Bændablaðið - 17.12.2020, Page 26

Bændablaðið - 17.12.2020, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202026 UTAN ÚR HEIMI Svínapestin sem kom upp í Kína 2018 reyndist „happafengur“ fyrir svínakjötsútflytjendur á Vesturlöndum: Kínverjar stefna á að verða sjálfum sér nægir um svínakjöt á næstu 5 árum – Það mun hafa mikil neikvæð áhrif á svínaræktina í Evrópu og víðar um heim Svínakjötsframleiðendur um allan heim eru nú beðnir að endurskoða framleiðsluáætlanir sínar með tilliti til hraðrar endur­ uppbyggingar í svínaræktinni í Kína í kjölfar áfalla sem landið lenti í vegna afrísku svína­ pestarinnar. Þurftu Kínverjar þá að fella milljónir svína og treysta að stærstum hluta á innflutning á svínakjöti. Samkvæmt Robobank virðist nú stefna í miklar breytingar með stórminnkuðum innflutningi Kínverja. Áfall Kínverja vegna afrísku svínapestarinnar í ágúst 2018 reyndist mikill happafengur fyrir svínaframleiðslu víða um heim sem hefur átt við samdrátt að glíma á heimamörkuðum vegna COVID-19. Útflutningur jókst stórlega á svínakjöti til að mæta eftirspurn í Kína sem þurftu að farga 700 milljónum svína vegna svínapestarinnar 2019. Kínverjar hafa að jafnaði flutt inn um 40% af því svínakjöti sem hefur verið í boði á alþjóðlegum milliríkjamarkaði og sá innflutn- ingur jókst stórlega vegna svína- pestarinnar. Á síðasta ári voru seld 36 milljón tonn af svínakjöti í viðskiptum milli landa sem var um 6,7% aukning frá 2018 samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna FAO. Kínverjar fluttu inn hátt í 5 milljónir tonna 2019 Samkvæmt tölum Robobank þá fluttu Kínverjar inn á bilinu 4,8 til 5 milljónir tonna af svínakjöti á árinu 2019. Á fyrstu átta mánuðum ársins 2020 voru þeir búnir að flytja inn 3,7 milljónir tonna. Stærsta útflutningsríkið á svínakjöti til Kína er Bandaríkin, en þar á eftir kemur Spánn, Þýskaland (sem nú er í banni), Brasilía og Danmörk. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru Þjóðverjar búnir að flytja út 200.000 tonn af svínakjöti til Kína en algjörlega hefur verið lokað fyrir þau viðskipti vegna svínapestarinnar sem kom upp í villisvínum í Þýskalandi í september. Verðfall á þýsku svínakjöti Verð á þýsku svínakjöti féll snarlega eftir að svínapestin kom upp í landinu og féll verðið í 13% undir meðalverð á markaði (ASF). Birgðir hafa því verið að hlaðast upp, en takmarkað frystipláss gæti farið að skapa þar vandamál. Útflutningur frá Bretlandi hefur líka verið nokkur til Kína og jókst hann um 51% á fyrstu átta mánuðum þessa árs og fór í 120.000 tonn. Annars telur Robobank að Spánn og Danmörk muni aðallega hagnast á banninu sem Kínverjar settu á innflutning frá Þýskalandi. Kínverjar stefna á að verða sjálfum sér nægir um svínakjöt Robobank bendir á að Kínverjar séu nú að endurreisa svínaræktina í landinu og hafi þegar hafið það ferli á síðari hluta árs 2019. Það sé gert með því að reisa ný og fullkomin svínaræktarbú í stað þeirrar hefðbundnu bakgarðaræktunar sem viðgengist hafi vítt og breitt um landið. Þannig stefni Kínverjar að því að verða sjálfum sér nægir með svínakjöt. Líklegt sé að þeir verði búnir að ná 95% sjálfbærni á því sviði á árunum 2024 til 2025. Fram að því muni innflutningur Kínverja á svínakjöti minnka jafnt og þétt. Spáð hefur verið að á yfirstandandi ári muni Kínverjum takast að auka eigin framleiðslu um 10% sem þýði 20–30% samdrátt í innflutningi, eða sem nemur einni milljón tonna. /HKr. Kínverjar eru stórhuga í uppbyggingu fullkominna svínabúa sem líkjast miklu fremur hótelum en hefðbundnum eldishúsum. Hér er Guangxi Yangxiang svínabúið þar sem gylturnar munu búa í níu hæða blokkum. Í stóru veggjunum ofan á húsunum eru stokkar fyrir lofttræstinguna. Mynd / Pig333.com Framkvæmdir komnar vel á veg við risaáform í svínaeldi til að tryggja fæðuöryggi í Kína: Fjöldi nýrra risasvínabúa rísa í nágrenni stórborga með tugum þúsunda gylta – Svínabúskap hundruða þúsunda smábænda fórnað í staðinn, að sagt er til að draga úr mengun vatnsbóla og jarðvegs Stærsti svínakjötsneytandi heims, Sifanghong Agriculture í Kína, mun stórauka framleiðslu sína og bæta um 200 milljón svínum í stofn sinn. Verður það gert með því að reisa ný býli um allt land til að endurheimta framleiðsluna eftir svínapestina sem herjað hefur á landið síðan 2018. Vegna pestarinnar þurftu Kín- verjar að skera niður tugi milljóna svína, eða 60% af svínastofni sínum. Stöðugleiki mikilvægur Kínversk stjórnvöld