Bændablaðið - 17.12.2020, Page 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202050
Stefna stjórnvalda er að Ísland
nái kolefnishlutleysi árið
2040 og hefur metnaðarfull
aðgerðaráætlun í þeim efnum
verið sett fram. Mikilvægast er
að draga sem mest við getum úr
losun og binda það sem uppá
vantar með ýmsum aðgerðum.
Þar kemur skógrækt sterk inn,
því ýmsar rannsóknir sýna
fram á að kolefnisbinding
með skógrækt gefur mjög
góða raun. Skógrækt á Íslandi
„tikkar“ einnig í mörg box í
heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun,
en þeim er ætlað að vera ákveðið
leiðarljós aðildarríkja að bættum
heimi.
Ýmis tækifæri skapast með
skógrækt, þar með talin fjölgun
starfa. Framleiða þarf plönturnar,
gróðursetja þær, sinna umhirðu á
skóginum og fella og endurplanta
þegar þar að kemur, svo nokkur
dæmi séu tekin. Fyrir utan aukið
verðmæti landsins sjálfs, þá eru
tækifæri í úrvinnslu timburs,
nýtingu skóga sem matarkistu
(sveppir, ber o.fl.) sem hægt er að
búa til verðmæti úr og einnig er
hægt að nýta afurðir skóganna sem
eldsneytisgjafa. Þarna skapast því
kjörið tækifæri fyrir fólk að setja á
laggirnar smáframleiðslufyrirtæki
sem búa til verðmæti úr hreinum
náttúruauðlindum.
Við þekkjum öll hversu vinsælir
skógar eru sem útivistarsvæði og
hafa þeir skapað sér skemmtilegan
sess á Íslandi sem leik-, heilsu- og
afþreyingarsvæði fyrir fólk á öllum
aldri. Með sjálfbærni að leiðarljósi
getum við haldið áfram að byggja
upp skógana okkar og búa til
mikil verðmæti úr þeim. Ekkert í
náttúrunni stendur í stað og bæta
skógar nýstárlegum viskerfum
í annars skóglítið og fremur
einsleitt landslag. Líffræðileg áhrif
skógræktar eru misjöfn en ef rétt er
að málum staðið, þá geta þau verið
mjög jákvæð og veitt skjól fyrir dýr
og menn.
Jákvæð hliðaráhrif skógræktar
eru mörg. Þar ber helst að nefna
kolefnisbindingu. Ekki veitir okkur
af því að vinna kröftuglega að
þessum málum. Kolefnisbindingin
gerir umhverfinu okkar gott og
er mikilvægur þáttur þess að við
getum náð kolefnishlutleysi. Við
megum líka endilega hugsa lengra
en kolefnishlutleysið og stefna á
að fara yfir núllið. Markaðir með
kolefniseiningar eru að þróast og
það verður gaman að fylgjast með
þegar virkir markaðir með vottaðar
kolefniseiningar verða komnir
á fullt. Það mun skapa tækifæri
fyrir landeigendur að auka tekjur
sínar, ásamt því að stuðla að auknu
verðmæti jarða.
Við vitum að það þarf
þolinmæði til þess að rækta skóga
en með hliðsjón af því hversu
miklu þeir geta skilað okkur í
bættum lífsgæðum, jákvæðum
fjárhagslegum og samfélagslegum
þáttum, þá er um að gera að gefa í,
og rækta meiri skóg.
Hafliði Hörður Hafliðason
verkefnisstjóri
Kolefnisbrúarinnar
Kolefnisbinding
og jákvæð
hliðaráhrif
skógræktar
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Mynd / Hlynur Gauti Sigurðsson