Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 14
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. Með starfi sínu á orlofs-
árinu ávinnur starfsmaður sér rétt til orlofs og orlofslauna á
næsta orlofsári. Taka skal orlof fyrir lok orlofsársins, þ.e. fyrir
30. apríl ár hvert. Við sérstakar aðstæður er hægt að fresta töku
orlofs um eitt ár. Ljúka þarf töku hins frestaða orlofs fyrir lok
næsta orlofstökuárs, annars fellur það niður og fyrnist. Áunnið
og gjaldfallið orlof getur því mest verið tvöfalt.
Óskir um sumarorlof eiga að liggja fyrir 1. apríl og ákvörð -
un um töku orlofs þarf að tilkynna starfsmanni a.m.k. mánuði
áður en hann fer í orlof. Yfirmaður ákveður í samráði við
starfsmenn hvenær orlof skuli veitt. Tímabil sumarorlofs er frá
1. maí til 15. september. Starfsmaður á rétt á að fá 160 vinnu-
skyldustunda orlof sitt á sumarorlofstímabilinu og allt að fullu
orlofi á sama tíma, verði því við komið vegna starfa stofnun-
arinnar. Sé orlof eða hluti orlofs tekið eftir að sumarorlofstíma-
bili lýkur, skal sá hluti orlofsins lengjast um fjórðung. Sama
gildir um orlof sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil sam-
kvæmt beiðni stofnunar. Starfsmaður á rétt á því að taka sér
sumarfrí óháð því hvort hann á rétt til orlofslauna.
Starfsmenn í veikindum og hlutaveikindum geta ekki tekið
orlof meðan á veikindunum stendur og gilda þar aðrar reglur
um frestun á orlofi. Veikindi í orlofi skal tilkynna yfirmanni
án tafar þar sem tími í veikindum telst ekki til orlofs. nánar
má lesa um orlofslög á vefsvæði alþingis: www.althingi.is/
lagas/nuna/1987030.html.
greitt er orlofsfé af álagi og yfirvinnu og lagt inn á banka -
reikning. Það er greitt út í maí ár hvert. Orlofsuppbót er greidd
út 1. júní ár hvert. hjúkrunarfræðingar, sem eru í starfi til 30.
apríl næst á undan, eiga að fá orlofsuppbót. greitt skal hlut-
fallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
14 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Átt þú orlof sem er að fyrnast?
— Eruð þið farin að huga að sumarorlofi?
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði víðs vegar um landið og erlendis. Eignirnar
þurfa að vera snyrtilegar, fullbúnar húsgögnum og öðrum viðeigandi búnaði.
Átt þú orlofseign sem þú vilt leigja?
Áhugasamir sendi upplýsingar á hjukrun@hjukrun.is
eða hafi samband við skrifstofu í síma 540 6400.