Bændablaðið - 17.12.2020, Page 76
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202076
Jól í gamla dagaBarnaþrautir
Getur þú raðað saman þessum
grænu formum svo úr verði form
eins og rauði krossinn?
Getur þú reiknað út fyrir hvaða
tölustafi táknin þrjú standa?
Getur þú fundið 10
mannanöfn í þessu stafarugli?
Jólin 2020 verða án
efa lengi í minn um
höfð sökum óvenju
legra aðstæðna út
af heimfaraldri
COVID19. Því hefur
trúlega sjaldan ver
ið mikilvægara að
finna upp á einhverju
skemmti legu að gera.
Eins og áður býður Bændablaðið
því upp á þrautir til að glíma við
fyrir jólin eftir snillinginn Braga
Halldórsson.
Fyrsta barnaþrautin sem full
orðnum er að sjálfsögðu líka heimilt
að glíma við er tiltölulega einfalt
púsluspil. Önnur
þrautin er kannnski
ekki alveg jafn auðveld
og hún sýnist og reynir
þar á rökhugsun. Þriðja
þrautin er stafarugl
sem reynir dálítið á
heilastarfsemina.
Lausnirnar er að
finna á bls. 82, en það
er auðvitað harðbannað að kíkja áður
en reynt er við þrautirnar.
Jólakrossgáta Bændablaðsins
er svo vegleg að vanda. Lausnin
á henni verður birt í fyrsta blaði
ársins 2021 sem væntanlegt er 14.
janúar.
Jól og áramót eru í huga flestra
skemmtilegur tími þegar
fjölskyldan kemur saman og
gerir sér glaðan dag. Vinir og
vandamenn gefa hver öðrum gjafir
og gleyma gömlum deilumálum,
að minnsta kosti um stundarsakir.
Sumir tengja jólin fæðingu Krists,
aðrir halda upp á þau til að fagna
því að sólin fer að hækka á lofti og
börnin bíða spennt eftir því að fá í
skóinn og gjafir á aðfangadagskvöld.
Veðurspá tengd jólunum
Í íslenskum þjóðháttum eftir Jónas
Jónasson frá Hrafnagili segir að ef
sólskin og heiðviðri er á jóladaginn,
verður gott ár, en sama veður annan
í jólum boðar harðindi. Ef hreinviðri
er og úrkomulaust á aðfangadag og
jólanótt, boðar það frostasamt ár, en
ef öðruvísi viðrar, veit á betra.
Sé jólanótt kyrr og klár,
koma mun gott og frjósamt ár;
en sé þá vindur og úrfelli
ei mun gras mikið á velli.
Ef gott er um jólin, verður illt um
páskana, en gott um páskana, verður
illt um næstu jól. Þetta er dregið
saman í talsháttinn: Rauð jól hvítir
páskar; hvít jól rauðir páskar.
Jónas segir að menn hafi haft
mikla trú á þessum dögum en að
í sinni tíð hafi trúin verið farin að
dofna mjög.
Þetta er líka sá árstími þegar
alls konar kynjaverur fara á stjá,
jólasveinarnir koma til byggða, álfar
flytja búferlum og tröll halda veislur.
Það er því ekki hættulaust að vera
einn á ferli á þessum tíma ef mark
er tekið á þjóðsögum sem tengjast
jólunum.
Tröllajól
Í Bárðar sögu Snæfellsáss segir
frá allsvakalegu jólaboði sem Hít
tröllkona stóð fyrir í Hundahelli í
Hítardal. Til veislunnar bauð hún
meðal annarra Bárði Snæfellsás
sem var af risakyni í föðurætt,
Gesti syni hans og mörgum tröllum.
Þar var Surtur af Hellisfitjum
og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn
í Breiðdalsbotnum, Glámur og
Ámur úr Miðfjarðar nesbjörgum og
Guðlaugur úr Guðlaugshöfða.
„Voru þá borð upp tekin og
matur á borinn, heldur stórkostlegur.
Drykkja var þar mjög óstjórnleg,
svo að allir urðu þar ginntir. En er
máltíð var úti, spurðu þursar og Hít,
hvað Bárður vildi til gamans hafa [.
. .]. Bárður bað þá fara til skinnleiks.
Stóðu þeir þá upp Bárður og Surtur,
Kolbjörn, Guðlaugur og Gljúfra
Geir, og höfðu hornskinnaleik; var
þá ekki svo lítið um þá, þó var
auðséð að Bárður var sterkastur,
þó hann væri gamall. Bjarnfeld
einn stóran höfðu þeir fyrir skinn,
og vöfðu hann saman og köstuðu
honum á milli sín fjórir, en einn var
úti og skildi sá ná. Ekki var gott
að vera fyrir hrundningum þeirra.
