Vinnan - 01.09.1946, Page 73
r------------------------------------
SAMBANDS-
tíðindi
V____________________________________/
Kaupgjaldsskýrslur Vinnunnar
Því miður varð því ekki við komið að birta útreikning á kaup-
gjaldi fyrir ágústmánuð. En þess skal getið hér til leiðbeiningar,
að júlívísitalan í ár —• sem kaupgjald í ágústmánuði er reiknað
eftir — var 293 stig.
Nýr samningur á Skagaströnd
Þann 30. júlí s.l. var undirritaður kjarasamningur milli Verka-
lýðsfélags Skagastrandar og Síldarverksmiðja ríkisins. Samkv.
þessum samningi er almennt verkamannakaup í verksmiðjunni á
Skagaströnd kr. 2.64 í dagvinnu. Almenn skipavinna greiðist
með kr. 3.00 í dagvinnu, en kol, salt og sement greiðist með kr.
3.30 á klst. Eftirvinna og næturvinna greiðist með 60% álagi og
helgidagavinna með 100% álagi á dagvinnukaup. Mánaðarkaup
fastráðinna manna við verksmiðjuna er samkvæmt Siglufjarðar-
og Raufarhafnarkjörum. Samningur þessi gildir til 7. apríl 1947.
Aðalfundur Verkamannafélags Raufarhafnar
Á aðalfundi Verkamannafélags Raufarhafnar, sem haldinn
var 28. apríl s.l. voru þessir menn kosnir í stjórn félagsins:
Olafur Ágústsson formaður, Ivar Ágústsson varaformaður, Láms
Guðmundsson ritari, Stefán Guðmundsson gjaldkeri og Kristján
Vigfússon meðstjórnandi.
Kjarasamningur verkamanna í Fiskhöllinni
Fyrir lok maí s.l. gerði Dagsbrún samning um kaup og kjör
verkamanna, sem vinna í Fiskhöllinni í Reykjavík. Mánaðar-
kaupsmenn hjá Fiskhöllinni, verkamenn, bílstjórar og afgreiðslu-
menn, höfðu áður sama kaup allir, kr. 450.00 á mánuði.
Grunnkaup verkamanna er nú kr. 500.00 á mánuði, bifreiða-
stjóra kr. 550.00 og afgreiðslumanna kr. 550.00.
Endurskoðun á starfssviði fiskimálasjóðs
og fiskimálanefndar
Samkvæmt beiðni atvinnumálaráðuneytisins skipaði miðstjóm
Alþýðusambandsins á fundi sínum 31. maí s.l. tvo menn í nefnd,
sem á að gera tillögur um starfssvið fiskimálasjóðs, rýmkun á
starfsfé hans og um fyrirkomulag á starfsemi og skipun fiski-
málanefndar. Ætlazt er til að þetta verði 7 manna nefnd. —
Miðstjórnin tilnefndi sem fulltrúa sambandsins í nefndina þá
Lúðvík Jósefsson alþingismann og Ingólf Jónsson lögfræðing.
Kjarasamningur bifreiðastjóra í brauðgerðarhúsum
Þann 29. apríl s.l. var undirritaður samningur um kaup og
kjör bifreiðastjóra í brauðsöluhúsum, milli Verkam.fél. Dags-
brúnar og Alþýðubrauðgerðarinnar h.f. í Reykjavík.
Kaup fullgildra bifreiðastjóra er nú kr. 600.00 pr. mánuð, en
fyrir þá, sem unnið hafa skemur en eitt ár við akstur kr. 550.00
pr. mánuð. Grunnkaup þetta greiðist með fullri dýrtíðaruppbót.
Veikist bifreiðastjóri skal hann eiga rétt á fullu kaupi fyrir
allt að 14 daga á ári. Slasist hann vegna vinnu eða flutnings til
eða frá vinnu skal hann halda óskertu kaupi í 7 vinnudaga.
Vinnudagur skal vera 8 stundir á dag. Yfirvinna greiðist sam-
kvæmt Dagsbrúnarsamningi.