líta á stöðug- leika í svínakjöts fram leiðslunni mikilvægan fyrir fæðuöryggi landsins í kjölfar þess að verðbólga jókst snarlega árið 2019 vegna minnkandi framboðs og verðhækkana á kjöti vegna niðurskurðar á svínastofninum. Til að tryggja lágmarks framboð á hverju svæði verður hvert hérað og stór sveitarfélög að tryggja ákveðna svína kjötsframleiðslu. „Þetta er eins konar leiðrétting á fyrri stefnum,“ sagði Wang Lisheng, hagfræðingur í Kína hjá Nomura International, í samtali við Reuters. Sagði hann einnig að stefnumótendur hefðu lært af kreppunni í fyrra að þeir þyrftu að auka fjölbreytni og dreifa þannig áhættu í framleiðslunni. Liður í þessu ferli var að flytja inn 2.000 lifandi gyltur til Kunming, höfuðborgar Yunan-héraðs, sem komu frá Evrópu í nóvember samkvæmt frétt China.org.cn. Voru gylturnar settar í 45 daga sóttkví til að ganga úr skugga um að þær bæru ekki með sér einhver smitefni. Fyrr á þessu ári voru fluttar inn 4.520 gyltur til eldis í Yunnan. Auk þess voru í apríl á þessu ári fluttir inn, í sex flutningaþotum, samtals 4.000 eldisgrísir frá Frakklandi. Þá voru einnig fluttir inn 500 geltir frá Topigs Norsvin í Hollandi. Svínarækt í blokkum og smábúskapur aflagður Nýju svínabúin eru af allt öðrum toga en þekkst hafa víða um heim, því svínahúsin eru blokkir á mörgum hæðum sem líkjast fremur hótelum en svínabúum. Ný bú sem byrjað er að reisa í úthverfum stórborga standa þó frammi fyrir miklum kostnaði til að koma í veg fyrir vandamál eins og afrennsli frá svínaræktinni sem annars lekur út í vatn og jarðveg. Vegna þessarar mengunar fóru stjórnvöld fram á að búin yrðu flutt á árunum 2015 og 2017. Þetta felur í sér að búum um 200.000 smábænda nærri vatns bólum verður lokað um leið og svínaeldi verður hafið á nýjum fullkomnum búum nærri þéttbýli. Þannig er ætlunin að snúa við áhrifum af mengun jarðvegs og grunnvatns og hreinsa umhverfið. Muyuan Foods setti í gang stór- felldar áætlanir til að auka svína- kjötsframleiðsluna og hóf fram- kvæmdir við smíði á fyrstu af 21 margra hæða eldishúsum í septem- ber og mun fjárfesta um 40 milljarða yuan í nýjum eldishúsum á þessu ári, samkvæmt frétt BusinessDay. Þá er Muyuan þegar með risabú nærri Nanyang sem hýsir að jafnaði 84.000 gyltur. Þá hafa áætlanir Muyuan líka vakið deilur eins og áform um að skipuleggja 55 svínabú á 1.000 hekturum af ræktarlandi í Henan- héraði. Munu þær deilur hafa verið leystar og fyrirtækið leigði land þar sem ætlunin er að rækta 80 milljónir galta. Risabúin rúma fimm sinnum fleiri svín en hefðbundin bú Risabúið getur hýst fimm sinnum fleiri svín en venjulegt bú á sama flatarmáli lands. Þéttleiki dýra á búunum hefur hins vegar mikla áhættu vegna sjúkdóma, þar á meðal svínaveiru sem enn er til staðar í Kína og þar eru engin bóluefni eða lækning í boði. Sifanghong Agriculture með fjölda búa í byggingu Zu Sheng, eigandi Sifanghong Agriculture og fyrirtækisins Animal Husbandry, hóf í sumar að byggja eitt af 11 býlum sem hefja átti framkvæmdir við í útjaðri Peking á þessu ári. Á lóð hans, sem staðsett er í austurhluta Pinggu, um 70 km utan miðborgarinnar, mun vera hægt að að ala 60.000 gyltur á ári. „Við erum með eitt af lykilverk- efnunum sem miða að því að koma á stöðugleika í kjötbirgðum í Beijing (Peking) og vernda lífsviðurværi íbúa,“ sagði Zu. Svínaframleiðandinn New Hope Liuhe ætlar einnig að byggja „fjölbýlis-svínahús“ í Pinggu sem framleiða mun 150.000 gyltur á ári. Þá verða sex býli til viðbótar endurreist og stækkuð að því er Reuters hafði eftir yfirvöldum í Beijing. Yfirvöld styðja stórhuga markmið Til að ná markmiðum stjórnvalda valdi borgarstjórnin í Peking hentuga staði fyrir nýbýli og bauð fyrirtækjum að bjóða í lóðirnar og hagræða þeim fyrirferðarmiklu verklagsreglum sem venjulega eru nauðsynlegar til að finna land til að ala upp svín. Valdi borgarstjórnin í Beijing þannig hentuga staði fyrir nýbýli og bauð fyrirtækjum að bjóða í lóðirnar og hagræða verklagsreglum sem venjulega eru nauðsynlegar til að fá land undir svínabú. Aðrar borgir og þróuð svæði leggja svipaða áherslu á uppbyggingu svínabúa. Í Nanjing, sem er með 8 milljónir íbúa í suðausturhluta landsins, verða byggð 12 svínabú sem eiga að fjórfalda framleiðsluna frá því sem hún var fyrir svínapestina 2018. Þá hyggst Zhejiang, sem er strandhérað suður af Sjanghæ, auka svínaframleiðsluna um 50% frá því sem var 2018. /HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.