Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202014
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS
Hlaðan, hlaðvarp Bænda-
blaðsins, hefur nú verið í
útsendingu í eitt ár. Einn af
föstu liðum Hlöðunnar er
þátturinn „Í fréttum er þetta
helst“ þar sem blaðamennirnir
Erla Hjördís Gunnarsdóttir og
Vilmundur Hansen fara yfir
helstu efnistök nýútkomins
Bændablaðs. Von er á nýjum
þáttaröðum árið 2021.
„Við viljum kynna betur
blaðið með þessum hætti, fara
yfir blaðið stutt og hnitmiðað og
vonandi fanga eyru hlustenda.
Hlaðvarpið er skemmtilegur
miðill þar sem hægt er að ná til
fólks á annan hátt en með öðrum
miðlum. Hlaðvarpið gerir það
að verkum að fólk getur í raun
hlustað hvar sem er, hvort sem
er í bílnum, við eldamennskuna
eða þegar fólk er á ferðinni.
Þá getur það hlustað á þáttinn
hratt og örugglega,“ segir Erla
Hjördís.
Vilmundur er orðinn alvanur
útvarpsmaður eftir árið enda er
hann við stjórnvölinn í tveimur
þáttum Hlöðunnar. „Á vissan
hátt er þetta tvennt ólíkt. Í
þættinum mínum Ræktaðu
garðinn þinn get ég röflað að
eigin ósk og þarf ekki að passa
mig á því að tala ekki of mikið.
Spjallið með Erlu er samvinna
og við hlæjum mikið saman þó
það komi ekki alltaf með eftir
klippingu. Mér þykir gaman að
vinna báða þættina en hvorn á
sinn hátt,“ segir hann.
Þáttur um kántrítónlist í bígerð
Á nýju ári hyggjast þau
Vilmundur og Erla Hjördís
viðhalda reglulegum hlaðvarps-
útgáfum, og von er á nýjum
spennandi þáttaröðum.
„Nú er komin góð reynsla á
Hlöðuna og sífellt bætast nýir
þættir við og vinsældir hlust-
unar aukast í hverjum mánuði.
Fyrirhugað er að hefja kán-
trí-tónlist til vegs og virðingar
inni á Hlöðunni þar sem ég og
Drífa Viðarsdóttir munum fara
yfir yfirgripsmikinn heim kán-
trísins með fræðslu, viðtölum og
hressandi kántrítónlist. Einnig
má nefna að Hlaðan mun gera
sitt á nýju ári til að ná til unga
fólksins og fá til liðs við sig full-
trúa ungu kynslóðarinnar til að
kynna sveitina fyrir áhugasöm-
um hlustendum,“ segir Erla
Hjördís.
Á Hlöðunni, hlaðvarpi
Bænda blaðsins, má nálgast fjöl-
breyttar þáttaraðir. Þar má nefna
Kaupfjelagið, Skeggrætt, Havarí
hlaðvarp, Ræktaðu garðinn þinn,
Fæðuöryggi, Máltíð og Víða
ratað.
Hægt er að kynna sér
þætti Hlöðunnar á vefsíðu
Bændablaðsins, bbl.is og
hlusta á þá í öllum helstu hlað-
varpsveitum. /ghp
Hlegið dátt
í Hlöðunni
FRÉTTIR
Bátafloti Grímseyinga hefur stækkað talsvert á árinu. Myndir / Karen Nótt Halldórsdóttir
Óvenjumargt um manninn
í Grímsey í haust
Óvenjumargt hefur verið í
Grímsey nú á liðnu hausti, en
nokkuð margir eyjarskeggjar,
sem alla jafna dvelja í landi
yfir vetrartímann, hafa dvalið
í eynni á haustmánuðum. Þar
með er töluvert af börnum og
ungmennum sem hafa verið í
fjar- og heimakennslu eins og víða
annars staðar.
Á sumrin dvelja yfirleitt upp
undir 100 manns í Grímsey en
fækkar verulega yfir vetrartímann
þegar þar dvelja oftast á bilinu 15-20
manns. Núna í nóvember brá hins
vegar svo við að það voru 35-40
í eyjunni. Þar af voru 6-8 börn á
leik- og grunnskólaaldri og 2-3
framhaldsskólanemar. Þetta kemur
fram á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Bátaflotinn hefur stækkað
Þar er einnig sagt frá því að bátafloti
Grímseyinga hafi stækkað talsvert
í ár, en auk þeirra þriggja báta sem
hafa bæst við hingað til komu
feðgarnir Magnús Bjarnason og
Bjarni Reykjalín nýverið til hafnar
með Skel 26 sem mun fá nafnið
Sæfinnur EA 58. Ufsaveiði hefur
verið afar góð við eyjuna undanfarið.
Í sumar var hafist handa við að
koma upp líkamsræktaraðstöðu í
félagsheimilinu í Grímsey og er hún
nú fullbúin, komin í gagnið og vel
nýtt af heimafólki. Fyrir stuttu var
lokið við að setja upp grillhýsi við
tjaldsvæðið sem mun bæði nýtast
heimamönnum og ferðalöngum
þegar sól tekur að hækka á lofti á ný.
Sólar nýtur við í tvær
klukkustundir
Skipt var um alla kúpla á
götuljósum nýlega og eyjarskeggjar
hafa verið duglegir við að setja
upp jólaljós á íbúðarhúsum og
öðrum mannvirkjum sem lýsa nú
upp myrkasta skammdegið, en
í Grímsey nýtur einungis sólar í
rúmar tvær klukkustundir á stysta
degi ársins, 21. desember 2020.
/MÞÞ
Grillaðstaða hefur verið útbúin við
tjaldsvæðið.
Séð yfir höfnina í Grímsey.
Reykir við Húnavelli:
Endurbætur og aukið rekstraröryggi
Unnið hefur verið við að afla
viðbótarvatns á Reykjum við
Húnavelli fyrir hitaveitu Blöndu-
óss og Skagastrandar. Í ár var
lokið við að bora fjórðu vinnslu-
holuna, 1.200 metra djúpa,
auk þess sem eldri borhola var
endurfóðruð niður á 350 metra
dýpi.
Við það tækifæri var skipt út
hefðbundnum búnaði í holunni
og í staðinn sett þekkt lausn úr
olíuiðnaði þar sem mótor og dæla
eru sambyggð á 300 metra dýpi.
Með þessari lausn er hægt að
fylgjast með ástandi holunnar í
rauntíma sem auðveldar og bætir
eftirlit með auðlindinni.
Þetta er í fyrsta skipti sem
RARIK nýtir þessa tækni en
hún er algeng erlendis og hefur
áður verið nýtt hérlendis. Í ár var
borholuhús á Reykjum einnig
endurnýjað og uppfært með nýjum
búnaði og bættri hljóðvist. Öllum
þessum aðgerðum er ætlað að auka
rekstraröryggi hitaveitu Blönduóss
og Skagastrandar til framtíðar. Þetta
kemur fram á vefsíðu Rarik. /MÞÞ
Unnið að endurbótum á heitavatnssvæðinu á Reykjum við Húnavelli.
Mynd / RARIK
Vilmundur og Erla Hjördís í jólaskapi.
Bænda
14. janúar 2021
Óskum lesendum
gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs