Vinnan


Vinnan - 01.09.1946, Síða 24

Vinnan - 01.09.1946, Síða 24
Hermann Guðmundsson forseti frá 1944 Þing þetta gerði ýmsar ráðstafanir til að efla stofnun nýrra verkalýðsfélaga, en að öðru leyti hnigu störf þess fyrst og fremst að stjórnmálalegum efnum. Þingið sam- þykkti tillögu um að fá borið fram á Alþingi frv. til nýrra atvinnulaga, að réttlátari kj ördæmaskipun yrði komið á með því að hækka tölu þingmanna í Reykja- vík upp í 6 og þingmönnum fjölgað alls að sama skapi, ennfremur var sambandsstjórninni falið að semja og láta leggja fyrir næsta Alþing frv. til laga um sátta- semjara í vinnudeilum milli verkamanna og vinnuveit- anda. Loks samþykkti þingið að Alþýðusamband Is- lands leitaði sem fyrst inngöngu í Alþjóðasamband verkamanna og jafnaðarmanna, er það kæmist aftur í lag og leitaði samvinnu við verkamenn og jafnaðar- menn á Norðurlöndum. A árabilinu 1920—1924 bættust Alþýðusambandinu 16 ný félög víðsvegar á landinu, af þeim voru 18 verka- lýðsfélög og 4 jafnaðarmannafélög. En árið 1930 er samkvæmt skýrslu sambandsstjórnar talið, að í sam- bandinu séu 28 verkalýðsfélög með 5485 félagsmenn, 2 iðnfélög með 135 félagsmenn og 6 jafnaðarmanna- félög með 332 félagsmenn. Félagatala var því 36 og félagsmannatala alls 5952. Það kom snemma í Ijós, að hin dreifðu og smáu félög úti á landi áttu mjög erfitt uppdráttar í einangrun- inni og vegurinn oft langur til sambandsstjórnar, og því var það tekið til bragðs að stoína minni sambönd í fjórðungunum öllum nema Sunnlendingafjórðungi. —• Arið 1925 var Verkalýðssamband Norðurlands stofnað, ári síðar Verkalýðssamband Ausíurlands og árið 1927 Verkalýðssamband Vesturlands. Fjórðungasambönd þessi unnu verkalýðshreyfingunni hið mesta gagn, bæði með stofnun verkalýðsfélaga og útgáfu blaðs, en ekki sízt kom það einstökum verkalvðsfélögum að miklu gagni þegar kaupdeilur voru og Alþýðusambandsstjórn- in gat ekki veitt raunhæfa hjálp í verkföllum. I fjórð- ungasamböndunum voru einnig mörg félög, sem af ýmsum ástæðum voru ekki í eða vildu ekki vera í AI- þýðusambandinu. Því þegar fram leið á þann áratug, sem hér um ræðir, kom það æ betur í ljós, að ýms verkalýðsfélög vildu ekki ganga í samband, sem hafði ákveðna pólitíska stefnuskrá, þ. e. stefnuskrá Alþýðu- floksins, og með inngöngu sinni í sambandið urðu að gjalda samþykki sitt stjórnmálastefnu og stjórnmála- framkvæmdum Alþýðuflokksins hvernig sem á stóð. — Fyrir þá sök kinokuðu allmörg félög sér við að ganga í Alþýðusambandið, og árið 1930 er talið, að um 30 skipulögð félög verkamannaa hafi staðið utan sam- bandsins. Það var sem sagt að koma í ljós, að hið gamla skipulagsform verkalýðshreyfingarinnar íslenzku sneið henni of þröngan stakk, eins og málum var komið. Þótt grundvallarkjör verkalýðsstéttarinnar séu í flest- um efnum hin sömu og skapi henni því sameiginlega hagsmuni, þá fer þó fjarri því, að allir verkamenn hugsi eins í pólitískum efnum. Innan verkalýðsstéttarinnar hrærast hinar sundurleitustu stjórnmálaskoðanir, allt frá kolsvörtu íhaldi til rauðasta kommúnisma. Það eru því litlar Ifkur á, að hægt sé að sameina alla hina vinn- andi stétt í samtökum, sem hafa ákveðinn pólitískan lit. Það er ekki hægt án tafar að fylkja allri verkalýðsstétt- inni undir fána sósíalismans. En það er hægt að fylkja allri verkamannastéttinni inn í samtök, sem vinna að verndun lífskjara hennar, að bættum launum og lífs- skilyrðum. A faglegu sviði er sem sagt hægt að sam- eina alla verkamenn í sömu samtökum, hversu mikið sem þeim kann annars að bera á milli í stj órnmálum, trúmálum o. s. frv. Þar sem þróun þjóðfélagsins er komin á það stig, að sameining alls verkalýðsins í hags- munasamtökum er orðin söguleg nauðsyn, þá er það einnig söguleg nauðsyn að skapa þeim slík samtök. Bar- áttan um breytingu á skipulagi hinna íslenzku heildar- samtaka verkalýðsins var sprottin af þessari nauðsyn. Þessi barátta var bæði hörð og löng og lauk svo, að slitin voru þau tengsl, sem bundu saman Alþýðuflokk- inn og Alþýðusambandið. Á 7. þingi Alþýðusambandsins, sem háð var 1926, voru gerðar ályktanir í þá átt að athuga breytingar á Bjarni Þórðarson forseti A. S. A. 214 VINNAN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.