Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 41
ingu aftur inn í samfélagið, og það var í rauninni mjög góður grunnur fyrir hjúkrunina og starfið mitt á heilsugæslunni síðar.“ Allt til alls Við byrjum á að fá okkur kaffi og svo sýnir hún mér húsnæði stöðvarinnar. gott kaffi er mikilvægt á öllum vinnustöðum, var eitt sinn sagt við mig, og það hefur greinilega verið tekið alvarlega á Vopnafirði því kaffið er gott og aðstaðan í eldhúsi starfsmanna er sömuleiðis með ágætum. Í miðri byggingunni er rúmgóð biðstofa og móttaka. Lyfsalan var áður í mót- tökurýminu á heilsugæslustöðinni en er nú í kauptúni og rekin af Vopnafjarðarhreppi. Það er þó varalyfjalager á heilsu- gæslunni með bráðalyf svo að Baldur friðriksson, yfirlæknir og eini læknirinn á staðnum, getur skrifað út nauðsynleg lyf fyrir skjólstæðinga á vöktum þar sem lyfsalan er aðeins opin á ákveðnum tímum. Á heilsugæslustöðinni eru nokkur herbergi, þar á meðal ágæt aðstaða fyrir tannlækni sem kemur reglulega á stöðina, hefðbundin tannlæknastofa ásamt lager og sótt- hreinsiaðstöðu; „Við erum auðvitað bara með einn „autoklava“ þannig að þegar tannlæknirinn er búinn að vera hérna fara bara tanntæknarnir og tannlæknirinn þannig að ég tæmi og tek allt úr „autoklavanum“, annars væri hann hér í gangi í tvær vikur!“ segir Steinunn hlæjandi. Við hlið tannlæknastofunnar er rúmgott herbergi þar sem skjólstæðingar stöðvarinnar þiggja til dæmis göngudeildarþjónustu út af lyfjagjöf og í sama herbergi er aðstaða fyrir fæðandi konur ef fæðingu ber óvænt að. Það eru þó mörg ár síðan konur fæddu börn sín á Vopna - firði. Í dag fara tilvonandi foreldrar um tveimur vikum fyrir áætlaða fæðingu frá Vopnafirði til að vera nálægt stærri fæð - ingar deildum með meiri þjónustu, til dæmis á akureyri, reykjavík eða akranesi. Yfirleitt fer valið eftir búsetu ættingja sem tilvonandi foreldrum þykir iðulega gott að hafa nálægt. með marga hatta í fjölbreyttu og gefandi starfi tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 41 „Það er í rauninni ótrúlega mikið umstang í kringum lyfjalagerinn okkar. Við erum með rafrænt birgðakerfi, Alfa, og ég þarf að taka á móti öllum vörum sem koma inn í kerfið, halda vel utan um fyrningarlistann, lyfin í ísskápnum, eiturskápnum, vökvana sem þarf að hafa eftirlit með og svo læknatöskuna og aðra tösku sem er í sjúkrabílnum.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.