA­gráðu eftir þriggja ára háskólanám eða meistaragráðu eftir fimm ára nám en skólinn hóf kennslu á meistarastigi sumarið 2003. Byggðamálin eigi að vera á dagskrá skólans Í sumar tók nýr rektor við keflinu á Bifröst, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, en hún er ættuð frá Fljótstungu í Hvítársíðu. Aðspurð segist hún hlakka mjög til að takast á við krefj­ andi störf við Háskólann á Bifröst. Hún taki við góðu búi en vissu­ lega fylgi þó ætíð nýir siðir nýjum herrum. „Ég vil efla tengsl Bifrastar og nærumhverfisins. Og byggðamálin eiga að vera á dagskrá skólans, þau eiga að fá sinn sess í kennslunni,“ segir hún. Nýsköpun snýst ekki eingöngu um tölvur og tækni „Bifröst hefur skyldum að gegna gagnvart nærumhverfi sínu og lands­ byggðinni allri.“ Nú þurfi að stuðla að nýsköpun í dreifbýli sem Margrét segir að snúist ekki eingöngu um tölvur og tækni. Til að mynda þurfi að hjálpa öllum þeim er sinna fram­ leiðslu og nýsköpun í dreifbýli að koma vörum sínum á markað. „Þarna geti Háskólinn á Bifröst komið sterkur inn með sín góðu tengsl og þekkingu á viðskiptalíf­ inu.“ Margrét nefndi einnig að henni þætti vænt um að fá tækifæri til að setjast í sama stól og séra Guðmundur Sveinsson, sem var fyrsti skólastjóri Samvinnuskólans eftir að skólinn flutti að Hreðavatni. Hún hafi kynnst Guðmundi sem nemandi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en þann skóla stofnaði hann og mótaði eftir að hann lauk störfum á Bifröst. Alkunna er að Guðmundur var mikill skólamaður sem innleiddi nýjungar í menntun, m.a. eflingu starfs­ og verk­ náms. Í anda þeirra hugsjóna sem Guðmundur stóð fyrir telur Margrét mikilvægt að efla Háskólagáttina en hún býr nemendur sem ekki hafa stúdentspróf undir nám á háskóla­ stigi. „Úti um allt land eru hópar fólks sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, Gáttin opnar þessu fólki nýja leið og með kröftugu fjarnámi er skólinn vel í stakk búinn til að stuðla að aukinni menntun úti í hinum dreifðu byggð­ um.“ Vill efla byggðina á Bifröst Margrét vill efla byggðina á Bifröst. Hún leggur ríka áherslu á að starfs­ fólkið búi á staðnum eða í nær­ liggjandi sveitum. Á dögunum réð hún tvo nýja stjórn endur að skólanum; tvær kraft ­ miklar konur sem báðar búa í Borgar­ byggð og þekkja vel til skólans, þær Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur frá Brekkukoti í Reykholtsdal, sem ráðin var kennslustjóri, og Þorbjörgu Valdísi Kristjánsdóttur frá Laxholti í Borgarfirði, sem ráðin var alþjóða­ fulltrúi. Nýr kennslustjóri með sterkar rætur í Borgarfirði Halldóra Lóa starfaði áður sem náms­ og starfsráðgjafi við skól­ ann. Halldóra situr einnig í sveitar­ stjórn Borgarbyggðar, þar sem hún er m.a. formaður byggðarráðs og situr fyrir hönd sveitarfélagsins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hún á sterkar rætur og stóran frænd­ garð í Borgarfirði; t.a.m. var Þórir Steinþórsson frá Gautlöndum langafi hennar en hann var lengi skólastjóri Héraðsskólans í Reykholti og sinnti því starfi samhliða búskap á staðnum. Hún er full tilhlökkunar að takast á við ný störf á nýjum vettvangi sem hún þekkir þó býsna vel. „Reynslan úr námsráðgjöfinni er mér mjög dýrmætt veganesti þegar kemur að því að móta kennsluna í skólanum,“ segir hún. Mikilvægt sé að hafa í huga þarfir ólíkra nem­ enda enda hafi skólinn löngum verið í fararbroddi í innleiðingu og þróun nýrra kennsluhátta, t.d. sé skólaárinu skipt upp í lotur og fjarnám skólans sé öflugt. Allt stuðli þetta að því að hjálpa nemendum að takast á við krefjandi störf. Gott námsumhverfi skiptir miklu en það opnar nýjar leið­ ir fyrir fjölbreytta námshópa. Fyrrverandi fóstra Keikó orðin alþjóðafulltrúi á Bifröst Þorbjörg Valdís, jafnan kölluð Tobba, þekkir vel til alþjóðamálanna. Hún vann áður hjá Rannís og sem alþjóðafulltrúi á Hvanneyri. Áður en alþjóðamálin tóku yfir starfaði hún í fræðsludeild Fjölskyldu­ og húsdýragarðsins. „Þegar ég vann í Húsdýra­ garðinum var ég að reyna að prófa að búa annars staðar. En einn daginn þegar ég vann þar var hringt í mig og mér boðið að verða fóstra háhyrn­ ingsins Keikó sem þá hélt til í kví sinni í Vestmannaeyjum. Mitt hlut­ verk var að gefa honum, sjá um að hann fengi hreyfingu og félagslega þjálfun og vera talsmaður hans við fjölmiðla. Ég fylgdi honum eftir til Noregs þar sem hann dó úr lungna­ bólgu.“ Þrátt fyrir að Keikóævintýrið hafi verið heillandi var borgfirska taugin römm og Tobba flutti aftur heim í Laxholt. Vinnan með Keikó opnaði henni þó nýjar dyr og skapaði margs konar alþjóðlegar tengingar sem hún gat nýtt síðar í sínum störfum. Tobba segir lífið á Bifröst líka vera ákveðið ævintýri og undir það taka þær Halldóra og Margrét, sem áréttar jafnframt að mikilvægt sé fyrir okkur öll að lifa í vexti. Þar komi Bifröst sterk inn enda sé það mark­ mið hennar og von að henni takist, í samvinnu við sitt fólk, að skapa á hverjum degi ný ævintýri og að nem­ endur og starfsmenn nái að vaxa og dafna í tilsniðnum blómapottum sem henta hverjum og einum. /GRJ Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, alþjóðafulltrúi á Bifröst. Hér er hún með háhyrningnum Keikó fyrir flutning hans til Vestmannaeyja, þar sem hún var ráðin til að fóstra hann. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, er hér lengst til vinstri á myndinni ásamt Þorbjörgu Valdísi Kristjánsdóttur, alþjóðafulltrúa skólans, og Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur kennslustjóra. Mynd / GRJ Háskólinn á Bifröst er vel búinn og þar er veglegt íbúðarhúsnæði fyrir nemendur og kennara skólans og góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk. Mynd / James Einar Becker
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.