Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 76

Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 76
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202076 Jól í gamla dagaBarnaþrautir Getur þú raðað saman þessum grænu formum svo úr verði form eins og rauði krossinn? Getur þú reiknað út fyrir hvaða tölustafi táknin þrjú standa? Getur þú fundið 10 mannanöfn í þessu stafarugli? Jólin 2020 verða án efa lengi í minn um höfð sökum óvenju­ legra aðstæðna út af heimfaraldri COVID­19. Því hefur trúlega sjaldan ver­ ið mikilvægara að finna upp á einhverju skemmti legu að gera. Eins og áður býður Bændablaðið því upp á þrautir til að glíma við fyrir jólin eftir snillinginn Braga Halldórsson. Fyrsta barnaþrautin sem full­ orðnum er að sjálfsögðu líka heimilt að glíma við er tiltölulega einfalt púsluspil. Önnur þrautin er kannnski ekki alveg jafn auðveld og hún sýnist og reynir þar á rökhugsun. Þriðja þrautin er stafarugl sem reynir dálítið á heilastarfsemina. Lausnirnar er að finna á bls. 82, en það er auðvitað harðbannað að kíkja áður en reynt er við þrautirnar. Jólakrossgáta Bændablaðsins er svo vegleg að vanda. Lausnin á henni verður birt í fyrsta blaði ársins 2021 sem væntanlegt er 14. janúar. Jól og áramót eru í huga flestra skemmtilegur tími þegar fjölskyldan kemur saman og gerir sér glaðan dag. Vinir og vandamenn gefa hver öðrum gjafir og gleyma gömlum deilumálum, að minnsta kosti um stundarsakir. Sumir tengja jólin fæðingu Krists, aðrir halda upp á þau til að fagna því að sólin fer að hækka á lofti og börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn og gjafir á aðfangadagskvöld. Veðurspá tengd jólunum Í íslenskum þjóðháttum eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili segir að ef sólskin og heiðviðri er á jóladaginn, verður gott ár, en sama veður annan í jólum boðar harðindi. Ef hreinviðri er og úrkomulaust á aðfangadag og jólanótt, boðar það frostasamt ár, en ef öðruvísi viðrar, veit á betra. Sé jólanótt kyrr og klár, koma mun gott og frjósamt ár; en sé þá vindur og úrfelli ei mun gras mikið á velli. Ef gott er um jólin, verður illt um páskana, en gott um páskana, verður illt um næstu jól. Þetta er dregið saman í talsháttinn: Rauð jól hvítir páskar; hvít jól rauðir páskar. Jónas segir að menn hafi haft mikla trú á þessum dögum en að í sinni tíð hafi trúin verið farin að dofna mjög. Þetta er líka sá árstími þegar alls konar kynjaverur fara á stjá, jólasveinarnir koma til byggða, álfar flytja búferlum og tröll halda veislur. Það er því ekki hættulaust að vera einn á ferli á þessum tíma ef mark er tekið á þjóðsögum sem tengjast jólunum. Tröllajól Í Bárðar sögu Snæfellsáss segir frá allsvakalegu jólaboði sem Hít tröllkona stóð fyrir í Hundahelli í Hítardal. Til veislunnar bauð hún meðal annarra Bárði Snæfellsás sem var af risakyni í föðurætt, Gesti syni hans og mörgum tröllum. Þar var Surtur af Hellisfitjum og Jóra úr Jórukleif, Kolbjörn í Breiðdalsbotnum, Glámur og Ámur úr Miðfjarðar nesbjörgum og Guðlaugur úr Guðlaugshöfða. „Voru þá borð upp tekin og matur á borinn, heldur stórkostlegur. Drykkja var þar mjög óstjórnleg, svo að allir urðu þar ginntir. En er máltíð var úti, spurðu þursar og Hít, hvað Bárður vildi til gamans hafa [. . .]. Bárður bað þá fara til skinnleiks. Stóðu þeir þá upp Bárður og Surtur, Kolbjörn, Guðlaugur og Gljúfra­ Geir, og höfðu hornskinnaleik; var þá ekki svo lítið um þá, ­­ þó var auðséð að Bárður var sterkastur, þó hann væri gamall. Bjarnfeld einn stóran höfðu þeir fyrir skinn, og vöfðu hann saman og köstuðu honum á milli sín fjórir, en einn var úti og skildi sá ná. Ekki var gott að vera fyrir hrundningum þeirra. Flestir stóðu uppi á bekkjum nema Gestur, hann sat kyrr á rúmi sínu. En þá er Kolbjörn var úti, ætlar hann að ná skinni fyrir Bárði og hljóp heldur snarlega. En er Gestur sá það, skaut hann fætinum fyrir Kolbjörn, svo þursinn hraut þegar út á bergið svo hart, að brotnaði í honum nefið, – féll þá blóð um hann allan. Varð þá upphlaup og hrundningar heldur sterklegar; vildi Kolbjörn hefna sín á Gesti.