Flestir stóðu uppi á bekkjum nema
Gestur, hann sat kyrr á rúmi sínu. En
þá er Kolbjörn var úti, ætlar hann
að ná skinni fyrir Bárði og hljóp
heldur snarlega. En er Gestur sá það,
skaut hann fætinum fyrir Kolbjörn,
svo þursinn hraut þegar út á bergið
svo hart, að brotnaði í honum nefið,
– féll þá blóð um hann allan. Varð
þá upphlaup og hrundningar heldur
sterklegar; vildi Kolbjörn hefna sín
á Gesti.“
Gandreiðin
Jólin eru magnaður tími og svo
virðist sem öll náttúrulögmál snúist
á hvolf. Eftirfarandi lýsing er höfð
eftir Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum
og segir frá ungum vinnumanni sem
hafði ráðið sig til starfa á kirkjujörð.
„.... á aðfarakveldi jóla er drengur
úti í hesthúsi að kemba og hirða
eldishesta prestsins. Hann veit ekki
fyrr til en konu prestsins vindur þar
inn og gefur hún sig á tal við dreng
um ýmsa hluti. Og er minnst varði
bregður hún beisli undan svuntu
sinni og leggur við dreng; fylgir því
svo mikið töfraafl að drengur líður
prestkonunni að fara á bak sér, og
hleypur hann þegar á stað sem fugl
fljúgi. Fer hann yfir fjöll og dali,
kletta og klungur og hvað, sem fyrir
er, – er því líkast sem hann vaði reyk
mikinn.“
Dansferðir í mannahíbýlum
Samkvæmt Þjóðsögum Jóns
Árnasonar er mikið um að álfar séu
á ferð um jólin.
„Bæði er skemmtanatími þeirra
mestur um það leyti ársins [. . .] en
um jólin hafa þeir samsæti og veizlur,
hljóðfæraslátt og dansferð ýmist í
mannahíbýlum eða í álfabyggðum,
og þar að auki halda þeir fardaga
sína um nýjárið.“ Stundum kom
fyrir að mennskir menn rötuðu í
álfaveislur á jólanótt eins og segir
í sögunni Álfar hjá Víðivöllum. „Í
klöppum hjá Víðivöllum sá maður
nokkur á jólanóttina stórt hús allt
ljósum prýtt. Hann gekk þar inn
og fékk góðar viðtökur og ágætan
beina; morguninn eftir er hann
vaknaði lá hann á berum klettunum
og sá hvorki veður né reyk eftir af
stóra húsinu.“
Sögur um jólagleði álfa hefjast
oft á því að heimilisfólkið er á leið
til kirkju og að einhver
einn, maður eða kona,
verður eftir til að gæta
bæjarins. Þegar líður
fram á kvöld koma
álfarnir inn í bæinn og
halda skemmtun og sá
sem heima situr missir
vitið eða deyr. Þeir
sem halda glórunni
og lifa álfageimið
af gera það yfirleitt
eftir að djammið
hefur endurtekið
sig í tvö eða þrjú ár
með fyrrgreindum
afleiðingum.
„Einn hring enn,
móðir mín“
Það eru þó fleiri en álfar og tröll
sem hafa gaman af því að skemmta
sér um jólin. Einu sinni var prestur
í Hruna í Árnessýslu sem mjög
var gefinn fyrir skemmtanir og
gleðskap. Presturinn messaði ekki
fyrri part nætur eftir að fólk var
komið til kirkju, „heldur hafði
dansferð mikla í kirkjunni með
sóknarfólkinu, drykkju og spil og
aðra ósæmilegar skemmtanir langt
fram á nótt“.
Presturinn átti aldraða móður
sem hét Una og var mjög á móti
háttalagi sonar síns og bað hann
oft um að huga frekar að guði en
skemmtanahaldi en hann hirti ekkert
um það og hélt uppteknum hætti.
Eina jólanótt var presturinn
lengur að en venja var og bað
móðir hans hann í þrígang að hætta
en hann sagði ávallt: „Einn hring
enn, móðir mín“. Þegar Una gamla
gengur frá syni sínum í þriðja sinn
heyrir hún kveðið utan við kirkjuna:
Hátt lætur í Hruna
hirðir þangað bruna;
svo skal dansinn duna
að drengir megi það muna.
En er hún Una
og enn er hún Una.
Þegar kerlingin kom út sá hún mann
sem hún taldi vera djöfulinn sjálfan.
Una söðlaði því hest og reið allt
hvað af tók til næsta prests. Þegar
hún kom aftur að Hruna ásamt
prestinum og fleiri mönnum – „var
kirkjan og kirkjugarðurinn sokkinn
með fólkinu í, en þeir heyrðu ýlfur
og gaul niðri í jörðinni“. /VH
Krampus er þýsk þjóðsagnavera sem er ekki ólík
Grýlu í eðli sínu og er á ferð um jól og áramót.
Börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn og gjafir á aðfangadagskvöld.