Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202026
UTAN ÚR HEIMI
Svínapestin sem kom upp í Kína 2018 reyndist „happafengur“ fyrir svínakjötsútflytjendur á Vesturlöndum:
Kínverjar stefna á að verða sjálfum sér
nægir um svínakjöt á næstu 5 árum
– Það mun hafa mikil neikvæð áhrif á svínaræktina í Evrópu og víðar um heim
Svínakjötsframleiðendur um
allan heim eru nú beðnir að
endurskoða framleiðsluáætlanir
sínar með tilliti til hraðrar endur
uppbyggingar í svínaræktinni í
Kína í kjölfar áfalla sem landið
lenti í vegna afrísku svína
pestarinnar. Þurftu Kínverjar þá
að fella milljónir svína og treysta
að stærstum hluta á innflutning á
svínakjöti. Samkvæmt Robobank
virðist nú stefna í miklar
breytingar með stórminnkuðum
innflutningi Kínverja.
Áfall Kínverja vegna afrísku
svínapestarinnar í ágúst 2018
reyndist mikill happafengur fyrir
svínaframleiðslu víða um heim
sem hefur átt við samdrátt að
glíma á heimamörkuðum vegna
COVID-19. Útflutningur jókst
stórlega á svínakjöti til að mæta
eftirspurn í Kína sem þurftu að
farga 700 milljónum svína vegna
svínapestarinnar 2019.
Kínverjar hafa að jafnaði flutt
inn um 40% af því svínakjöti sem
hefur verið í boði á alþjóðlegum
milliríkjamarkaði og sá innflutn-
ingur jókst stórlega vegna svína-
pestarinnar.
Á síðasta ári voru seld 36 milljón
tonn af svínakjöti í viðskiptum milli
landa sem var um 6,7% aukning frá
2018 samkvæmt tölum Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna FAO.
Kínverjar fluttu inn hátt í 5
milljónir tonna 2019
Samkvæmt tölum Robobank þá
fluttu Kínverjar inn á bilinu 4,8
til 5 milljónir tonna af svínakjöti á
árinu 2019. Á fyrstu átta mánuðum
ársins 2020 voru þeir búnir að flytja
inn 3,7 milljónir tonna. Stærsta
útflutningsríkið á svínakjöti til
Kína er Bandaríkin, en þar á eftir
kemur Spánn, Þýskaland (sem nú
er í banni), Brasilía og Danmörk.
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
voru Þjóðverjar búnir að flytja
út 200.000 tonn af svínakjöti til
Kína en algjörlega hefur verið
lokað fyrir þau viðskipti vegna
svínapestarinnar sem kom upp
í villisvínum í Þýskalandi í
september.
Verðfall á þýsku svínakjöti
Verð á þýsku svínakjöti féll
snarlega eftir að svínapestin kom
upp í landinu og féll verðið í 13%
undir meðalverð á markaði (ASF).
Birgðir hafa því verið að hlaðast
upp, en takmarkað frystipláss gæti
farið að skapa þar vandamál.
Útflutningur frá Bretlandi
hefur líka verið nokkur til Kína og
jókst hann um 51% á fyrstu átta
mánuðum þessa árs og fór í 120.000
tonn. Annars telur Robobank að
Spánn og Danmörk muni aðallega
hagnast á banninu sem Kínverjar
settu á innflutning frá Þýskalandi.
Kínverjar stefna á að verða
sjálfum sér nægir um svínakjöt
Robobank bendir á að Kínverjar
séu nú að endurreisa svínaræktina í
landinu og hafi þegar hafið það ferli
á síðari hluta árs 2019. Það sé gert
með því að reisa ný og fullkomin
svínaræktarbú í stað þeirrar
hefðbundnu bakgarðaræktunar sem
viðgengist hafi vítt og breitt um
landið. Þannig stefni Kínverjar að
því að verða sjálfum sér nægir með
svínakjöt. Líklegt sé að þeir verði
búnir að ná 95% sjálfbærni á því
sviði á árunum 2024 til 2025. Fram
að því muni innflutningur Kínverja
á svínakjöti minnka jafnt og þétt.
