Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 23
og leggja mitt af mörkum til að einhver reynsla annarra verði
betri.“
hjúkrun er fyrir Bryndísi Erlingsdóttur hjartans mál en
hún er ein þeirra sem vinna að undirbúningi hjartabilunar-
móttöku á heilsugæslustöðinni á Selfossi, hSu. að sögn
hennar var framtíð hennar ráðin í kjölfar þess að hún fór í
starfskynningu á sjúkrahúsinu á Selfossi. „Ég fékk að fylgjast
með kviðslitsaðgerð og þá var ég bara kolfallin,“ rifjar hún upp.
hún ákvað þann dag að leggja fyrir sig hjúkrun og hefur ekki
séð eftir þeirri ákvörðun. „Ég lít á mig sem hjartahjúkku,“ segir
hún. „Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt, maður fær að takast
á við alls konar strembin vandamál, miserfið og misskemmti-
leg, en þegar öllu er á botninn hvolft er maður alltaf að hjálpa
einhverjum sem hefur þörf fyrir aðstoðina.“
Snæbjörn Ómar guðjónsson, sérfræðingur í geðhjúkrun á
Sjúkra húsinu á akureyri, telur einn mikilvægasta þáttinn í al-
mennri hjúkrun vera þann að veita fjölskyldum sjúklinga
stuðning á erfiðum tímum. Á þriðja ári í hjúkrunarnáminu fór
hann í verknám á legudeild geðdeildar á Sjúkrahúsinu á akur-
eyri og ákvað í framhaldinu að sækja um starf þar. „Eftir
sumar starf á þriðja ári vissi ég nákvæmlega hvað ég myndi vilja
leggja fyrir mig. Mér fannst áhugasvið mitt kristallast í geð -
hjúkrun,“ en hann hefur starfað á deildinni frá 2003. „Mér
finnst starfið mitt mjög mikilvægt og finn til mikillar ábyrgðar
þar sem við þurfum að fást við sjúkdóma sem eru oft og tíðum
lífshættulegir. Það er mjög gefandi í starfi mínu að taka þátt í
því og upplifa þegar sjúklingar öðlast betri líðan í baráttu sinni
við erfiðar aðstæður.“
„Undirstaðan er umhyggja“
Árangur hjúkrunarfræðings ræðst ekki af því hversu mikilli
fræðilegri þekkingu hann býr yfir, að mati rhomz Singayan
aquino, legudeild heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, heldur
hversu góður og sveigjanlegur hann er við að nota allt sem
hann hefur lært. „Þar er undirstaðan umhyggja.“ rhomz flutti
til Íslands í árslok 2015 en þá hafði hann nýlokið meist-
aragráðu í hjúkrun fullorðinna frá filippseyjum. Móðir
rhomz var honum innblástur að leggja fyrir sig hjúkrun, en
þegar hann var barn grét móðir hans mikið vegna tannverkja.
„hún var oftast sorgmædd og það var mjög erfitt fyrir mig að
horfa upp á sársauka og þjáningu móður minnar,“ segir hann,
en honum var eiginlegt að veita öðrum umhyggju og sam-
kennd strax á unga aldri
hjúkrunarfræðingar eru ofurhetjur
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 23
FRÁ GE MEÐ EINSTÖKUM MYNDGÆÐUM
ÆKIÓMSKOÐUNART
us.isfastISíðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900
Opið mán–fim 8:30–17:00, fös 8:30–16:15
„Það er mjög gefandi í starfi mínu að taka þátt
í því og upplifa þegar sjúklingar öðlast betri
líðan í baráttu sinni við erfiðar aðstæður.“