Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 36

Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202036 LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA á Ströndum Í um tvo áratugi, eða frá því rétt fyrir aldamótin 2000, hafa nemendur Grunnskóla Drangsness í Kaldrananeshreppi ræktað tré og hlúð að skógi í skógarreiti skólans. Skólalundurinn er í landi Klúku í Bjarnarfirði rétt ofan við Hótel Laugarhól þar sem áður var annar af tveimur skólum hreppsins. Skógrækt hefur verið stunduð í Bjarnarfirði um nokkurt skeið og hefur sem dæmi skógurinn á Svanshóli og Klúku, þar sem skógrækt hófst um sama leyti, vaxið og dafnað svo skóglendið einkennir nú mjög landslag fjarðarins. Í gegnum vinnu sína í Skólalundinum hafa börnin í Kaldrananeshreppi lagt sitt af mörkum til þess að rækta upp skóglendi á svæðinu sem ekki er þekkt fyrir mikla skóga auk þess sem þau hafa gróðursett birki frá Yrkjusjóði og dreift birkifræjum í þéttbýlinu á Drangsnesi þar sem skólinn stendur. Tæplega 20 ára gamall reitur Eins og kom fram hér í upphafi eru tæp tuttugu ár síðan þáverandi nemendur Grunnskóla Drangsness skipulögðu þennan reit sem við köllum Skólalund. Eftir nokkurt hlé á skipulögðu skólastarfi í tengslum við reitinn skipar hann nú mikilvægan sess í starfinu bæði vor og haust. Nemendur og kennarar halda tvisvar á ári í skóginn, einn dagur að hausti og einn að vori er sérmerktur Skólalundinum í dagatali skólans. Vinnan í Skólalundi er unnin í miklu og góðu samstarfi við Arnlín Óladóttur skógfræðing, fyrrum starfsmann Skógræktar ríkisins, sem búsett er á svæðinu og starfaði áður sem kennari við skólana í hreppnum. Arnlín hefur skipulagt þau verkefni sem unnin eru í Skólalundinum ásamt kennurum og hafa þau verið afar fjölbreytt. Nemendur hafa auk þess að gróðursetja í reitinn m.a. séð um mælingar á trjám og fylgst þannig með vexti þeirra, lært að greina mismunandi trjátegundir, hlúð að trjánum með því að reyta gras frá smáplöntum, gefa áburð og klippa tvístofna og neðstu greinarnar á þeim trjám sem þurfa á því að halda. Eldri nemendur hafa farið um svæðið og notað Avenza staðsetningarappið til þess að finna tiltekna reiti ásamt því að taka þátt í öðrum verkefnum með þeim yngri. Eftir hverja heimsókn í Skólalundinn er unnið áfram með verkefnin m.a. eru laufblöð og blóm þurrkuð til síðari greiningar og efniviður fenginn úr skóginum til þess að vinna að skapandi verkefnum í öllum námsgreinum. Fá einnig tækifæri til að skoða og læra Það er ýmislegt fleira sem vex í skjóli skógarins en þau tré sem nemendur hafa gróðursett, sveppir, ber, blóm og grös, er meðal þess sem börnin fá einnig tækifæri til að skoða og læra að þekkja ásamt fjölbreyttu dýralífi. Í Skólalundinum hafa verið gróðursett lerkitré, furutré og birki en þar vex einnig víðir og fjalldrapi. Við mælingu sem var gerð árið 2017 var hæsta tréð í lundinum 2,2 metrar en vorið 2020 mældist hæsta tréð, lerki, 2,7 metrar. Það er heilmikill lærdómur fólginn í því að fá að fylgjast svo náið með vexti skógarins. Yngstu nemendur skólans eru nú þegar farnir að njóta afraksturs þeirra sem hófu skógræktina. Þau leika sér á milli trjánna, nota afklipptar greinar og köngla til þess að skapa úr bæði í lundinum og þegar komið er til baka í skólastofuna. Mörg verkefni fram undan Það eru ýmis verkefni fram undan í Skólalundi Grunnskóla Drangsness; gerð göngustíga, upplýsingaskilta og margt fleira. Eins og á við um alla skógrækt hugsum við til framtíðar og þeirra kynslóða sem munu taka við Skólalundinum eftir okkar dag. Það eru sannkölluð forréttindi að hafa aðgang að skógi í skólastarfi. Útiveran og nálægðin við umhverfi skógarins hefur jákvæð áhrif á líðan barnanna; við upplifum viðfangsefnið með líkamanum öllum, öllum skynfærunum og fáum að hreyfa okkur um í rými sem er ólíkt skólastofunni. Skógurinn býður upp á lifandi og fjölbreytta kennslu í öllum námsgreinum í árgöngum en það allra dýrmætasta er að nemendur skólans alast upp við að ræktun skóga og skógurinn sjálfur er hluti af lífi þeirra. Marta Guðrún Jóhannesdóttir Höfundur er kennari við Grunnskóla Drangsness, skógarbóndi í Kaldrananes- hreppi og ritari í stjórn Félags skógarbænda á Vestfjörðum Mariana Fiserova, nemandi við skólann, fær þjálfun í trjáklifri. Arnlín Óladóttir veitir nemendum leiðsögn við gróðursetningu. Nemandi mælir hæð lerkitrés. Náttúrubingó þar sem unnið er með hitt og þetta sem finna má í Skólalundinum. Yngstu nemendur skólans raða trjágreinum og mynda bókstafi. Bænda 14. janúar 2021
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.