Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Síða 54
sjálfs eða annarra. Sjúklingar eru í sumum tilfellum hlynntir þvingandi meðferð, eins og einangrun og nauðungarlyfjagjöf, og telja hana nauðsynlega og gagnlega í þeim tilfellum þegar sjúkdómsástand þeirra er alvarlegt (georgieva, Mulder og Wierdsma, 2012). fyrri reynsla sjúklinga skiptir þó máli. Sjúk- lingar sem höfðu fengið góða hjúkrun á meðan á meðferðinni stóð og gagnsemi af meðferðinni sögðust myndu kjósa þá meðferð aftur (georgieva, Mulder o.fl., 2012). Samkvæmt siðareglum um ábyrgð heilbrigðisstétta gagnvart almenningi eða samfélaginu má skyldan við einstaklinginn ekki verða svo afdráttarlaus að öðrum geti stafað hætta af (Vilhjálmur Árna- son, 1991). Þannig er siðferðilega rangt að hafa ekki vit fyrir sjúklingum sem myndu valda sjálfum sér eða öðrum skaða ef ekki er gripið til aðgerða (Culver og gert, 1982; hem o.fl., 2014). Því má ef til vill réttlæta notkun þving andi meðferðar þegar einstaklingur er hættulegur sjálfum sér eða öðrum. kenningar siðfræðinnar styðja að þvingandi meðferð sé fyrst og fremst öryggistæki og eingöngu skuli grípa til hennar þegar hegðun sjúklinga ógni eigin öryggi eða öryggi annarra (geor- gieva, Mulder o.fl., 2012; holmes o.fl., 2004). Líkan um öruggar sjúkradeildir: SAFEWARDS undanfarin ár hefur athygli fræðimanna í auknum mæli beinst að þeim aðferðum sem geta dregið úr notkun þvingandi meðferðar á geðdeildum. Árið 2014 setti Len Bowers fram líkan um öruggar sjúkradeildir, sem nefnist Safewards, í þeim tilgangi að fækka þeim atvikum sem leiða til þvingandi með - ferðar á geðdeildum. hugmyndafræði Safewards-líkansins bygg ist á fjölmörgum rannsóknum allt frá árinu 1960 sem voru gerðar til að kanna áhrif þvingandi meðferðar á sjúklinga og starfsfólk og hvernig megi draga úr notkun hennar (Bowers, 2014). Safewards-líkanið er heildræn umgjörð hjúkrunar og stjórnunar á geðdeildum og tekur til þeirra þátta sem hafa áhrif á umfang og tíðni þvingandi meðferðarúrræða á geðdeildum (sjá mynd 1). Líkaninu er skipt í sex áhrifasvið sem taka til þátta varðandi sjúklinga, starfsfólk, umhverfi, þátta utan spít- ala, samfélag sjúklinga og regluverk. Það er hannað til þess að draga úr árekstrum og þvingandi úrræðum á geðdeildum með því að styðja við skipulag, teymisvinnu, umhverfi, stuðning, þekkingu, upplýsingaflæði og fagleg vinnubrögð (Bowers, 2014; Bowers o.fl., 2014). hugtakið árekstrar er notað um erfiða hegðun sem reynir á starfsfólk, eins og ef sjúklingar neita meðferð, reyna að strjúka af deildinni, neyta vímuefna á með - an á innlögn stendur, beita ofbeldi eða skaða sjálfa sig sýna og hugtakið þvingun er notað sem samnefnari yfir öll þving andi meðferðarúrræði sem notuð eru á geðdeildum (Bowers, 2014). Safewards-líkanið sýnir að margir þættir tengjast þvingandi meðferð. Ýmsar rannsóknir hafa leitast við að skýra tengsl milli þvingandi meðferðar og ýmissa breyta sem tengjast sjúkling- unum sjálfum. að sögn Bowers o.fl. (2014) eru 28% atvika sem leiða til þvingandi meðferðar rakin til einkenna sjúklinga, eins og lýðfræðilegra breyta, sjúkdómsgreininga, sjúkdómsein- kenna og hegðunar. kyn og aldur sjúklinga getur skipt máli en meiri hætta er á að ungir nauðungarvistuðir karlmenn séu beittir þvingandi meðferð, eins og einangrun og fjötrum, en konur og þeir sem eldri eru (Bowers o.fl., 2014; georgieva, Vesselinov og Mulder, 2012). nauðungarlyfjagjöf er oftar valin til að meðhöndla sjúkdómseinkenni kvensjúklinga en karl- sjúklinga (jarrett, Bowers og Simpson, 2008; nawka o.fl., 2013). félagsleg staða sjúklinga hefur einnig áhrif en sjúklingum sem búa einir og hafa lítil tengsl við fjölskyldu sína er hættara við að vera beittir þvingandi meðferð (girela o.fl., 2014; Lay, nordt og rossler, 2011) og þeir sem eru atvinnulausir eiga sömuleiðis frekar á hættu að vera beittir þvingandi meðferð (Lay o.fl., 2011). Forspársþættir þvingandi meðferðar Sjúkdómseinkenni, sjúkdómsgreiningar og hegðun sjúklinga hefur mikil tengsl við þvingandi meðferð. Sjúklingum með geðrofsgreiningu (f20-f29) samkvæmt iCD-10 sjúkdóms- flokkunarkerfinu sem sýna einkenni geðklofa, eins og ofskynj- anir og ranghugmyndir, og sjúklingum sem sýna ofbeldisfulla hegðun eiga frekar á hættu að lenda í þvingandi meðferð en öðrum (georgieva, Vesselinov o.fl., 2012; kalisova o.fl., 2014; noorthoorn o.fl., 2015). Sjúklingar sem vitað er að hafa mis- notað vímuefni og að hafa beitt ofbeldi gagnvart öðrum eru einnig oftar beittir þvingandi meðferðarúrræðum (Bowers eyrún thorstensen og helga bragadóttir 54 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020 Mynd 1 er byggð á líkani um öruggar sjúkradeildir, Safewards, og sýnir á einfaldan hátt meginbyggingareiningar þess. Í ytri hring eru áhrifa - sviðin sex (sjá nánar töflu 1). Þvingun og árekstur eru kjarninn í lík- aninu, tvíátta ör þar á milli merkir að árekstur getur valdið þvingandi meðferð og öfugt. Innan ytri hrings eru blossar og demparar sem tákna áhrif fjölmargra þátta meðal sjúklinga og starfsfólks sem geta haft áhrif á hve oft þarf að beita þvingandi meðferð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.