Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 74
Umræður athyglisvert var að sjá í niðurstöðum þessarar rannsóknar að margsinnis komu fram vísbendingar um að hjúkrunarfræð- ingar undir 40 ára sem unnu á skurð- og lyflækningasviði voru í áhættuhóp þeirra sem gætu orðið fyrir barðinu á streitu og kulnun í starfi. Sá marktæki munur sem kom fram á streitu í töflu 2 á þeim þátttakendum sem voru annars vegar með hjúkrunarpróf og hins vegar með BS-gráðu kann að skýrast af ólíkum aldri þátttakenda frekar en mismunandi menntun. Þessar niðurstöður samræmast fyrri rannsóknum á efninu. nýlegar rannsóknir sýna að streita og kulnunareinkenni koma í auknum mæli fram hjá yngri hjúkrunarfræðingum (Lee o.fl., 2015; gómez-urquiza o.fl., 2017; Cheval o.fl., 2019). niður - stöður þessarar rannsóknar gefa sterklega til kynna að huga beri sérstaklega að því hvernig má styðja við yngri hjúkrunar- fræðinga og þá sem hafa stutta starfsreynslu. Eiga þessar niður stöður samhljóm með því sem kom fram í rannsókn hayes og samstarfsmanna (2015) og gómez-urquiza og sam- starfsmanna (2017) um að minni streita og kulnun hafi verið til staðar hjá þeim hjúkrunarfræðingum sem voru eldri og með hærri starfsaldur. Drógu gómez-urquiza og félagar þá ályktun að því eldri sem hjúkrunarfræðingar væru því minni líkur væru á því að þeir séu tilfinningalega úrvinda eða lendi í þeirri firringu að finnast þeir ekki á staðnum hvorki andlega né líkamlega (e. depersonalization). gefa ofangreindar niður - stöður ríka ástæðu til að álykta að yngri hjúkrunarfræðingar séu í mun meiri hættu á að verða fyrir streitu og kulnun og að mikilvægt sé að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. Ofangreindar niðurstöður gefa nokkuð skýrt til kynna að hver og einn hjúkr - unarfræðingur þurfi að vera meðvitaður um einkenni kuln- unar. Einnig, og ekki síður, má álykta að brýnt sé að yfirmenn og stjórnendur þekki til einkenna streitu og kulnunar svo tæki- færi gefist til að koma í veg fyrir minnkaða afkastagetu eða jafnvel tilfinningalegt þrot hjá viðkomandi. Það má finna samhljóm í niðurstöðum þessarar rannsókn - ar og niðurstöðum happell og félaga (2013) og jordan og félaga (2016) sem sýndu að þátttakendur gripu til þess ráðs að flýja af hólmi eða flýja í huganum eða halda sig til hlés þegar aðstæður voru yfirþyrmandi. Til viðbótar sýndu niður stöður þessarar rannsóknar að þeir þátttakendur sem notuðu þessi bjargráð mældust með marktækt alvarlegri streitueinkenni. Vert er einnig að líta til þeirrar neikvæðu fylgni sem kom í ljós í þessari rann- sókn sem bendir jafnframt til þess að yngri hjúkrunarfræðingar og þeir sem hafa styttri starfsreynslu nýti sér ekki nægjanlega bjargráð til að koma lagi á streitufullar tilfinningar til að taka á vandamálinu á skipulegan og hag nýtan hátt (Zyga o.fl., 2016). Ályktanir Skoða ber niðurstöður rannsóknarinnar með tilliti til þess að hún nær einungis til ákveðins hóps hjúkrunarfræðinga innan ákveðinna sviða. Styrkur rannsóknarinnar felst helst í því að hér koma fram niðurstöður sem bæta úr skorti á vitneskju um þetta efni á Íslandi. Í fyrsta lagi sýna þær greinlega að finna þarf leiðir til úrbóta svo ungir hjúkrunarfræðingar með stutta starfsreynslu hverfi ekki úr starfi vegna streitu og kulnunar. Í öðru lagi að kulnun virðist vera persónu- og starfstengd en ekki tengd skjólstæðingum nema að litlu leyti. niðurstöður