Bændablaðið - 17.12.2020, Side 1
24. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 17. desember ▯ Blað nr. 577 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Matvælastefna fyrir Ísland:
Markmiðið að gæði og öryggi séu tryggð
í framleiðslu og framboði á matvælum
Í nýrri matvælastefnu fyrir
Ísland segir að stefnunni sé
ætlað að vera leiðbeinandi við
ákvarðana töku til að stuðla
að aukinni verðmætasköpun í
matvæla framleiðslu hér á landi,
tryggja matvælaöryggi og auka
velferð fólks í sátt við umhverfi
og náttúru. Stefnan nær til ársins
2030.
Tveggja ára mikil vinna liggur að
baki gerðar Matvælastefnunnar og
samkvæmt kynningu á henni er hún
sú fyrsta sinnar gerðar hér á landi.
Markmið stefnunnar eru mörg og
margþætt og snerta þætti eins og
verðmætasköpun, neytendur, ásýnd
og öryggi, lýðheilsu og umhverfi.
Í kynningunni segir að markmið
stefnunnar sé að gæði og öryggi séu
tryggð í framboði og framleiðslu á
matvælum, almenningur hafi aðgang
að hollum og öruggum matvælum,
að matvælaframleiðsla sé sjálfbær,
að verðmætasköpun verði aukin með
bættum framleiðsluaðferðum, vöru-,
og þjónustuþróun og nýsköpun og að
þekking, hæfni og áhugi á matvælum
verði efld á öllum náms stigum.
Þar segir
einnig að sam-
keppnis hæfni
verði bætt
með stöð ugu
starfs um hverfi
f y r i r tæk j a ,
sk i l v i rkum
inn viðum og
stuðningi við
n ý s k ö p u n .
Fræðsla til
neytenda um matvæli og tengsl
mataræðis við lýðheilsu verði
aukin. Upplýsingar um uppruna,
framleiðsluhætti, innihald og
umhverfisáhrif matvæla verði
aðgengileg neytendum. Að
rannsóknir og þróun verði öflugur
bakhjarl matvælaframleiðslu
og samstarf stofnana sé öflugt
og að ímynd íslenskra matvæla
endurspegli markmið um sjálfbærni,
gæði og hreinleika.
Framleiðum um 830 þúsund
tonn af matvælum
Í viðtali við Guðrúnu Huldu
P á l s d ó t t u r
í þættinum
Fæðuöryggi
á hlaðvarpi
Bænda blaðs-
ins fer Vala
Páls dóttir, for-
maður verk-
efna stjórn ar
um mótun
matvæla stefnu
fyrir Ísland,
yfir forsendur Mat væla stefnunnar,
meginþætti hennar og hver áhrif
hennar munu verða næstu tíu
árin. Vala segir meðal annars að
stefnan sé unnin út frá íslenskum
aðstæðum en ekki heimfærð að
erlendri fyrirmynd.
„Við hófum vinnuna á að skoða
allt sem tengist matvælakeðjunni
hér á landi og lykilniðurstöður
voru að við erum að framleiða um
830 þúsund tonn af matvælum og
stærstur hluti af því er sjávarfang
sem fer til útflutnings. Af þessum
830 þúsund tonnum fara um 220
þúsund tonn á innanlandsmarkað
en við flytjum inn um 290 þúsund
tonn af matvælum, bæði til
neyslu og sem hráefni í innlenda
framleiðslu.“
Vala segir að samkvæmt
þeim upplýsingum sem fengust
frá versluninni eru um 45% af
almennri dagvöru vörur sem
framleiddar eða búnar eru til hér
á landi.
„Staða íslenskrar iðnaðar- og
matvælaframleiðslu er því sterk.“
Matvælastefnan mikilvæg
fyrir landbúnað
Sigurður Eyþórsson, fram kvæmda-
stjóri Bændasamtaka Íslands og
fulltrúi í verkefnisstjórn um gerð
Matvælastefnunnar, segir að gerð
matvælastefnu sé nýmæli hér á
landi og að hann fagni gerð hennar.
„Ég lít svo á að gerð
matvælastefnunnar sé mikilvæg
fyrir landbúnað í landinu. Í henni
er dregið skýrt fram að okkur sé
ekki sama hvernig matvæli eru
framleidd hér á landi og mörkuð
stefna hvernig sú framleiðsla
á að vera. Hún tekur einnig á
því hvernig á að nýta og dreifa
matvælum, að þau séu örugg og
hvernig eigi að tryggja fæðuöryggi
þjóðarinnar.“
Að sögn Sigurðar er þetta í fyrsta
skipti, eftir því sem best er vitað,
sem opinber stefnumótun hérlendis
tekur mið af því að fæðuöryggi sé
jafnframt þjóðaröryggi.
„Einnig kemur fram í Mat-
vælastefnunni veruleg breyting
sem felst í því að koma á
almennilegu rekjanleikakerfi sem
nær í gegnum alla virðiskeðjuna
og eitthvað sem við hjá Bænda-
samtökunum höfum talað
fyrir lengi. Við gerum okkur
fullkomlega grein fyrir því að það
er ekki hægt að framleiða allan
mat hér á landi en á sama tíma vilja
neytendur vita hvaðan maturinn
kemur. Það má aldrei leika vafi
á því.
Nú þegar stefnan liggur fyrir er
það undir stjórnvöldum og öðrum
sem að Matvælastefnunni koma
að ýta henni áfram í samræmi við
framkvæmdaáætlunina sem henni
fylgir.“ /VH
Vala Pálsdóttir. Sigurður Eyþórsson.
Hafa ekki undan að framleiða
íslenskt kalksalt
8 32–34
Þjónusta verði snögg,
fagleg og aðgengileg
Nýsköpun grunnur að því
að ungt fólk geti byggt
framtíð á heimaslóðum
44–45