Bændablaðið - 17.12.2020, Page 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202056
Á FAGLEGUM NÓTUM
Fjölbreytileiki íslenska sauðfjárins
Nú eru hrútarnir nýbúnir eða í
óðaönn að efna í lömb næsta vors.
Hvað þá kemur skemmtilegt og
fallegt er ekki gott að segja en hitt
er víst að í íslenska fjárstofnin-
um býr mikil erfðafjölbreytni sem
ugglaust mun skila sér í vor eins og
hingað til. Fjölbreytileikinn í litum
og ullargerð er mikill og margir
fjáreigendur eru farnir að láta sig
litina og ullargæðin meiru varða
en verið hefur.
Ullarverð ætla ég ekki að ræða
en ullargæði og fjölbreytileiki eru
vaxandi áhugamál framleiðenda og
notenda afurðanna. Spunakonur og
annað ullarvinnslufólk er á höttunum
eftir breytilegum litum og gæðum.
Gæðum í því bandi sem hægt er að
framleiða og selja á tímum túrisma
og litum sem lýsa náttúru stofnsins
og sem hægt er að lita með klókind-
um í enn fleiri afbrigðum.
Sauðfjárbúskapur á undir högg að
sækja en er borinn uppi af kröftugu
fólki sem lætur ekki deigan síga þá
móti blási og pyngjan bólgni ekki.
Margt af þessu fólki er ódrepandi
áhugafólk um fjölbreytileikann sem
í stofninum býr og lætur sig ekki
muna um að halda honum við og
spila á hann þó enginn fitni af því.
Þessi umfjöllun þjónar þeim
tilgangi að rifja þennan fjölbreytileika
aðeins upp, gefa dæmi um hann og
hvetja til enn meiri árangursviðleitni
á þessu sviði. Í fjölbreytilekanum
felst auður en hann er að vísu ekki
alltaf jafn öruggur í hendi. Hann
er tvenns konar í eðli sínu. Annars
vegar er sá auður sem mölur og ryð
fá að vísu grandað en veitir bæði
ánægju og gagn þeim sem með hann
höndla hverju sinni. Hins vegar er sá
auður sem til lengri tíma litið lúrir í
fjölbreytilegu genasafni stofnsins og
kynslóðum okkar ber að hlúa að og
varðveita handa framtíðinni til nota.
Páll Imsland
Grámórauður botnóttur ungur hrútur horfir á framtíðina, Litningur frá Hellu.
Fjárræktarfélagið Litur í Holta- og Landsveit leggur áherslu á ræktun mislits
fjár. Þar mæta menn með mislitt fé á árlega sýningu þar sem dómar eru
felldir og verðlaun eru veitt og annað skemmtilegt á sér stað.
Morflekkótt ær með hvítan lokkabrúsk á enni. Morflekkótt lambgimbur.
Tveir mikilúðlegir félagar, mórauður tvíhyrndur og kolóttur ferhyrndur.
Svartbotnóttur lambhrútur og
svartbotnótt arnhosótt lambgimbur
(arnhosótt = arnhöfðótt sem einnig er
hosótt). Það er ekki óalgengt að hvítt er
mun hvítara á flekkóttu (arnhosóttu hér)
en á botnóttu.
Svartbotnótt ung brúskær með
strípur í brúsknum.
Grá-jakobsbíldótt (grátt á nefi um-
hverfis augu og á eyrum) gimbr-
arlamb og svartbotnótt hrútlamb.
Grátt hrútlamb, rílótt.
Ferhyrnd svartgolsótt ær með svartlúðótta gimbur.
Svartbotnótt arnhosótt hrútlamb með
safranótta framfótarleggi. Írauð (gul) ferukollótt brúskær.
Svartgolsótt feruhníflótt ung ær
með myndarlegan brúsk.
Morgolsubotnótt ær með mor-
botnóttan hrút.