Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 62
skv. nEWS (national Early Warning Score1). auk þess að vera
með 38,4°C hita mælist blóðþrýstingur Önnu 109/66, púls 93,
öndunartíðni 15/mín. og súrefnismettun 97% án súrefnisgjafar.
hún er því með nEWS-stigun upp á 3 stig sem telst lítil áhætta
En þar sem líklegt er að hún sé ónæmisbæld og með hita þarf
að bregðast skjótt við til að fyrirbyggja lífshættulegt ástand.
hafin er uppvinnsla strax og tekin blóðsýni sem sýna að anna
er með verulega fækkun á hvítum blóðkornum (0,3) og dauf-
kyrningar mælast ekki (0,0). anna er með lyfjabrunn og því er
tekin ein blóðræktun úr lyfjabrunni og önnur úr handlegg
(þegar sjúklingar eru ekki með miðlæga bláæðaleggi er tekin
blóðræktun úr báðum handleggjum). Einnig er tekið þvagsýni
ásamt sýnum frá hugsanlegum sýkingarsvæðum, s.s. húð, hráki,
hægðir.
Þrátt fyrir að æskilegt sé að ná öllum ræktunarsýnum áður
en sýklalyfjagjöf hefst á alls ekki að bíða með sýklalyfjagjöf og
enn síður að bíða eftir ræktunarniðurstöðum. Sýklalyfjagjöf á
að vera hafin innan klukkustundar frá því hiti hefur verið
staðfestur.
Önnu er gefið sýklalyfið Ceftazidem (fortum®) 2g í æð og í
kjölfarið hafin vökvagjöf í æð. anna var lögð inn á sjúkrahús og
þurfti sýklalyf í æð í nokkra daga en gat að útskrift lokinni
haldið áfram í krabbameinslyfjameðferðinni. Með skjótum
viðbrögðum var komið í veg fyrir að seinka þyrfti krabba-
meinsmeðferðinni og hugsanlega komið í veg fyrir lífshættulegt
ástand.2
Lokaorð
rétt viðbrögð við hita hjá ónæmisbældum krabbameinssjúklingi
skipta miklu máli. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar geri sér
grein fyrir alvarleika þess þegar ónæmis bældur krabbameins-
sjúklingur fær hita, þekki leiðbeiningarnar og noti þær til að
bregðast skjótt við með viðeigandi rannsóknum og meðferð.
Með aukinni árvekni og því að bregðast hratt og rétt við hita hjá
ónæmisbældum krabbameinssjúklingi má fyrir byggja lífshættu-
legt ástand, stytta innlagnartíma og auka lífsgæði sjúklingsins.
Þakkir:
handritshöfundar (Brynja hauksdóttir og halla grétarsdóttir)
unnu drög að handriti þessu í Vinnusmiðju í handritsgerð sem
helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur, prófessor og forstöðu -
manni fræðasviðs við hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og
Landspítala, hafði umsjón með. Við þökkum helgu fyrir
hennar aðstoð.
Heimildir
Carmona-Bayonas, a., jiménez fonseca, P., Echaburu, j. V., antonio, M.,
font, C., og Biosca, M. (2015). Prediction of serious complications in pa-
tients with seemingly stable febrile neutropenia: Validation of the Clinical
index of Stable febrile neutropenia in a prospective cohort of patients
from the finiTE study. Journal of Clinical Oncology, 33, 465–71.
freifeld, a. g., Bow., E. j., Sepkowitz, k. a., Boeckh, M. j., ito, j. i., Mullen,
C. a., … Wingard, j. r. (2011). Clinical practice guidelines for the use of
antimicrobial agents in neutropenic patients with cancer: 2010 update by
the infectious Diseases Society of america. Clinical Infectious Disease,
(52), 4, e56–93.
gæðahandbók Landspítalans. (2018). Daufkyrningafæð — vöktun og viðbrögð
við hita. [LSh-1510, v1.2018] ritstjórn gæðaskjals: Brynja hauksdóttir,
guðbjörg guðmundsdóttir, halla grétarsdóttir. Sótt á http://heitur.land-
spitali.is/focal/gaedahandbaekur/gnhskurda.nsf/0/B3BB76718Bf111CB0
02582670051B4C5
klastersky, j., naurois, j., rolston, k., rapoport, B., Maschmeyer, g., aapro,
M., herrstedt, j. (2016). Management of febrile neutropenia: ESMO clin-
ical practice guidelines. Annals of Oncology, 27 (viðauki 5), 111–118.
kuderer, n. M., Dale, D. C., Crawford, j., Cosler, L. E. og Lyman, g. h. (2006).
Mortality, morbidity, and cost associated with febrile neutropenia in adult
cancer patients. Cancer 106, 2258–2266.
Legrand, M., Max, a., Peigne, V., Mariotte, E., Canet, E., Debrumetz, …
azoulay, E. (2012). Survival in neutropenic patients with severe sepsis or
septic shock. Critical Care Medicine, 40, 43–49.
Lucas, a. j., Olin, j. L., Coleman, M. D. (2018). Management and preventive
measures for febrile neutropenia. Pharmacy and Therapeutics 43(4), 228–
232.
Mayadas, T. n, Cullere, X., Lowell, C. a. (2015). The multifaceted functions
of neutrophils. Annual Review of Pathology: Mechanisms of Disease, 8,
181–218.
nCCn [national Comprehensive Cancer network]. (2018). NCCN Clinical
Practice Guidelines in Oncology (NCCN Guidelines®): Prevention and treat-
ment of cancer-related infections [v1.2019]. Sótt á http://www.nccn.org/
professionals/physician_gls/PDf/infections.pdf
brynja hauksdóttir, halla grétarsdóttir, guðbjörg guðmundsdóttir
62 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
1 Í SBar Landspítala-appinu má finna nEWS-stigun á versnandi ástandi
sjúklinga.
2 athugið að í dæminu hér fyrir ofan er einungis farið yfir helstu atriði í
fyrstu viðbrögðum við hita hjá ónæmisbældum krabbameinssjúklingum.
Ekki eru allir þættir uppvinnslu taldir upp í dæminu, s.s. upplýsingataka,
mat á líðan og líkamsmat til að leita að sýkingastöðum.