Bændablaðið - 17.12.2020, Page 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202036
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
á Ströndum
Í um tvo áratugi, eða frá því
rétt fyrir aldamótin 2000, hafa
nemendur Grunnskóla Drangsness
í Kaldrananeshreppi ræktað tré og
hlúð að skógi í skógarreiti skólans.
Skólalundurinn er í landi Klúku
í Bjarnarfirði rétt ofan við Hótel
Laugarhól þar sem áður var annar
af tveimur skólum hreppsins.
Skógrækt hefur verið stunduð
í Bjarnarfirði um nokkurt skeið
og hefur sem dæmi skógurinn
á Svanshóli og Klúku, þar sem
skógrækt hófst um sama leyti, vaxið
og dafnað svo skóglendið einkennir
nú mjög landslag fjarðarins. Í
gegnum vinnu sína í Skólalundinum
hafa börnin í Kaldrananeshreppi lagt
sitt af mörkum til þess að rækta upp
skóglendi á svæðinu sem ekki er
þekkt fyrir mikla skóga auk þess
sem þau hafa gróðursett birki frá
Yrkjusjóði og dreift birkifræjum
í þéttbýlinu á Drangsnesi þar sem
skólinn stendur.
Tæplega 20 ára gamall reitur
Eins og kom fram hér í upphafi
eru tæp tuttugu ár síðan þáverandi
nemendur Grunnskóla Drangsness
skipulögðu þennan reit sem við
köllum Skólalund. Eftir nokkurt
hlé á skipulögðu skólastarfi í
tengslum við reitinn skipar hann nú
mikilvægan sess í starfinu bæði vor
og haust. Nemendur og kennarar
halda tvisvar á ári í skóginn, einn
dagur að hausti og einn að vori er
sérmerktur Skólalundinum í dagatali
skólans. Vinnan í Skólalundi er
unnin í miklu og góðu samstarfi
við Arnlín Óladóttur skógfræðing,
fyrrum starfsmann Skógræktar
ríkisins, sem búsett er á svæðinu
og starfaði áður sem kennari
við skólana í hreppnum. Arnlín
hefur skipulagt þau verkefni sem
unnin eru í Skólalundinum ásamt
kennurum og hafa þau verið afar
fjölbreytt. Nemendur hafa auk þess
að gróðursetja í reitinn m.a. séð um
mælingar á trjám og fylgst þannig
með vexti þeirra, lært að greina
mismunandi trjátegundir, hlúð að
trjánum með því að reyta gras frá
smáplöntum, gefa áburð og klippa
tvístofna og neðstu greinarnar á þeim
trjám sem þurfa á því að halda. Eldri
nemendur hafa farið um svæðið og
notað Avenza staðsetningarappið til
þess að finna tiltekna reiti ásamt því
að taka þátt í öðrum verkefnum með
þeim yngri. Eftir hverja heimsókn í
Skólalundinn er unnið áfram með
verkefnin m.a. eru laufblöð og
blóm þurrkuð til síðari greiningar
og efniviður fenginn úr skóginum til
þess að vinna að skapandi verkefnum
í öllum námsgreinum.
Fá einnig tækifæri
til að skoða og læra
Það er ýmislegt fleira sem vex í
skjóli skógarins en þau tré sem
nemendur hafa gróðursett, sveppir,
ber, blóm og grös, er meðal þess
sem börnin fá einnig tækifæri til
að skoða og læra að þekkja ásamt
fjölbreyttu dýralífi. Í Skólalundinum
hafa verið gróðursett lerkitré, furutré
og birki en þar vex einnig víðir og
fjalldrapi. Við mælingu sem var gerð
árið 2017 var hæsta tréð í lundinum
2,2 metrar en vorið 2020 mældist
hæsta tréð, lerki, 2,7 metrar. Það
er heilmikill lærdómur fólginn í
því að fá að fylgjast svo náið með
vexti skógarins. Yngstu nemendur
skólans eru nú þegar farnir að
njóta afraksturs þeirra sem hófu
skógræktina. Þau leika sér á milli
trjánna, nota afklipptar greinar og
köngla til þess að skapa úr bæði í
lundinum og þegar komið er til baka
í skólastofuna.
Mörg verkefni fram undan
Það eru ýmis verkefni fram undan í
Skólalundi Grunnskóla Drangsness;
gerð göngustíga, upplýsingaskilta og
margt fleira. Eins og á við um alla
skógrækt hugsum við til framtíðar
og þeirra kynslóða sem munu taka
við Skólalundinum eftir okkar dag.
Það eru sannkölluð forréttindi að
hafa aðgang að skógi í skólastarfi.
Útiveran og nálægðin við umhverfi
skógarins hefur jákvæð áhrif á
líðan barnanna; við upplifum
viðfangsefnið með líkamanum
öllum, öllum skynfærunum og fáum
að hreyfa okkur um í rými sem er
ólíkt skólastofunni. Skógurinn býður
upp á lifandi og fjölbreytta kennslu í
öllum námsgreinum í árgöngum en
það allra dýrmætasta er að nemendur
skólans alast upp við að ræktun
skóga og skógurinn sjálfur er hluti
af lífi þeirra.
Marta Guðrún Jóhannesdóttir
Höfundur er kennari við
Grunnskóla Drangsness,
skógarbóndi í Kaldrananes-
hreppi og ritari í stjórn Félags
skógarbænda á Vestfjörðum
Mariana Fiserova, nemandi við skólann, fær þjálfun í trjáklifri.
Arnlín Óladóttir veitir nemendum leiðsögn við gróðursetningu.
Nemandi mælir hæð lerkitrés.
Náttúrubingó þar sem unnið er
með hitt og þetta sem finna má í
Skólalundinum.
Yngstu nemendur skólans raða
trjágreinum og mynda bókstafi.
Bænda
14.
janúar 2021