“ Gandreiðin Jólin eru magnaður tími og svo virðist sem öll náttúrulögmál snúist á hvolf. Eftirfarandi lýsing er höfð eftir Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum og segir frá ungum vinnumanni sem hafði ráðið sig til starfa á kirkjujörð. „.... á aðfarakveldi jóla er drengur úti í hesthúsi að kemba og hirða eldishesta prestsins. Hann veit ekki fyrr til en konu prestsins vindur þar inn og gefur hún sig á tal við dreng um ýmsa hluti. Og er minnst varði bregður hún beisli undan svuntu sinni og leggur við dreng; fylgir því svo mikið töfraafl að drengur líður prestkonunni að fara á bak sér, og hleypur hann þegar á stað sem fugl fljúgi. Fer hann yfir fjöll og dali, kletta og klungur og hvað, sem fyrir er, – er því líkast sem hann vaði reyk mikinn.“ Dansferðir í mannahíbýlum Samkvæmt Þjóðsögum Jóns Árnasonar er mikið um að álfar séu á ferð um jólin. „Bæði er skemmtanatími þeirra mestur um það leyti ársins [. . .] en um jólin hafa þeir samsæti og veizlur, hljóðfæraslátt og dansferð ýmist í mannahíbýlum eða í álfabyggðum, og þar að auki halda þeir fardaga sína um nýjárið.“ Stundum kom fyrir að mennskir menn rötuðu í álfaveislur á jólanótt eins og segir í sögunni Álfar hjá Víðivöllum. „Í klöppum hjá Víðivöllum sá maður nokkur á jólanóttina stórt hús allt ljósum prýtt. Hann gekk þar inn og fékk góðar viðtökur og ágætan beina; morguninn eftir er hann vaknaði lá hann á berum klettunum og sá hvorki veður né reyk eftir af stóra húsinu.“ Sögur um jólagleði álfa hefjast oft á því að heimilisfólkið er á leið til kirkju og að einhver einn, maður eða kona, verður eftir til að gæta bæjarins. Þegar líður fram á kvöld koma álfarnir inn í bæinn og halda skemmtun og sá sem heima situr missir vitið eða deyr. Þeir sem halda glórunni og lifa álfageimið af gera það yfirleitt eftir að djammið hefur endurtekið sig í tvö eða þrjú ár með fyrrgreindum afleiðingum. „Einn hring enn, móðir mín“ Það eru þó fleiri en álfar og tröll sem hafa gaman af því að skemmta sér um jólin. Einu sinni var prestur í Hruna í Árnessýslu sem mjög var gefinn fyrir skemmtanir og gleðskap. Presturinn messaði ekki fyrri part nætur eftir að fólk var komið til kirkju, „heldur hafði dansferð mikla í kirkjunni með sóknarfólkinu, drykkju og spil og aðra ósæmilegar skemmtanir langt fram á nótt“. Presturinn átti aldraða móður sem hét Una og var mjög á móti háttalagi sonar síns og bað hann oft um að huga frekar að guði en skemmtanahaldi en hann hirti ekkert um það og hélt uppteknum hætti. Eina jólanótt var presturinn lengur að en venja var og bað móðir hans hann í þrígang að hætta en hann sagði ávallt: „Einn hring enn, móðir mín“. Þegar Una gamla gengur frá syni sínum í þriðja sinn heyrir hún kveðið utan við kirkjuna: Hátt lætur í Hruna hirðir þangað bruna; svo skal dansinn duna að drengir megi það muna. En er hún Una og enn er hún Una. Þegar kerlingin kom út sá hún mann sem hún taldi vera djöfulinn sjálfan. Una söðlaði því hest og reið allt hvað af tók til næsta prests. Þegar hún kom aftur að Hruna ásamt prestinum og fleiri mönnum – „var kirkjan og kirkjugarðurinn sokkinn með fólkinu í, en þeir heyrðu ýlfur og gaul niðri í jörðinni“. /VH Krampus er þýsk þjóðsagnavera sem er ekki ólík Grýlu í eðli sínu og er á ferð um jól og áramót. Börnin bíða spennt eftir því að fá í skóinn og gjafir á aðfangadagskvöld.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.