Spáð hefur verið að á
yfirstandandi ári muni Kínverjum
takast að auka eigin framleiðslu um
10% sem þýði 20–30% samdrátt í
innflutningi, eða sem nemur einni
milljón tonna. /HKr.
Kínverjar eru stórhuga í uppbyggingu fullkominna svínabúa sem líkjast miklu
fremur hótelum en hefðbundnum eldishúsum. Hér er Guangxi Yangxiang
svínabúið þar sem gylturnar munu búa í níu hæða blokkum. Í stóru veggjunum
ofan á húsunum eru stokkar fyrir lofttræstinguna. Mynd / Pig333.com
Framkvæmdir komnar vel á veg við risaáform í svínaeldi til að tryggja fæðuöryggi í Kína:
Fjöldi nýrra risasvínabúa rísa í nágrenni
stórborga með tugum þúsunda gylta
– Svínabúskap hundruða þúsunda smábænda fórnað í staðinn, að sagt er til að draga úr mengun vatnsbóla og jarðvegs
Stærsti svínakjötsneytandi heims,
Sifanghong Agriculture í Kína,
mun stórauka framleiðslu sína
og bæta um 200 milljón svínum
í stofn sinn. Verður það gert með
því að reisa ný býli um allt land
til að endurheimta framleiðsluna
eftir svínapestina sem herjað
hefur á landið síðan 2018.
Vegna pestarinnar þurftu Kín-
verjar að skera niður tugi milljóna
svína, eða 60% af svínastofni sínum.
Stöðugleiki mikilvægur
Kínversk stjórnvöld líta á stöðug-
leika í svínakjöts fram leiðslunni
mikilvægan fyrir fæðuöryggi
landsins í kjölfar þess að
verðbólga jókst snarlega árið
2019 vegna minnkandi framboðs
og verðhækkana á kjöti vegna
niðurskurðar á svínastofninum.
Til að tryggja lágmarks framboð á
hverju svæði verður hvert hérað og
stór sveitarfélög að tryggja ákveðna
svína kjötsframleiðslu.
„Þetta er eins konar leiðrétting
á fyrri stefnum,“ sagði Wang
Lisheng, hagfræðingur í Kína hjá
Nomura International, í samtali
við Reuters. Sagði hann einnig
að stefnumótendur hefðu lært af
kreppunni í fyrra að þeir þyrftu að
auka fjölbreytni og dreifa þannig
áhættu í framleiðslunni.
Liður í þessu ferli var að flytja
inn 2.000 lifandi gyltur til Kunming,
höfuðborgar Yunan-héraðs, sem
komu frá Evrópu í nóvember
samkvæmt frétt China.org.cn. Voru
gylturnar settar í 45 daga sóttkví til
að ganga úr skugga um að þær bæru
ekki með sér einhver smitefni. Fyrr
á þessu ári voru fluttar inn 4.520
gyltur til eldis í Yunnan. Auk þess
voru í apríl á þessu ári fluttir inn, í
sex flutningaþotum, samtals 4.000
eldisgrísir frá Frakklandi. Þá voru
einnig fluttir inn 500 geltir frá
Topigs Norsvin í Hollandi.
Svínarækt í blokkum og
smábúskapur aflagður
Nýju svínabúin eru af allt öðrum
toga en þekkst hafa víða um
heim, því svínahúsin eru blokkir á
mörgum hæðum sem líkjast fremur
hótelum en svínabúum. Ný bú
sem byrjað er að reisa í úthverfum
stórborga standa þó frammi fyrir
miklum kostnaði til að koma í veg
fyrir vandamál eins og afrennsli frá
svínaræktinni sem annars lekur út
í vatn og jarðveg. Vegna þessarar
mengunar fóru stjórnvöld fram á
að búin yrðu flutt á árunum 2015
og 2017. Þetta felur í sér að búum
um 200.000 smábænda nærri
vatns bólum verður lokað um leið
og svínaeldi verður hafið á nýjum
fullkomnum búum nærri þéttbýli.