þessarar rannsóknar endurspegla niðurstöður fyrri rannsókna sem sýna að streita og kulnun er alvarlegt vandamál á meðal hjúkrunar- fræðinga (hayes o.fl., 2015; gómez-urquiza o.fl., 2017) og að þörf sé á breyttum aðferðum í rannsóknum á þessu efni (Caña- das De-la fuente o.fl., 2015). Í slíkum rannsóknum þarf að taka tillit til þeirra hröðu samfélagsbreytinga sem hafa átt sér stað, hugarfars og viðhorfsbreytinga á milli kynslóða og sálfélags- legra þátta (McTiernan og McDonald, 2015). Þetta er umhugs- unarvert nú í dag, en ekki síður þegar litið er til framtíðar. helstu takmarkanir þessarar rannsóknar er lítið úrtak því það dregur úr möguleikum þess að yfirfæra niðurstöðurnar á stærri hóp. Líta má á það sem frekari takmörkun rannsóknarinnar að skortur er á mælingum á áreiðanleika mælitækjanna þar sem stuðst var við sambærileg úrtök og í þessari rannsókn. Þó styrkir það rannsóknina að hún sýndi svipuð Cronbach-alfa- gildi og komið hafa fram í fyrri rannsóknum á stærri úrtökum (hjörleifsdóttir o.fl., 2006; Lee, 2012; Sestili o.fl., 2018). Þakkarorð höfundar þakka stjórnendum Landspítala og Sjúkrahússins á akureyri fyrir góða samvinnu. Vísindasjóði félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru færðar þakkir fyrir styrk til rannsókn- arinnar. Síðast en ekki síst fá allir þátttakendur okkar bestu þakkir fyrir að gefa sér tíma til að taka þátt í rannsókninni. Heimildir altman, D. g. (1999). Practical statistics for medical research (9. útg.). London: Chapman og hall. Borritz, M., og kristensen, T. S. (2004). Copenhagen Burnout inventory: Et spørgeskema til måling af udbrændthed. Sótt á www.arbejdsmiljoforsk - ning.dk/upload/cbi-egen-test.pdf Cañadas-De la fuente, g. a., Vargas, C., San Luis, C., garcía, i., Cañadas, g. r., og De la fuente, E. (2015). risk factors and prevalence of burnout syn- drome in the nursing profession. International Journal of Nursing Stud- ies, 52(1), 240–249. doi. org/10.1016/j.ijnurstu.2014.07.001 Cheval, B., Cullati, S., Mongin, D., Schmidt, E. r., Lauper, k., Pihl-Thingvad, j., … Courvoisier, S. D. (2019). associations of regrets and coping strate- gies with job satisfaction and turnover intention: international prospec- tive cohort study of novice healthcare professionals. Swiss Medical Weekly, 26, 149, w20074. doi: 10.4414/smw.2019.20074 Cohen, S., kamarck, T., og Mermelstein, r. (1983). a global measure of per- ceived stress. Journal of Health and Social Behavior, 24, 365–396. doi: 10.2307/2136404 Cohen, S., og Williamsson, g. (1988). Perceived stress in a probability sample of the united States. Í Spacapan og Oskamp (ritstj.), The social psychology of health: Claremont symposium on applied social psychology (bls. 31–67). newbury Park: Sage. Cronbach, L. j. (1951) Coefficient alpha and the internal structures of tests. Psychometrika 16(3), 297–334. Dunkel-Schetter, C., feinstein, L. C., Taylor, S. E., og falke, r. L. (1992). Pat- terns of coping with cancer. Health Psychology, 11, 79–87. folkman, S., Lazarus r. S., Dunkel-Schetter, C., DeLongis, a., og gruen, r. j. (1986). Dynamics of stressful encounter: Cognitive appraisal, coping, and encounter outcomes. Journal of Personality and Social Psychology, 50(5), 992–1003. doi: 10.1037//0022-3514.50.5.992 berglind harpa svavarsdóttir og elísabet hjörleifsdóttir 74 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.