Vinnan


Vinnan - 01.09.1946, Side 63

Vinnan - 01.09.1946, Side 63
smám saman vaxandi á gæði landsins og afkomumögu- leika þjóSarinnar. AS MóSuharSindunum nýliSnum samdi Hannes biskup Finnsson merka ritgerS er hann nefndi: „Um mannfækkun af hallærum.“ Þar segir svo: AS á íslandi hafi hungur og hallæri oft aS höndum boriS, þarf eigi kynlegt þykja, þar sem mörg betri lönd hefur einatt sama hent, þó sýnast mætti aS þeirra milda loft, frjósemi, ríkidæmi og hæga kauphöndlan myndi varna þeim viS því. En þó Island sé hallærasamt þá er þaS samt eigi óbyggjandi. Þau góSu árin eru miklu fleiri en þau hörSu. Líka og þó á vorri tíS hafi áfalliS stórharSindi, þá hafa forfeSur vorir, hverja oss er svo tamt aS prísa miklu sælli en vér erum, haft engu minni né færri harSæri aS reyna. Hefur landiS þó þess á milli oftast náS sér aftur, fætt sín börn og framleitt margan merkismann, gott verkfæri í guSs hendi, þarft og farsælt þessa heims, en síSan fullsælt í hinum betra.“ Fremsti áhrifamaSur landsins í upphafi 19. aldar var Magnús Stephensen. Undir sterkum áhrifum stjórnar- byltingarinnar miklu í Frakklandi orti hann kvæSiS „íslands glaSværS“. Þar komst Magnús aS þeirri niSur- stöSu, aS einveldi sé hin argasta áþján og dragbítur allra framfara, ísland skorti meira frelsi, því sé lífs- nauSsyn aS fá aukiS forræSi um eigin mál. Magnús kemst svo aS orSi: Lúðrandi kóngar J)á lerkaðir dratta, læra hjá Frönskunum manneskjurétt, heima í borgum sjá hentara að snatta en hlutast um annarra stjórnarlög sett. Réttsýni, vizka nú frjóvgi og friSur, farsæla Danmörk, þitt veldi og lönd. Er sá vor óvinur ekki sem biður: Isalands hrökkvi öll haturleg bönd. Svo kom Baldvin Einarsson, maSurinn sem á traust- um grundvelli hóf sjálfstjórnarbaráttuna, barSist fyrir endurreisn Alþingis og umsköpun atvinnuveganna. En Baldvin hneig aS velli fyrir örlög fram. Bjarni Thorar- ensen hóf aS kveSa eftir hann minningarljóS, en lauk aSeins viS fyrsta stefiS: íslands óhamingju verður allt að vopni; eldur úr iðrum þess, ár úr f jöllum, breiðum byggðum eyða. En nú voru þeir tímar liSnir, aS íslands óhamingju yrSi allt aS vopni. MerkiS stóS, þótt maSurinn félli. Tveimur árum eftir aS Baldvin hneig í valinn hóf Fjöln- ir göngu sína. Og Fjölnir var ekki myrkur í máli, hvorki um stjórnarfariS né önnur efni. Fjölnismenn sáu glögg- lega, hvert niSurdrep ófrelsiS hafSi orSiS íslenzku þjóSinni öldum saman. Um þaS efni farast þeim svo orS: „Enn er aS telja þær óhamingjur, sem af því hafa risiS, aS þjóSin hætti sjálf aS hafa afskipti af stjórn- inni í landinu. Öll kunnátta og lærdómur kulnaSi út, ófrelsi og kúgun leiddu hér í ljós alla sína illu ávöxtu, sem fólgnir eru í eSli þeirra. Lögin voru ekki sniSin eft- ir landinu, sem þau voru gerS handa, og þeir, sem höfSu á hendi gæzlu þeirra, voru margir útlendingar, er hvorki þekktu landiS né hirtu um það. Hnigu fram- kvæmdir þeirra mest aS því að auka ríki sitt og tekjur. Fór þaS að líkindum, að hinir veraldlegu embættismenn höfðu alla viðleitni á aS auka konungdóminn, er þeir höfðu lengi vel til forráða allar hans eignir í landinu og guldu einungis eftir þær ákveðið gjald.“ Fjölnismenn voru postular hinnar nýju trúar, sem átti eftir að lyfta Islendingum upp úr volæðinu, — trú- arinnar á landið. Svo kvaS Jónas: „Yeit þá engi, að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir guði að treysta, hlekki hrista, hlýða réttu, góðs að bíða. Fagur er dalur og fyllist skógi og frjálsir menn, þegar aldir renna. Skáldið hnígur og margir í moldu með honum búa, en þessu trúið!" Enginn Islendingur á 19. öld hefur lýst betur högum Islands á því skeiði i sögu þess, er Islendingar hófu sjálfstæðisbaráttu sína, en fræðimaSurinn GuSbrandur Vigfússon. Hann segir svo í grein sinni: Um sjálfsforræði: Islendingar hafa því goldiS hinn dýrasta skatt, sem lagður verður á eitt land; þeir voru hjá Danmörku eins og leiguliðar hjá stórbúum, eins og þeir gerSust fyrr á öldum. Þó kotungurinn ynni baki brotnu, sá hann aldrei ávöxt verka sinna, og öll hagsældin rann að höfuðból- inu, sem átti allt saman, kú og karl, sem á kotinu bjó. Höfuðbóndinn tók þá björg, sem hann átti, ef það var meira en til eins máls, tók af honum snemmbæra kú á veturnóttum, en gaf honum gelda í staðinn, en ól hann svo aftur á góunni, hann og hans hyski þegar matarlaust var orðið í koti karls og allt ætlaði út af að deyja; áleit svo kotungurinn hann sem lífgjafa sinn og höfuðbóli sem matmóður sína, sem hann hefði alla björg af og gæti ekki án þess lifað, en bar ekki skyn á að meta vinnu sína og aflabrögð, og að hann vann allt fyrir aðra, en ekkert fyrir sjálfan sig, svo það var ekki meira en svo þó honum væri gefinn matur á útmánuðum, svo hann gæti slórt til næsta sumars til að vinna húsbónda sínum....... Menn eru í standandi vandræðum ef koma á tún- VINNAN 253

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.