Vinnan - 01.09.1946, Side 35
Verkfallsmenn á Torfunefs-
bryggju eftir að hafa hindrað
afgreiðslu Dettifoss
arinnar, og sönnuðu áþreifanlega, að hún svífst einskis,
þegar hún telur sérréttindum sínum teflt í voða. Mörg
vitnin, sem leidd voru fyrir rétt til að reyna að sanna
sakir á verkfallsmenn, urðu tvísaga og sum margsaga.
Einn verkamaður var fangelsaður nokkrum dögum eftir
deiluna. í einu réttarhaldinu réðist eitt réttarvitnið
með brigslyrðum á einn hinna ákærðu. Eitt vitnið
gugnaði við að vinna eið að framburði sínum. Annað
vitni tók aftur fyrri framburð sinn. Þriðja vitnið sór
að einn verkfallsmanna hefði haft í huga að rífa sig!
AS loknum þessum fáheyrÖu réttarhöldum voru haf-
in málaferli gegn tugum verkamanna og verkakvenna og
síðan uppkveðnir dómar gegn 7 manns á Akureyri og
50—60 manns á Siglufirði. Þóroddur Guðmundsson og
Aðalbjörn Pétursson voru dæmdir í 5 mánaða fangelsi,
óskilorðsbundið, og Gunnar Jóhannsson í 4 mánaða,
óskilorösbundið. A Akureyri var Jón Rafnsson dæmd-
ur í 60 daga fangelsi, óskilorsðbundið, Jakob Árnason,
Elísabet Eiríksdóttir, Sigþór Jóhannsson og 3 aðrir
dæmd í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið.
Kaupdeila þessi var einstök í sinni röð hér á landi.
Aldrei áður í sögu verkalýðshreyfingarinnar hafði ver-
ið háð svo harövítug og víðtæk samúðarbarátta.
Þrátt fyrir stundarsigra sína varð hin þríhöföaöa
fylking stéttarandstæðinganna að láta undan, viður-
kenna rétt verkalýösins á Borðeyri og V. S. N. sem
samningaraðila fyrir hönd verkalýðsins. Deila þessi
sýndi ei aðeins hinn mikla samtakamátt og stéttar-
þroska, er verkalýðurinn hafði yfir að ráða. Hún sýndi
jafnframt deginum ljósara hversu aðkallandi sú nauðsyn
var orðin, að breyta Alþýðusambandi íslands í raun-
verulegt verkalýðssamband, lagalega óháð stjórnmála-
flokkum.
VINNAN
Hópur hvítliða á Tuliníusar-
bryggju
225