Þannig er ætlunin að snúa við
áhrifum af mengun jarðvegs og
grunnvatns og hreinsa umhverfið.
Muyuan Foods setti í gang stór-
felldar áætlanir til að auka svína-
kjötsframleiðsluna og hóf fram-
kvæmdir við smíði á fyrstu af 21
margra hæða eldishúsum í septem-
ber og mun fjárfesta um 40 milljarða
yuan í nýjum eldishúsum á þessu
ári, samkvæmt frétt BusinessDay.
Þá er Muyuan þegar með risabú
nærri Nanyang sem hýsir að jafnaði
84.000 gyltur.
Þá hafa áætlanir Muyuan líka
vakið deilur eins og áform um að
skipuleggja 55 svínabú á 1.000
hekturum af ræktarlandi í Henan-
héraði. Munu þær deilur hafa verið
leystar og fyrirtækið leigði land þar
sem ætlunin er að rækta 80 milljónir
galta.
Risabúin rúma fimm sinnum
fleiri svín en hefðbundin bú
Risabúið getur hýst fimm sinnum
fleiri svín en venjulegt bú á sama
flatarmáli lands. Þéttleiki dýra á
búunum hefur hins vegar mikla
áhættu vegna sjúkdóma, þar á meðal
svínaveiru sem enn er til staðar í
Kína og þar eru engin bóluefni eða
lækning í boði.
Sifanghong Agriculture
með fjölda búa í byggingu
Zu Sheng, eigandi Sifanghong
Agriculture og fyrirtækisins Animal
Husbandry, hóf í sumar að byggja
eitt af 11 býlum sem hefja átti
framkvæmdir við í útjaðri Peking
á þessu ári.
Á lóð hans, sem staðsett er í
austurhluta Pinggu, um 70 km utan
miðborgarinnar, mun vera hægt að
að ala 60.000 gyltur á ári.
„Við erum með eitt af lykilverk-
efnunum sem miða að því að koma
á stöðugleika í kjötbirgðum í Beijing
(Peking) og vernda lífsviðurværi
íbúa,“ sagði Zu.
Svínaframleiðandinn New
Hope Liuhe ætlar einnig að byggja
„fjölbýlis-svínahús“ í Pinggu sem
framleiða mun 150.000 gyltur á
ári. Þá verða sex býli til viðbótar
endurreist og stækkuð að því er
Reuters hafði eftir yfirvöldum í
Beijing.
Yfirvöld styðja stórhuga markmið
Til að ná markmiðum stjórnvalda
valdi borgarstjórnin í Peking
hentuga staði fyrir nýbýli og bauð
fyrirtækjum að bjóða í lóðirnar
og hagræða þeim fyrirferðarmiklu
verklagsreglum sem venjulega eru
nauðsynlegar til að finna land til að
ala upp svín. Valdi borgarstjórnin
í Beijing þannig hentuga staði
fyrir nýbýli og bauð fyrirtækjum
að bjóða í lóðirnar og hagræða
verklagsreglum sem venjulega eru
nauðsynlegar til að fá land undir
svínabú.
Aðrar borgir og þróuð svæði
leggja svipaða áherslu á uppbyggingu
svínabúa. Í Nanjing, sem er með
8 milljónir íbúa í suðausturhluta
landsins, verða byggð 12 svínabú
sem eiga að fjórfalda framleiðsluna
frá því sem hún var fyrir svínapestina
2018. Þá hyggst Zhejiang, sem er
strandhérað suður af Sjanghæ, auka
svínaframleiðsluna um 50% frá því
sem var 2018. /HKr.