Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 35
Tillögur nefndarinnar eru þessar:
• að setja upp tengiliðakerfi á milli Landspítala og lykil-
stofnana sem sinna umsækjendum um alþjóðlega
vernd. hlutverk tengiliða yrði meðal annars að veita
viðkomandi stofnun upplýsingar um sjúklinga (þegar
við á). Þetta er einkum hugsað sem aðstoð við útskrift,
endurkomur og eftirfylgd. Þannig má halda utan um
heilbrigðisþjónustu hvers og eins og aðstoða fólk við að
fóta sig í nýju kerfi í nýju landi. Þetta yrði að sjálfsögðu
allt gert í samræmi við ný persónuverndarlög.
• gefin verði út gæðaskjöl þar sem ýmsar upplýsingar
varðandi hagnýt úrlausnarefni tengd þessum sjúklinga-
hópi væri að finna. Slíkt gæðaskjal er í vinnslu.
• Skrifleg og samræmd stefna sé til um notkun túlkaþjón-
ustu á Landspítala.
• Starfsfólk fái fræðslu um og þjálfun í menningarhæfi.
Sérstaka áherslu skal leggja á fræðslu um þá sem koma
til landsins og sækja um alþjóðlega vernd.1
• gera úttekt á því hvort og þá hvernig talsmaður sjúk-
linga á Landspítala myndi geta aðstoðað þá umsækj-
endur um alþjóðlega vernd sem sækja þjónustu á
Landspítala.
• Landspítali marki sér stefnu með markmiðum og
aðgerðaáætlun um hvernig standa skuli að þjónustu við
erlenda sjúklinga. Þar sé gerður greinarmunur á hvort
um er að ræða ferðamenn, flóttamenn, erlent vinnuafl
eða umsækjendur um alþjóðlega vernd þar sem tölu-
verður munur er á réttindum og aðgengi að heil-
brigðisþjónustu þessara hópa.
• fræðsluefni verði aðgengilegt á þeim tungumálum sem
stærstu hópar erlendra sjúklinga á Landspítala tala.
Ýmislegt er til en við þurfum að eiga efni á fleiri tungu-
málum en nú er, til dæmis arabísku.
• reglulega séu framkvæmdar gæðakannanir hjá þessum
sjúklingahópi til að auka skilning starfsfólks á þörfum
hans og bæta þar með þjónustuna.
Við stöndum frammi fyrir miklum verkefnum þegar kemur
að því að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd heilbrigðis -
þjónustu. nú þegar er mikið og gott starf unnið á Landspítala
í þágu þessa sjúklingahóps en það er þörf á samhæfingu bæði
innan spítalans og við aðrar stofnanir. Þar eru hjúkrunarfræð-
ingar í lykilhlutverki.
heilsa á flótta
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 35
1 Menntadeild Landspítala heldur reglulega námskeið um menningarhæfi
í heilbrigðisþjónustu sem er ætlað öllu starfsfólki Landspítala í klínísku
starfi. rauði kross Íslands hefur tekið þátt í þeim námskeiðum með sér-
stökum fyrirlestri um umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Ljósm./landspítali/Þorkell.
æðum vi arlaklefanum rÍ k
eikindi v,arnir forvheilsu,
ynslu eæðumst um rog fr
a.annarr
ð