Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 16
Ég set bílinn í gang á bílastæðinu við Landspítalann í fossvogi. fer að hugsa um hvað ég ætti nú að taka fyrir í þessum pistli. af nógu er nú að taka enda hjúkrun fjölbreytt starf og mörgu hefur maður velt fyrir sér á þessari leið úr eða í vinnu. Líklega er eini kosturinn við að keyra þessa samtals 100 kílómetra á dag að hafa þennan tíma með sjálfum sér sem fer oft í að plana vinnudaginn eða gera hann upp. reyndar er líka annar kostur sá að ég slepp við að koma unglingstrákunum mínum tveimur af stað í skólann á morgnana því ég legg af stað langt á undan þeirra fótaferðartíma. Ég kveiki á útvarpinu og orðið „fráflæðisvandi“ ómar í fréttatímum og vandinn er skýr, það er ekki hægt að útskrifa sjúklinga af bráðamóttöku og leggja inn á aðrar deildir vegna skorts á hjúkrunarfræðingum til að sinna þeim. Ég hugsa með mér: hvernig datt þeim í hug að skerða fjárframlög til stofnana úti á landsbyggðinni, loka skurðstofum, fæðingardeildum og öðrum deildum svo senda þurfi sjúklinga á Landspítalann. Á spítala sem þegar er sprunginn. Árið 2020 er gengið í garð og alþjóðaheilbrigðismálastofnunin búin að tileinka hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum árið. En einhvern veginn er ég ekki bjartsýn yfir að þetta verði okkar ár. Samningalausir og það kraumar í manni pirringur og reiði yfir aðgerðaleysi stjórnvalda að leysa þessa pattstöðu sem heilbrigðiskerfið er í á Íslandi. Ég er þakklát þeim sem hafa tjáð sig um stöðuna í fjölmiðlum því vissulega þarf að vekja athygli á þessu til að ná eyrum þeirra sem hafa vald til og geta breytt þessari stöðu. Mér er líka hugsað til eldri konu sem ég sinnti inni á skurðstofu fyrir ekki svo löngu vegna lærleggbrots. Þessi góða kona hafði svo sannarlega lagt vel við hlustir því þegar hún varð fyrir því óláni að detta heima hjá sér ákvað hún að vera ekkert að ónáða starfsfólkið á bráðamóttöku og hafði því staulast á sínum brotna fót- legg í tæpa þrjá mánuði með tilheyrandi fylgikvillum. Mér verður þá hugsað til þess hvort við getum gert eitthvað annað varðandi upplýsingagjöf til stjórnvalda og hvernig fregnir af ástandi sem er fyrir eyrum landsmanna bitni á þeim sem síst skyldi. Lagið ,,Lífið er yndislegt“ hljómar í útvarpinu í bílnum. Ég skal því segja ykkur frá því hvernig það er að vinna í sjúkraskýli í herjólfsdal um verslunarmannahelgina. Þar hef ég verið síðustu fimm ár. kælipokar, teygjusokkar og saumasett koma strax 16 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 Þankastrik Þankastrik (í fleirtölu) á Reykjanesbraut Soffía Kristjánsdóttir svæfingahjúkrunarfræðingur Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt er varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta allað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitt hvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvað eina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess. Soffía Kristjánsdóttir, svæfingahjúkr- unarfræðingur í Fossvogi. „Mér er líka hugsað til eldri konu sem ég sinnti inni á skurðstofu fyrir ekki svo löngu vegna lærleggbrots. Þessi góða kona hafði svo sannarlega lagt vel við hlustir því þegar hún varð fyrir því óláni að detta heima hjá sér ákvað hún að vera ekkert að ónáða starfsfólkið á bráðamóttöku og hafði því staulast á sínum brotna fótlegg í tæpa þrjá mánuði með tilheyrandi fylgikvillum.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.