Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 47
Þegar komið var að þeim tímamótum að þau fluttu úr Skógum og í þéttbýlið beittu þau sér fyrir því að komið yrði á fót starfsstöð fyrir aðila sem áttu erfitt uppdráttar á almennum vinnumarkaði. hjónin gáfu öll sín tæki og tól, lagera og viðskiptasam- bönd og varð úr að félag eldri borgara og Sjálfsbjörg á Vopnafirði stofnuðu sjálfs- eignarstofnun, meðal annars í þeim tilgangi að stuðla að tilurð starfa fyrir fólk með skerta starfsorku á Vopnafirði og nágrenni. hagnaði jónsvers, ef einhver er, er varið til almenningsheilla, líkt og kemur fram í samþykktum félagsins. Frá söðlasmíði í saumaskap Starfsemin hefur tekið breytingum frá tíma jóns og jónínu og í dag er lítið um söðlasmíði, frekar að gert sé við reiðtygi og annað sem því fylgir. En þess í stað hefur annars konar skapandi saumaskapur bæst við, meðal annars til að sinna brýnni þörf. Eitt af þeim verkefnum eru snúningsteygjulök, tosulök og draglök sem starfsfólk jóns- vers hefur verið að útbúa í samstarfi við hjúkrunarheimilið Sundabúð á Vopnafirði. Til að forvitnast frekar um þetta áhugaverða þróunarverkefni og starfsemi jónsvers heimsótti ég fyrirtækið og talaði við astrid Örn aðalsteinsson verkstjóra en ástríða hennar fyrir starfseminni hefur fært jónsveri ný verkefni. astrid er frá finnlandi en ástin rak hana til Vopnafjarðar fyrir margt löngu. hún er gift Páli aðalsteinssyni og eiga þau þrjú börn, Enok Örn, Lýdíu Linnéa og katrínu sem er hjúkrunarfræðingur. Það er notaleg stemning þegar ég kem inn í jónsver; einn starfsmaður situr við saumavél með fangið bókstaflega fullt af rauðu og hvítu seglefni og úr einu herbergi berast hamarshögg sem astrid segir mér að séu frá ungum manni sem sé að skipta um áklæði á stólunum í félagsheimilinu Miklagarði. jónsver er hálfsdagsstarfsstöð fyrir öryrkja, fólk sem býr við skerta starfsgetu og eldri borgara sem vilja halda smá- vegis tengingu við atvinnulífið. Í dag starfa í jónsveri þrír einstaklingar í mismiklu starfshlutfalli fyrir utan astrid sem er í hálfu starfi. hún tók við verkstjórastöðunni í september 2018. „já, ég sótti um þetta starf þegar það var auglýst. Ég titla mig eiginlega frekar verkstjóra því það er teymi eða stjórn í kringum starfsemina sem í eru aðilar frá Sjálfsbjörg og félagi eldri borgara og svo ég. Við höldum fundi einu sinni í mánuði tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 47 Snúningsteygjulök sem stuðla að meiri lífsgæðum — Viðtal við Astrid Örn Aðalsteinsson „Það er skemmtilegt að í stjórninni er að mestu leyti fólk sem á rætur að rekja annað en til Íslands! Ég er frá Finnlandi, ein frá Frakklandi, ein sem er Vestur-Íslendingur eða frá Kanada og svo ein sem er íslensk. Samstarfið gengur mjög vel, kannski vegna þess að við komum úr svo ólíkum áttum og menningu!“ Við hlið félagsheimilis Vopnfirðinga, Miklagarðs, og í kjallara stjórnsýsluhússins á Vopnafirði er Jónsver til húsa. Nafn fyrirtækisins má rekja til frumkvöðlanna, hjónanna Jóns Þorgeirssonar og Jónínu Björgvinsdóttur frá bænum Skógum í Vopnafirði sem stunduðu leðuriðju, aðallega söðlasmíði, og saumuðu vindpoka fyrir Flugmálastjórn á heimili sínu í áratugi samhliða búskap.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.