Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 87
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 87
Auglýsinga- og
áskriftarsími
er 563-0300
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Augnteprur og vinna fyrir jól
Ef marka má þjóðháttalýsingu
Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili
var aldrei keppst eins mikið
við vinnu eins og fyrir jólin.
Einkum var lagt kapp á að ljúka
við ullarvinnu og prjónaskap á
jólaföstunni.
Síðasta vikan fyrir jól var kölluð
staurvika vegna þess að þá notaði fólk
vökustaura til að halda sér vakandi.
Staurarnir eða augnteprurnar voru
gerðar úr smáspýtum, ámóta stórum
og eldspýtur en stundum var notað
svokallað baulubein úr þorskhöfði
eða eyruggabein úr fiski. Skorið var
inn í beinið til hálfs en það haft heilt
hinum megin og á það lítil brotalöm
og skinninu á augnlokinu smeygt inn
í lömina. Stóðu þá endarnir í skinnið
og mjög sárt að loka augunum.
Jónas segir að húsbændur hafi
stundum sett vökustaura á þá sem
áttu erfitt með að halda sér vakandi
við vinnu síðustu vikuna fyrir jól.
Fátækraþerri
Víða var til siðs að þrífa allt hátt
og lágt fyrir jólin. Menn skiptu um
nærföt og stundum var jafnvel skipt
á rúmunum og jafnvel mestu sóðar
brutu venjur sínar og voru hreinir og
vel til hafðir um jólin.
Samkvæmt gamalli þjóðtrú lét
guð alltaf vera þíðviðri rétt fyrir
jólin, til þess að fólk gæti þurrkað
plöggin sín fyrir hátíðina og var
þessi þurrkur kallaður fátækrar þerri.
Einnig var það víða til siðs að
fara í kaupstað fyrir jólin. Sumir
fóru eingöngu til að sækja jólakútinn
til að eiga til hressingar. Stundum
var lagt út í mikla óvissu til að ná í
jólaölið og stundum urðu menn úti
í slíkum ferðum.
Jólaærin
Á flestum bæjum var til siðs að
slátra kind fyrir jólin til að eiga nýtt
kjöt á jólunum og mun kindin hafa
verið kölluð jólaærin. Jónas segir að
siðurinn hafi að mestu verið aflagður
á Norðurlandi í sinni tíð en í fullu
gildi á Vestfjörðum langt fram á
okkar tíma.
Tröll á ferð
Jónas segir að jólin hafi verið helgust
og mest allra hátíða enda megi
rekja þau fram til hinnar elstu og
römmustu heiðni á Norðurlöndum
og meðal germanskra þjóða. Um það
leyti eru allar ófreskjur og illþýði á
ferð og geri allt illt af sér sem hægt
er. Tröll og óvættir gengu þá um og
var Grýla gamla og jólasveinarnir
þar fremstir í flokki.
Ekki mátti leika sér á jólanóttina,
hvorki spila né dansa. Til er gömul
saga sem segir að einu sinni hafi tvö
börn farið að spila á spil á jólanótt.
Kom þá til þeirra ókunnugur maður
og fór að spila við þau, hann hvatti
þau til að spila við sig fram eftir
nóttu eða þar til eitt barnið fór
að raula sálmavers en þá hvarf
maðurinn. Maðurinn mun hafa verið
kölski sjálfur.
Komi þeir sem koma vilja
Víða mun hafa verið til siðs að
kveikja ljós um allan bæinn á
jólanótt svo að hvergi bæri á skugga.
Þegar búið var að sópa húsið
gekk húsfreyjan í kringum og bauð
álfunum heim með orðunum: „Komi
þeir sem koma vilja, veri þeir sem
veri vilja, fari þeir sem fara vilja mér
og mínum að meinalausu.“
Hátíð barnanna
Jólin hafa alltaf verið hátíð barnanna
og var til siðs að þau fengju að borða
fylli sína um hátíðina. Einnig þótti
sjálfsagt að gefa þeim nýja flík svo
þau færu ekki í jólaköttinn. Margir
fengu kerti um jólin og þótti það
dýrðarstund þegar kveikt var á
kertunum og horft á logann brenna
út. /VH
Úr Árbæjarsafni. Myndir / HKr.
Um jólin eru allar ófreskjur og illþýði
á ferð og gera allt illt af sér sem hægt
er. Mynd / fandom.com
Á flestum bæjum var til siðs að slátra kind fyrir jólin til að eiga nýtt kjöt á
jólunum og mun kindin hafa verið kölluð jólaærin.