Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 48
svo allir viti hvað er í gangi. Það er skemmtilegt að í stjórninni
er að mestu leyti fólk sem á rætur að rekja annað en til Íslands!
Ég er frá finnlandi, ein frá frakklandi, ein sem er Vestur-Ís-
lendingur eða frá kanada og svo ein sem er íslensk. Samstarfið
gengur mjög vel, kannski vegna þess að við komum úr svo
ólíkum áttum og menningu!“
aðalverkefni jónsvers er að sauma vindpoka fyrir isavia.
Þeir eru misstórir eftir því á hvaða flugvöllum þeir eru. Þeir
stærstu eru 4,20 metrar að lengd og saumaðir fyrir flugstöð
Leifs Eiríkssonar í keflavík. Við prófum að draga einn poka út
í fulla stærð og get ég staðfest að þetta er engin smásmíði.
Efnið er sterkt og saumaskapurinn sömuleiðis og segir astrid
mikið verk að setja þá saman vegna stærðarinnar. Einnig eru
saumaðir litlir vindpokar fyrir minni flugvelli og svo enn aðrir
fyrir golfvelli, sumarbústaði og fleira. Það er vandi að finna
rétta efnið í vindpokana þar sem þeir þurfa að þola bæði veður
og vind sem nóg er af hérlendis.
„Við erum enn í bakaraofninum“
Starfsfólk jónsvers hefur verið að prófa sig áfram með fleira
og þar á meðal eru snúningslökin sem hafa verið í vinnslu
síðastliðna mánuði. Ég spyr astrid hvernig það hafi komið til?
„Þegar ég tók við starfinu hafði verkefnum jónsvers fækkað
nokkuð og tekjurnar fyrir vindpokana fyrir isavia nægðu ekki
til að sjá starfsfólkinu fyrir verkefnum né til að reka fyrirtækið.
Áður sá jónsver um að pússa hæla fyrir Össur en því verkefni
var lokið. Ég fór því á stúfana að leita að verkefnum sem hæfðu
hæfileikum og getu starfsfólks jónsvers.“ Áður hafði kona í
þorpinu séð um að sauma snúningslök fyrir Sundabúð en var
hætt. Því var þeirri hugmynd lætt að astrid á stjórnarfundi
jónsvers að kanna hvort Sundabúð myndi vanta snúningslök.
astrid fór á fund Emmu Tryggvadóttur hjúkrunarforstjóra
sem sagði svo vera, bað um tíu lök og lét astrid fá eitt slitið lak
til að sauma eftir. astrid sá þarna tækifæri til að endurbæta
lökin og má segja að um frumkvöðlastarfsemi sé að ræða. hún
fékk konuna sem áður hafði saumað lökin fyrir Sundabúð til
að vera með í betrumbótunum á nýju snúningsteygjulökunum
og sér hún um að sauma þau í dag. Vinnsla þeirra hefur tekið
tíma og er ekki enn lokið: „Við erum eiginlega enn þá í bakara -
ofninum,“ segir astrid hlæjandi.
astrid segir að það séu ótalmörg atriði sem þarf að skoða og
velta vandlega fyrir sér þegar verið er að undirbúa og framleiða
vandaða vöru fyrir skjólstæðinga. Léreftið í lökunum skiptir
miklu máli, einnig satínefnið í snúningshlutanum og hvar
teygjan situr. Það hefur verið mikill vandi að finna réttu efnin
til að nota í lökin, sérstaklega satínefnið. En astrid segir að
vefnaðarvöruverslanir hafi ýmist verið lagðar niður eða sam-
einast þar sem viðskiptin hafi dregist mikið saman. Þegar hún
hafði loks fundið rétta efnið lokaði verslunin sem seldi þau. Þá
voru góð ráð dýr. hún komst í samband við eiganda vefnaðar-
vöruverslunar sem pantar efni frá útlöndum og í sameiningu
fundu þær rétta efnið; reyndar eftir að hafa fengið nokkrar
ónothæfar sendingar. En nú hefur sá aðili því miður hætt
störfum. Staðan í dag er sú að astrid er komin í samskipti við
aðila frá finnlandi og pantar nú efnið þaðan.
Lakaléreftið þarf ákveðna meðhöndlun. Það hleypur örlítið
og er því þvegið og straujað í Efnalaug Vopnafjarðar, sem er í
næstu götu fyrir neðan jónsver, áður en það er saumað. Ég spyr
astrid hvort það megi ekki segja að snúningsteygjulökin séu
samfélagsverkefni þar sem ólíkir aðilar koma að framleiðslu
þeirra? „jú, það má segja það. jónsver nýtur líka velvildar í
bæjarfélaginu, íbúar vilja geta notið þjónustunnar hér og hafa
þennan vinnustað. Við skiptum um rennilása, styttum buxur,
fólk kemur með eitthvað sem tilheyrir fellihýsinu, þarf að
skipta um yfirbreiðslur til dæmis á grilli og allt mögulegt sem
við gerum. Við saumum líka flögg fyrir trillukarlana og grá-
sleppukarlana. hver bátur á sinn lit og sumir eru tvílitir, margir
skipstjórar hafa verið með sinn lit í áratugi. Við saumum
einnig fyrir æðarvörpin, flögg og bönd fyrir æðarfuglana.
aðalbjörg stefanía helgadóttir
48 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Léreftið í lökunum skiptir miklu máli, einnig
satínefnið í snúningshlutanum og hvar teygjan
situr. Það hefur verið mikill vandi að finna réttu
efnin til að nota í lökin, sérstaklega satínefnið.
Þegar hún hafði loks fundið rétta efnið lokaði
verslunin sem seldi þau. Þá voru góð ráð dýr.
Astrid Örn Aðalsteinsson verkstjóri hjá Jónsveri.