Ráðsteína um orlofsmál
Verkalýðsfélögin við Faxaflóa héldu sameiginlega ráðstefnu
um orlofsmál 30. maí s.l. Rætt var um nauðsyn á samstarfi fé-
laganna um skipulagningu orlofsferða verkafólks og byggingu
dvalarheimila. Samþykkt var að skora á Alþingi að samþykkja
frumvarp Sigurðar Guðnasonar um orlofsheimili verkalýðsfélaga.
Kjarasamningur bensínafgreiðslumanna
Fyrir mánaðamót maí og júní s.l. voru undirritaðir nýir samn-
ingar um kaup og kjör hensínafgreiðslumanna fyrir milligöngu
Dagsbrúnar. Grunnkaup bensínafgreiðslumanna hækkaði úr kr.
500.00 í kr. 600.00 á mánuði. Bensínafgreiðslumenn fengu og
styttan vinnudag sinn um 1 klst. á dag, þ. e. % klst. á vakt, á
tímabilinu 1. nóv. til 31. marz.
Taxti Bílstjórafélags Akureyrar
Bílstjórafélag Akureyrar og Vinnuveitendafélag Akureyrar
sömdu 1. maí s.l. um taxta vörubifreiða tveggja tonna og þar
yfir. Samkv. taxtanum er kaup bifreiðanna sem hér segir: Dag-
vinna: kr. 20.00 pr. klst. Eftirvinna: kr. 24.00 pr. klst. Nætur-
og helgidagavinna: kr. 28.00 pr. klst. Fyrir akstur á kolum á
bing greiðist kr. 1.50 meira á klst. Minnsta gjald sé kr. 4.00.
19. þing A.S.Í.
Eins og auglýst var í síðasta blaði hefur verið ákveðið að 19.
þing Alþýðusambandsins verði háð um 10. nóv. n.k.
Miðstjórn sambandsins hefur boðið Verkalýðssamböndum
allra Norðurlandanna, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar, Færeyja
og Finnlands, að senda fulltrúa á þingið.
Kjarasamningur Félags garðyrkjumanna
Þann 28. júlí var undirritaður kjarasamningur milli Félags
garðyrkjumanna og gróðurhúsaeigenda. — Samkvæmt þessum
samningi er kaup fullgildra garðyrkjumanna kr. 600.00 á mán-
uði (var áður kr. 575.00). Kaup nemenda er sem hér segir: Á
1. ári kr. 300.00 á mán., á 2. ári kr. 380.00 á mán., á 3. ári kr.
435.00 á mán., á 4. ári kr. 535.00 á mán. og á 5. ári kr. 555.00 á
mán. Dagvinna telst 8 klst. á dag og er þar í innifalið kaffihlé,
sem er 40 mín. Eftirvinna greiðist með 50% álagi á dagvinnu-
kaup og helgidagavinna með 100% álagi. Forgangsréttur félags-
bundinna manna er tryggður í samningnum. 14 veikindadagar
eru greiddir á ári, enda komi læknisvottorð til í slíkum tilfell-
um. Garðyrkjumenn halda fullu kaupi í 7 daga, verði þeir fyrir
slysum. Ymis fleiri hlunnindi eru tryggð með samningnum. •—•
Félag garðyrkjumanna hafði áður taxta, sem viðurkenndur var
af atvinnurekendum.
Nýtt sambandsfélag
Á fundi miðstjórnar Alþýðusambandsins 15. júlí s.l. var sam-
þykkt að veita Sveinafélagi pípulagningamanna upptöku í sam-
bandið. Félagið telur 10 félaga. Stjórn skipa: Zóphónías Sig-
fússon, Karl Sigurðsson og Svanur Skæringsson. „Vinnan“ bíður
félagið velkomið í heildarsamtökin.
Kjarasamningur starfsmannafélagsins Þór
Þann 30. júlí var undirritaður nýr kjarasamningur milli
starfsmannafélagsins Þór og Stjórnarnefndar Ríkisspítalanna.
VINNAN
263